Avsnitt
-
Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri.
Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni.
Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað. -
Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli.
Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp völlinn. -
Saknas det avsnitt?
-
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar.
Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður. -
Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga.
Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars.
Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11.
Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða úrslitin. -
HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni.
Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn. -
Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki.
Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018. -
Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna.
Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa.
Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar pælingar. Þá var farið yfir slúður í lok þáttarins en það styttist í að leikmannaglugginn á Íslandi opni.
Þátturinn er í boði Vinnupalla, Atlantsolíu og Coke. -
Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi.
Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn. -
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild.
-Uppgjör 3.deildar - 07:50
-Uppgjör 2.deildar - 37:50
-Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00
Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið!
Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum.
Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og farið yfir gang mála á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir. -
Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum.
Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld.
Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum. -
HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.
-
Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum.
-Uppgjör 3.deildar - 06:00
-Uppgjör 2.deildar - 40:00
-Spá - 01:24
Harkið er í boði Serrano
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson -
Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari.
Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna.
Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi.
Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta. -
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn.
Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó. -
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á Youtube
Sævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni.
Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum. -
Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa.
- Uppgjör 2.deildar: 8:00
- Uppgjör 3.deildar: 51:00
- Spá: 01:24
Harkið er í boði Serrano.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. - Visa fler