Avsnitt
-
Gestur okkar í þessum þætti er Auður Ösp Ólafsdóttir. Auður miðlar af miklum krafti óteljandi ráðum og reynslusögum til fylgjenda sinna á LinkedIn á sama tíma og hún byggir upp eigið fyrirtæki og stundar MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur áralanga reynslu að vefstjórnun og efnissköpun og byggði m.a. upp ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavik. Hún starfar nú sem ráðgjafi þar sem hún hjálpar fyrirtækjum að fóta sig í stafrænum heimi.
Í þættinum ræða Hildur og Auður meðal annars:
Ævintýralegt ferðalag að stúdentsprófi Hvernig forvitni hefur leitt hana áfram í gegnum lífið Hvernig áhugi hennar á leitarvélabestun varð til þess að hún stofnaði ferðaþjónustufyrirtæki út frá bloggi Hvernig örlögin gripu í taumana og urðu til þess að hún stundar nú MBA nám í HR Þegar hún áttaði sig á því eftir að hafa dvalist á Spáni að hún vildi stjórna vinnutíma sínum sjálf Hvað hún tengdi ekki við að vera frumkvöðull (þó að hún sé það!) Praktísk ráð um hvernig hún notar gervigreind til að vinna mikið magn gagna og spara tíma! Mennskan vs. gervigreind og hvernig við dílum við meðalmennskumoð Impostor syndrome og geðheilbrigðismál Hvað LinkedIn er öflugur miðill til að byggja upp tengslanet Hvað það að ferðast ein til útlanda gefur henni orkuÍ þættinum minnist Auður á bæði gervigreindina Claude ásamt ChatGPT. Hún minnist einnig á Chrome viðbótina Glasp (ChatGPT and YouTube Summary) og Notion
Auður mælir með bókinni Alchemy: The Dark Art and Curious Science of Creating Magic in Brands, Business, and Life eftir Rory Sutherland. Og hlaðvörpin Better Offline og Marketing Against the Grain
-------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
-------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌
-
Gestur okkar í þessum þætti er Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi stjórnenda- og mannauðsráðgjafi.
Ásamt því að kynnast Ásdísi, fræðumst við um átaksverkefnið og Playbook Vertonet, leiðarvísi að fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu á vinnustað sem nú er í undirbúningi og er hluti af stærra átaksverkefni um að auka nýliðun kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi.
Playbook Vertonet verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu.
Í þættinum ræða Hildur og Ásdís meðal annars:
Upplifun Ásdísar þegar hún starfaði sem mannauðsstjóri í tæknigeiranum - það vantar fólk! Hvað hlutfallslega fáar konur vinna í tæknistörfum á Íslandi Hvað Vertonet ætlar að gera til að hafa áhrif Átaksverkefnið hingað til og hvað búið er að gera Afurð í smíðum: Hvað er eiginlega Playbook Vertonet? Hvernig áhugasöm geta lagt hönd á plóg Hvað gerist 13. nóvember? Buildathon og dagskrá í streymi Hvernig verður hægt að nýta Playbook Vertonet til að auka inngildingu fyrir öll í upplýsingatækniÁsdís nefnir bæði hlaðvarp og bók í viðtalinu sem hún mælir með:
Fixable (hlaðvarp)
Likable Badass: How Women Get the Success They Deserve (bók)
---------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
---------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania og Sýn
-
Saknas det avsnitt?
-
Gestur okkar í þessum fyrsta þætti vetrarins er Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans. Valeria er reynslumikill stjórnandi í upplýsingatæknigeiranum með víðtæka starfsreynslu úr mismunandi atvinnugreinum. Áður en hún tók við núverandi starfi vann hún hjá fyrirtækjum eins og QuizUp, Nova, Icelandair og Advania. Hún er með BS gráðu í verkfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík ásamt diploma í verkefnastjórnun. Valeria situr auk þess í stjórn SVEF og sinnir kennslu í HR.
Í þættinum ræða Hildur og Valeria meðal annars:
Æskuárin og flutninginn frá Sovétríkjunum til Seltjarnarness Menntaskólaárin og lífsbaráttuna sem tók yfirhöndina Frumgreinadeild í HR (nú Háskólagrunnur), þar sem hún fann áhugann sinn og lauk verkfræðinámi Skemmtilega reynslu hjá Nova á fyrstu árum fyrirtækisins Ævintýralegan vöxt QuizUp og lærdóminn sem hún og aðrir fengu Þátttökuna í uppbyggingu Digital Labs hjá Icelandair Árangursríkar breytingar hjá Advania og hvernig þær þróuðust Hvernig markþjálfunarnámið hefur nýst henni bæði sem stjórnanda og í eigin lífi Kennsluna í HR þar sem hún tengir saman tæknigeirann og viðskiptafræði Hversu nærandi það er að fara í göngutúra með hundinn í náttúrunniÍ þættinum minnist Valeria á tvær bækur:
The Wisedom of the Bullfrog: Leadership Made Simple (But Not Easy) eftir Admiral William H. McRaven
You Do You: How to Be Who You Are to Get What You Want eftir Sarah Knight
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur ÓskarsdóttirStyrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌
-
Elísabet Ósk Stefánsdóttir er nýr formaður stjórnar Vertonet sem kosin var á aðalfundi félagsins sem haldinn var í maí. Í þættinum segir hún okkur bæði frá nýrri stjórn og sjálfri sér, ásamt því að við lítum um öxl yfir þá viðburði sem félagið hefur staðið fyrir í vetur. Við ræðum að auki spennuna fyrir haustinu og viðburða sem nýja stjórnin er byrjuð að huga að.
Um leið og við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í vetur kæru hlustendur tökum við okkur nú í sumarfrí en snúum aftur með þáttinn í haust ❤
Styrktaraðilar Konur í tækni eru Sýn, Geko og Advania og þökkum við þeim innilega fyrir stuðninginn 🙌
-
Our guest in this episode is Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant. Joice was born in Japan but grew up in different countries including France, Brazil, and the United States. She has been working in tech for over 20 years, starting her career as a Web Designer, and eventually finding a deep love for UX and Product Management.
Joice has a BFA from Virginia Commonwealth University and an MFA from the California Institute of the Arts. She is also the 2023 Icelandic Finalist in the Nordic Women in Tech Awards for Innovator of the Year category.
In their discussion, Hildur and Joice cover a range of topics, including:
The normalization of frequently switching schools and adapting to new countries How her passion for animation led her to study at the California Institute of the Arts Her career at Nickelodeon Her role in a startup company created by women to make games for women What brought her to Iceland and her initial job-seeking experiences here Her career trajectory at Controlant and the company's dynamic atmosphere The evolving role of a Product Manager and potential future developments in this role The significance of fostering an inclusive company culture to create better products How starting her day early with exercise helps her maintain focus and balanceApps, Podcasts and books that Joice recommends:
Bearable (self care) app
No stupid questions (podcast)
Grit: Why passion and resilience are the secrets to success by Angela Duckworth (book)
Books by Adam Grant (LinkedIn profile)
The show is sponsored by: Sýn, Geko and Advania 🙌
Like what you heard and want to hear more? Follow the show on your favorite podcast platform to ensure you don't miss an episode.
Follow Vertonet on social channels:
LinkedIn
Facebook
Instagram
Hosted by Hildur Óskarsdóttir
-
Gestur okkar að þessu sinni er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Oktavía er frumkvöðull, framkvæmdastjóri og reyndur ráðgjafi á sviði heildræns nets- og upplýsingaöryggis. Hán hefur þróað og skapað verkefni og fyrirtæki sem tengjast öryggi, menningu og tækni um allan heim.
Oktavía var meðstofnandi þankatanksins future404 ehf. og situr í ráðgjafahóp Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega stjórnsýslu internetsins.
Í þættinum ræða Hildur og Oktavía meðal annars:
Uppvaxtarárin í Danmörku Menntaskólaárið í Bandaríkjunum þar sem hán kynntist tölvum og möguleikum tækninnar Mikilvægi þess að vinna með höndunum og skapa til jafnvægis við nám sem leiddi hán að vinna hjá bifreiðaverkstæði með menntaskóla Árin í CBS í Kaupmannahöfn og starfið hjá Telia í Danmörku og lærdóminn sem fylgdi verkefnunum þar Meistaranámið sem endaði með tvöfaldri meistaragráðu frá háskólanum í Hróarskeldu Starfið fyrir International Media Support sem leiddi hán um allan heim og oft í hættulegar aðstæður Frumkvöðlaverkefni fjármagnað af utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna um heildrænt net- og upplýsingaöryggi Pólitíkina og setu á Alþingi Íslendinga eftir 30 ára búsetu erlendis Hlutverk háns í ráðgjafahópi Sameinuðu þjóðanna um málefni internetsins og undirbúning stórrar ráðstefnu um málefnið sem fer fram í Sádi-Arabíu Bíladelluna og hvað það er ekkert betra en að fara í sund og hvað það er líka gott að gera bara alls ekki neitt----------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
----------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar eru Sýn, Advania og Geko
-
Gestur okkar að þessu sinni er Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet sem gengur út á að auka hlut kvenna í upplýsingatækni.
Lena Dögg mun leiða loka fasa átaksverkefnisins, sem felur í sér að koma skilgreindum aðgerðum í framkvæmd í samstarfi við styrktar- og stuðningsaðila. Lena Dögg hefur margra ára reynslu af verkefnastjórnun og er menntuð sem kennari, náms- og starfsráðgjafi og tölvunarfræðingur
Í þættinum ræða Hildur og Lena Dögg meðal annars:
Fjölbreytilegt námsval á menntaskólaárunum sem leiddi hana að textílkennaranámi í Kennaraháskólanum Hvað hún brennur fyrir að kenna og deila með öðrum Skortur á dagvistun árið 2006 sem varð til þess að hún fór í nám í náms- og starfsráðgjöf Starfið hjá Hljóðbókasafninu sem gaf henni möguleika á að vaxa og bæta við sig tækniþekkingu Hvernig hún fór „óvart“ í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavik Hvað varð til þess að hún fór að starfa sem hugbúnaðarprófari og hvað felst í því starfi Þegar hún kynntist konum sem störfuðu hjá Crayon á stofnfundi Vertonet árið 2018 sem varð til þess að hún sótti síðar um starf hjá fyrirtækinu Hvað verkefnastjórastaðan hjá Vertonet kveikti neista sem hún gat ekki horft framhjá Markmiðið að hlusta á a.m.k. 52 bækur á ári og hvað sunnudagsbollinn er mikilvægur og setur tóninn fyrir komandi vikuLena Dögg minnist á þrjár bækur (hlekkir á Audible):
Accelerate. Building and Scaling High Performing Technology Organizations
The Unicorn Project. A Novel About Developers, Digital Disruption, and Thriving in the Age of Data
Investments Unlimited. A Novel About DevOps, Security, Audit Compliance, and Thriving in the Digital Age----------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
----------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania, Sýn og Geko 🙌
-
Gestur okkar að þessu sinni er Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania en Helga Björk tók þátt í átakinu „Konur í kerfisstjórnun“ og hefur verið áberandi í umræðunni um starfið og frábær fyrirmynd.
Hún hóf starfsferilinn hjá Símanum árið 2007 þar sem hún starfaði við að veita tæknilega aðstoð til viðskiptavina og varð síðar tæknimaður í vettvangsþjónustu fyrirtækjasviðs og svo hópstjóri á upplýsinga- og tæknisviði. Eftir flutning á sviðinu yfir til Sensa árið 2014 hóf hún þar störf sem kerfisstjóri. Frá árinu 2017 hefur hún unnið hjá Advania sem hópstjóri og kerfisstjóri og nú sem deildarstjóri.
Í þættinum ræða Hildur og Helga Björk meðal annars:
Áhuga hennar á tölvum sem vaknaði þegar hún var fjögurra ára gömul Þegar hún bjó til sína fyrstu heimasíðu um 10 ára aldur Hvað notkun IRCsins varð til þess að hún fann fólk með sömu áhugamál Hvað spilun tölvuleikja hefur alltaf verið stór hluti af hennar lífi Hvað varð til þess að hún fór á hárgreiðslubraut í Iðnskólanum Hvað skortur á kvenkyns fyrirmyndum varð til þess að henni datt ekki í hug að hún gæti lært eitthvað tengt tölvum Hvað tækifæri sem hún fékk hjá Símanum varð til þess að hún fann sína réttu hillu og fékk áhuga á rekstri tölvukerfa og fór í gegnum kerfisstjórnunarnám Tækifærin sem hún hefur fengið hjá Advania Hvað nám í kerfisstjórnun hentar fólki með fjölbreyttan bakgrunn Ástríðu hennar á ferðlögum sem hefur orðið til þess að hún hefur komið til yfir 50 landa------------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
------------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar eru Advania, Sýn og Geko
-
Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Helgu Jónsdóttur dósent við Háskóla Íslands. Anna Helga lauk BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003, meistaraprófi í hagnýtri stærðfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) í Kaupmannahöfn 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Anna Helga var ráðin dósent í tölfræði við Háskóla Íslands 2018.
Í þættinum ræða Hildur og Anna Helga meðal annars:
Hvernig stærðfræði vakti áhuga hennar strax á grunnskólaárunum Hvernig skiptinám til DTU í Kaupmannahöfn leiddi hana á braut tölfræðinnar og meistaranáms í hagnýttri stærðfræði og síðar kennslu við skólann Hvernig doktorsnám sem var blanda af tölfræði og kennslu reyndist draumastaðan Þróun og prófun kennslukerfisins tutor-web í stærðfræði og tölfræði Um rafmyntina SmileyCoin sem nemendur fá sem umbun inni í kennslukerfinu Þróun verkefnisins Education in a suitcase í Kenía þar sem kennslukerfið er notað og árangurinn sem hefur náðst og áhrifin sem það hefur haft á samfélagið Hvernig bálkakeðjutæknin er að greiða götu verkefnisins Um Stelpur diffra námsbúðirnar og mikilvægi þess að sýna fyrirmyndir Þá gríðarlegu þróun sem er í gagnavísindum og gevigreind Hvað það er dásamlegt að stunda hot yogaÞátturinn er í boði Sýn, Advania og Geko
Bækur sem Anna Helga minnist á í viðtalinu:
The Alignment Problem: How Can Machines Learn Human Values?
Superintelligence: Paths, Dangers, Strategies
------------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu! Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
------------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Umsjón fyrir hönd Vertonet hefur Hildur Óskarsdóttir -
Gestur okkar að þessu sinni er Linda Heimisdóttir. Linda er með MA og doktorsgráðu í málvísindum frá Cornell háskóla. Linda hefur áralanga reynslu úr máltæknigeiranum en áður en hún tók við núverandi starfi, starfaði hún hjá alþjóðlega fyrirtækinu Appen, sem sérhæfir sig í söfnun og merkingu gagna fyrir máltækni og gervigreind. Linda gekk til liðs við Miðeind, sem er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði máltækni og gervigreindar, í byrjun árs 2023, þá sem rekstrarstjóri fyrirtækisins en hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra síðan í júní.
Í þættinum ræða Hildur og Linda meðal annars:
Hvernig lífið leiddi hana áfram í málvísindin og síðar í máltækni Námsárin í Cornell háskólanum í New York fylki Störfin hjá Appen þar sem hún vann m.a. verkefni fyrir Microsoft Ákvörðunina um að flytja til Íslands, til að starfa við íslenska máltækni, eftir 15 ára búsetu í Bandaríkjunum Byltinguna sem hefur orðið í máltækni með tilkomu Chat GPT Gefandi samstarf Miðeindar við Open AI Styrkinn frá Evrópusambandinu til gerðar gervigreindarmállíkans þar sem evrópsk gildi eru höfð að leiðarljósi Hvað morgunhlaup og sund eru endurnærandi á milli þess sem hún kennir sjálfri sér að spila á píanóLinda minnist á hlaðvörp sem hún mælir með:
Hard Fork
This American Life
Radio Lab
Explo Word Game er appið frá Miðeind sem Hildur minnist á að nota
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar þáttarins eru Sýn og Geko
-
Gestur okkar að þessu sinni er Nanna Pétursdóttir framkvæmdarstjóri Crayon á Íslandi. Nanna hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum í um 20 ár, bæði í tækni- og stjórnunarstörfum. Undanfarin 9 ár hefur hún starfað hjá Crayon, fyrst sem SAM (Software Asset Management) ráðgjafi og leiddi síðar þjónustusvið fyrirtækisins. Áður starfaði Nanna hjá Íslandsbanka, Landspítala háskólasjúkrahúsi og Glitni banka.
Í þættinum ræða Hildur og Nanna meðal annars:
Hvað varð til þess að hún valdi tölvubraut í Iðnskólanum þegar hún valdi sér framhaldsskóla Námið í tölvutæknifræði í Syddansk Universitet og árin í Danmörku Stofnun fyrirtækis með samnemanda á námsárunum í Danmörku og reynslan af því að vinna í litlu nýsköpunarfyrirtæki Árin sem hún starfaði hjá Danfoss í Danmörku og hvernig það var að vinna hjá stóru alþjóðlegu fyrirtæki Hvað varð til þess að hún hóf störf hjá Crayon fyrir 9 árum og ferilinn innan fyrirtækisins Hvað það er mikils virði að hafa aðgang að sterkum sérfræðingum hjá stóru alþjóðlegu fyrirtæki eins og Crayon Um stofnun Vertonet ásamt Lindu B. Stefánsdóttur og fleirum og stjórnarsetuna fyrstu ár félagsins Hvað það er mikilvægt að mæla sér mót og læra af reynslu annarra Hvað útivist í náttúrunni endurnærir og hvað köfun við strendur Íslands er hin fullkomna núvitundÞátturinn er í boði Sýn og Geko
Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
Um hlaðvarpið:
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
-
We welcome Kathryn Gunnarsson. Kathryn is a founder of Geko, an agency that specializes in talent - working in the Tech and innovation sector in Iceland.
In 2016, Kathryn moved to Iceland from London, where she worked as a group head of HR. Kathryn has over 20 years of HR, people strategy, and recruitment experience.
In February 2020, after spotting a niche in the market for a People Strategy agency to support the Tech and innovation sector, Kathryn founded Geko.
The Geko team is passionate about people, human interaction, and supporting companies and groups to understand the benefit of building diverse and inclusive teams and 48% of the hires that they have made since launch have been women in tech-related roles.
Hildur and Kathryn discuss among other things:
How the HR profession found her rather than she was seeking it out How she founded her first consulting agency in Manchester in her twenties What “Chartered FCIPD“ stands for and how the process is around that certification How she persuaded her Icelandic husband to move to Iceland How difficult it is to immigrate to Iceland and the blockers that she found when searching for a job How, after a major trauma she found the courage to found Geko The process that the Geko staff goes through with their customers, from getting to know their candidate to negotiating salary on their behalf How no AI solution is going to invite you for a coffee and the importance of the human aspect in the hiring process How she loves reading and playing Netball in her spare timeIn the interview, Kathryn mentions a few books:
Women in Tech: A practical guide to increasing gender diversity and inclusion - By Gillan Arnold, Hannah Dee, Clem Herman, Sharon Moore, Andrea Palmer and Shilpa Shah
Powered by People: How Talent-Centric Organizations Master Recruitment, Retention, and Revenue (and How to Build One) by Carol Schultz
White Fragility: Why It's So Hard for White People to Talk About Racism - Dr. Robin DiAngelo and Michael Eric Dyson
The Body Keeps the Score: Brain, Mind, and Body in the Healing of Trauma by Bessel van der Kolk M.D.
The Right Amount of Panic - How Women Trade Freedom for Safety by F. Vera-Gray
Why Women are Blamed for everything by Dr. Jessica Taylor
Gabor Mate´s books
The show is sponsored by Sýn and Geko 🙌
-----------------------------------------------------------------------
Like what you heard and want to hear more? Follow the show on your favorite podcast platform to make sure that you don't miss an episode.
Follow Vertonet on social channels:
LinkedIn: https://www.linkedin.com/company/vertonet/
Facebook: https://www.facebook.com/vertonet.is
Instagram: https://www.instagram.com/vertonet.is/
-----------------------------------------------------------------------
Hosted by Hildur Óskarsdóttir
LinkedIn: https://www.linkedin.com/in/hilduro/
-
Í þessum fyrsta þætti haustsins bjóðum við velkomna Súsönnu Þorvaldsdóttur. Súsanna lauk meistaragráðu í verkfræði frá háskólanum í Álaborg árið 2000 og var þar ein af 5 konum af 100 nemendum í sínum árgangi.
Hún starfaði í Danmörku í kjölfarið m.a. hjá Lego og hjá fjarskiptafyrirtækjunum Maxon Telecom og FL-telecom. Eftir að hafa flutt aftur til Íslands árið 2005 starfaði Súsanna hjá TM Software, nú Origo, í alls 12 ár en frá árinu 2017 hefur hún starfað sem bakendaforritari hjá Icelandair.
Í þættinum ræða Hildur og Súsanna meðal annars: Hvernig starf í tölvudeild Landsbankans vakti áhuga á tölvunarfræði Hvað varð til þess að hún hélt utan til náms um þrítugt til að læra tölvunarfræði en endaði í verkfræði Ævintýralegar notendaprófanir fyrir kóreskt fjarskiptafyrirtæki Hvernig það þróaðist að bakendaforritun varð að hennar sérhæfingu Kosti þess að vinna í vöruteymi og hafa skýra stefnu Mikilvægi þess að fólk velji sér að vinna við það sem það brennur fyrir og hefur gaman af Hvað prjónaskapur er gefandi áhugamál ásamt því að stunda hlaup
================================================
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
====================================================
Um hlaðvarpið
Stjórnandi þáttarins er Hildur Óskarsdóttir
Sýn er styrktaraðili þáttarins
-
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Helenu Sveinborgu Jónsdóttur sem er meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla í New York. Helena er með tvær BS gráður frá Háskólanum Reykjavík, í vélaverkfræði og tölvunarfræði.
Undanfarna mánuði hefur Helena starfrækt ada_konur aðganginn á Instagram þar sem konur í hugbúnaðargeiranum segja frá degi í lífi sínu sem hefur vakið verðskuldaða athygli og varð til þess að hún fékk á dögunum bæði styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar og var tilfnefnd til Nordic Women in Tech Awards.
Í þættinum ræða Hildur og Helena meðal annars:
• Hvað varð til þess að hún byrjaði í heilbrigðisverkfræði en kláraði vélaverkfræði og tölvunarfræði
• Hvað valáfangi sem hún tók í Matlab (forritunarmáli) varð til þess að kveikja áhuga á tölvunarfræði
• Hvað það er dýrmæt reynsla að fá sumarstörf með háskólanámi sem tengjast náminu
• Lífið í New York og hvað það opnar sjóndeildarhringinn að stunda nám með fólki sem kemur frá öllum heimshornum
• Hvað það er spennandi að vera í tölvunarfræðinámi nú þegar gervigreind er að verða stærri hluti af lífi fólks
• Kröfurnar í náminu í Columbia
• Hvernig hugmyndin um Ada konur (@ada_konur) fæddist og þá spennandi tíma sem eru framundan í þróun miðilsins
• Hvað það er gefandi að kynna möguleika tækninnar fyrir yngri kynslóðum og sýna fyrirmyndir
• Hvað það er orkugefandi að fara á Crossfit æfingu og fara í sund þegar hún er á Íslandi en að aldrei skuli vanmeta slökun með ís og Netflix
Í þættinum minnist Helena á bók sem hún mælir með
AI 2041 eftir Kai-Fu Lee og Chen Qiufan
Sýn er styrktaraðili þáttarins
-
We welcome Lea Kuliczkowski. Lea is a digital marketer, content creator, and social media specialist currently a marketing manager at Tern Systems.
Before joining Tern Systems last year, Lea worked as a Digital Marketing Specialist for the Blue Lagoon and was a Content Creator for Marel and Nordic Luxury. For three years before that, she worked for Icelandair as a marketing specialist for North American gateways.
Well-written content and content creation are extremely valuable to all companies especially those in the tech industry and those who sell their products online. It´s essential for attracting, engaging, and converting potential customers in today's highly competitive technology-driven landscape. Let’s not forget what the A stands for in STEAM – it’s Arts and it includes creativity – and a big part of creativity is the written word that plays an important role within science, technology, engineering, and mathematics.
In the show, Hildur and Lea discuss among other things:
Her multicultural (Chinese, Polish and Italian) background and upbringing in Canada How the arts and more creative subjects in school were her strengths When she started figure skating at the age of 3 and how skating has played an essential role in her life When working for a Canadian TV station made her realize that she wanted to work in the digital business How her wanderlust mode directed her to Budapest and from there to Iceland How her craving for Chinese BBQ pork buns led to her founding Bao Bao Buns & Yum Cha (Dim Sum) How the multicultural community at Tern systems has made her feel welcome as an employee How her future goals include moving to Italy to open a boutique bed and breakfast How she writes task lists before going to sleep that help her organize How making dumplings is the perfect meditationPodcasts that Lea mentions in the show:
Small Town Murder
Serial
Death in Ice Valley (Isdal Woman)
The show is sponsored by: Geko - Innovation Talent, Taktikal and Tern systems
-
Við bjóðum velkomna Björgheiði Margréti Helgadóttur. Björgheiður lauk BS gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og meistaragráðu í sömu grein frá HR árið 2016. Eftir útskrift starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu, sem forritari hjá Annata og sérfræðingur í upplýsingatækni hjá Innnes. Árið 2019 réði hún sig sem verkefnastjóra í verkfræðideild hjá Alvotech þar sem hún starfaði þar til í september í fyrra þegar hún réði sig sem sérfræðing í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi þar sem hún leggur áherslu á félagslega hluta sjálfbærni svo sem mannréttindi og jafnrétti. Með vinnu stundar Björgheiður einnig diplomanám í hagnýtri jafnréttisfræði við Háskóla Íslands.
Í þættinum ræða Hildur og Björgheiður meðal annars:
Hvað það mótaði hana að alast upp á landsbyggðinni Hvað varð til þess að hún valdi að fara í heilbrigðisverkfræði eftir að hafa stefnt á nám í læknisfræði Hvað það kom henni á óvart hvað forritun reyndist skemmtileg Stjórnarsetuna í UAK og allar þær flottu fyrirmyndir sem hún kynntist þar Þegar hún klessti á vegg og þurfti að forgangsraða öllu upp á nýtt Áhættuna sem fylgir fullkomnunaráráttu og það „mental load“ sem verður að þriðju vaktinni Starfið hjá EY og hvað sjálfbærni snýst um Hvað hún brennur fyrir jafnréttismálum sem varð til þess að hún er í námi með vinnu í HÍ Hvað hugleiðsla og morgunjóga er besta leiðin til að byrja daginn ef mögulegt erBjörgheiður minnist á tvo hlaðvarpsþætti sem hún mælir með:
Karlmennskan #9 Mental load
Þegar ég verð stór
Þátturinn er í boði: Geko - Specialists in Innovation Talent, Taktikal og Tern Systems
-
We welcome Berenice Barrios Quiñones. Berenice is a director of Microsoft Alliance at Advania where she leads collaboration for Microsoft solutions within the company and across its sister companies abroad.
Before joining Advania in 2020, Berenice worked for Origo in various positions from Sales consultant, Software solution Architect and finally as a Product Owner of Microsoft products. Before moving to Iceland, Berenice worked for Grupo Scanda in Mexico City as a SAM Manager, focusing on Microsoft products.
What has really attracted me to Berenice – is that she has been outspoken about her experience of being a woman of foreign origin trying to find her place in the IT industry in Iceland. And - at that - she has succeeded and is a great role model for other women.
In the show, Hildur and Berenice discuss among other things:
How computers and technology fascinated her as a child How video games influenced her learning path How she found her passion in advising and selling software and chose to study marketing How other women in executive positions influenced her and gave her invaluable advice How she decided to be fearless and search for opportunities How Microsoft solutions play a fundamental role in our day-to-day life and how she decided to grow her career with their solutions The process she had to go through to be able to work in Iceland How she was advised to lower her expectations instead of trying to find a job like the one that she had when searching for a job in Iceland The definitions of equality, diversity, inclusion, and equity How music motivates her when she needs a boost How family time, watching food shows and travel recharges herBooks that Berenice mentions in the show:
Who Says It's a Man's World: The Girl's Guide to Corporate Domination by Emily Bennington
How to Stay Human in a F*cked-Up World: Mindfulness Practices for Real Life by Tim Desmond
Innovating Women: The Changing Face of Technology by Vivek Wadhwa and Farai Chideya
The show is sponsored by: Geko – Innovation Talent, Taktikal, and Tern Systems
-
Við bjóðum velkomna Margréti Dóru Ragnarsdóttur sem alltaf er kölluð Magga Dóra. Hún lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistaranámi í tölvunarfræði frá sama skóla árið 2003. Hún á að baki fjölbreyttan starfsferil bæði hér á landi og í Bandaríkjunum og starfaði meðal annars hjá hönnunarstofunni Mad*Pow í Boston í 6 ár við notendarannsóknir og stafræna vegferð stórra fyrirtækja. Á Íslandi starfaði Magga Dóra m.a. fyrir OZ og Símann ásamt því að vera aðjúnkt við Háskóla Íslands. Í dag rekur Magga Dóra fyrirtækið Mennska ráðgjöf, þar sem öll verkefni eru unnin út frá sjónarhóli þess sem verður fyrir áhrifum tækninnar, meðfram því að kenna þjónustu- og upplifunarhönnun við tölvufræðideild Háskólans í Reykjavík.
Í þættinum ræða Hildur og Magga Dóra meðal annars:
Bankastýrudrauma bernskunnar Hvað varð til þess að hún valdi að fara í sálfræði og hvernig það nám hefur verið góður grunnur fyrir allt sem á eftir kom Hvernig tölvunarfræðin og sálfræðin spiluðu saman og nördinn fékk að blómstra Tímann og „meistaranámið“ hjá OZ og þau öguðu vinnubrögð sem voru viðhöfð hjá fyrirtækinu Hvað það er gefandi að kenna og kveikja áhuga nemanda Árin og verkefnin hjá Mad*Pow og lífið í Boston Verkefnið MPACT og hvernig þau unnu borðspil sem hjálpaði fyrirtækjum að vinna með persónur til að nota í hugbúnaðarþróun Stofnun Mennskrar ráðgjafar, sérhæfingu fyrirtækisins og þau fjölbreyttu verkefni sem fyrirtækið er að sinna Hvað það er gefandi að hafa jákvæð áhrif á umhverfið í kringum sig með tækni Ákvörðunina um hætta að tala um að hafa „brjálað að gera“- að hafa frelsi til að sinna fjölskyldu og vinum en sinna á sama tíma gefandi verkefnum Hvað það er nærandi að spila skrafl, fara á tónleika og í leikhús og hitta góða viniÞátturinn er í boði: Geko, Taktikal og Tern Systems
-
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Sigyn Jónsdóttur. Sigyn útskrifaðist með BS gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Samhliða og eftir námið í HÍ starfaði hún hjá Meniga þar til hún fór í meistaranám í Management Science & Engineering í Columbia-háskóla í New York, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2016.Eftir námið réði Sigyn sig til Seðlabankans en söðlaði um ári síðar þegar hún réði sig til hugbúnaðarfyrirtækisins Men & Mice þar sem hún varð forstöðumaður þjónustu og ráðgjafar. Hún er varaformaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs og var formaður Ungra athafnakvenna árin 2017-2019. Hún starfar nú sem framkvæmdarstjóri hugbúnaðar eða CTO hjá nýsköpunarfyrirtækinu Empower þar sem hún er einnig meðstofnandi.
Í þættinum ræða Hildur og Sigyn meðal annars:
· Þegar hún tók ákvörðun um að fara í hugbúnaðarverkfræði eftir að hafa verið komin á annað ár í læknisfræði
· Sumarstarfið hjá Meniga og hvað það er mikilvægt þegar fyrirtæki gefa ungu fólki tækifæri
· Um námið og tímann í Columbia í New York
· Hvernig systir hennar fékk hana með sér á fund hjá UAK og sem leiddi til þess að hún varð seinna formaður félagsins
· Hvað varð til þess að hún varð meðstofnandi Empower og fyrir hvað fyrirtækið stendur fyrir
· Alla þá spennandi hluti sem eru framundan hjá Empower og hvernig heilbrigð vinnustaðamenning styður við árangur
· Um fyrirlesturinn sem hún flutti nýlega á UT messunni „En það sækja engar konur um“
· Hvað kvöldsund í Vesturbæjarlauginni getur verið endurnærandi og hvað það eru mikil lífsgæði að geta gengið til og frá vinnu
Þátturinn er í boði: Geko, Taktikal og Tern Systems -
Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Signýju Guðbjörnsdóttur. Anna Signý starfar sem sérfræðingur í notendarannsóknum og þjónustuhönnun (Senior UX Researcher & Service Designer) hjá hönnunar- og hugbúnaðarfyrirtækinu Kolibri. Hún menntaði sig í Danmörku og er með BS próf í vefþróun frá Copenhagen Business Academy og master í Digital design & Communication frá IT-Universitet í Kaupmannahöfn. Anna Signý starfaði hjá Siteimprove í Danmörku með námi en réði sig til TM Software (Origo) sem viðmótssérfræðingur og vefráðgjafi þegar hún flutti aftur til Íslands árið 2013. Hún starfaði hjá Origo í 5 ár en réði sig til Kolibri árið 2018. Meðfram starfi sínu hefur hún sinnt kennslu bæði í Háskóla Íslands og í Vefskólanum. Anna Signý hefur að auki setið í stjórn og verið formaður SVEF og verið mentor hjá bæði Reboot Hack Iceland og hjá KLAK.
Í þættinum ræða Hildur og Anna Signý meðal annars:
Hvað varð til þess að hún menntaði sig í Danmörku og námsleiðirnar sem hún valdi Hvernig sálfræðin og mannlegi þátturinn í upplýsingatækni varð til þess að hún lagði fyrir sig notendarannsóknir og þjónustuhönnun Hvað það er gefandi að vera mentor og bjóða sig fram til félagsstarfa Hvort að opið launakerfi Kolibri sé mikilvægur þáttur í því að stjórnendum tókst að jafna kynjahlutfallið í fyrirtækinu í fyrra Hvernig eigi að laða konur að karllægum fyrirtækjum Um discovery vinnu og vöruþróunarteymi og hvað það er gaman að vera alltaf að læra eitthvað nýtt með hverjum viðskiptavini við að skapa framúrskarandi notendaupplifun Hvernig lestur hjálpar henni að róa hugann fyrir svefninn ásamt því að hafa minnisbók til taks þegar góðar hugmyndir vaknaÍ þættinum minnist Anna Signý á nokkra vefi og bækur:
Medium
Don‘t make me think – Steve Krug
Escaping the Build Trap - Melissa Perri
Inspired og Empowered - Marty Cagan
Creativity, Inc. - Ed Catmull og Amy Wallace
I‘m Glad My Mom Died – Jennette McCurdy
Sense and Respond og Lean UX – Jeff Gothelf og Josh Seiden
Erindi frá ráðstefnunni "Mind the Product" á YouTube
"Getting things done" aðferðin
Þátturinn er í boði Geko, Taktikal og Tern Systems - Visa fler