Spelade
-
Fórum yfir nýafstaðinn leik Frakka og Spánverja, Gils mættastur og hvað gera Englendingar?
-
Leikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool enn sem komið er en öllu meira hjá hinum toppliðunum. Skoðum aðeins helstu breytingar í deildinni og helstu fréttir tengdar Liverpool.
Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf.
Sjá nánar á heimasíðu Verdi TravelStjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: MaggiÞökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
-
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars.
Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar.
Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu. -
Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins.
Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí.
Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag í unglingalandsliðsverkefni fyrir rúmum áratug. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi þar sem er HM-fár. Rætt verður við Erik í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Ótrúleg fimma Ídu Marín Hermannsdóttur fyrir FH og óvænt tap Breiðabliks í Bestu deild kvenna var til umræðu.
Þá var HM rætt í þaula og komandi 8-liða úrslit, sem og leikur gærkvöldsins. Þar kemur fyrir furðuleg pöntun Frakka á knæpu yfir leiknum.
Stefán Árni lauk þættinum svo á svoleiðis fúkyrðum um Manchester City að líklega sýður á Sigurði Helgasyni.
Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir og hvernig styrkleikahlutföllin á milli liðanna hafa breyst.
Stærsti hlutinn er þó tileinkaður veglegri og snemmbúinni spá fyrir Bónusdeild karla þar sem farið er yfir hvert einasta lið og möguleika þeirra á komandi vetri. Það er óhætt að segja að spáin sé djörf og muni vafalaust kveikja hressilegar umræður á kaffistofunum á næstunni.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
-
Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri.
Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni.
Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað. -
Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.
-
Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.
-
Doc, Ragnar Bragi og Viktor Unnar Illugason
-
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar.
Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður. -
Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fallega mánudegi.
-
Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga.
Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit. -
Doc, Keli og Viktor Unnar Illugason
-
AB VARAHLUTIR - SONAX - ASKJA - DOMINOS - KÖLSKI
Kristján Einar og Bragi gera upp sprettkeppnishelgina á Silverstone þar sem Ferrari komu, sáu og sigruðu!
-
HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni.
Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn. -
AB VARAHLUTIR - ASKJA - SONAX - DOMINOS
Kristján Einar og Bragi gera upp austurríska kappaksturinn. Comeback frá Russell? Ferrari búnir?
-
Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.
- Visa fler