Avsnitt
-
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó.
Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast.
Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar. -
Bensín og dísilolía hækkaði áður en opinber gjöld lækkuðu um síðustu áramót og hið sama gerðist rétt áður en virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið fyrsta maí. Samkeppniseftirlitið segir það standa upp á olíufélögin að útskýra þessar hækkanir betur og að sveiflur í heimsmarkaðsverði á olíu skili sér ekki eins hér og í flestum öðrum ríkjum. FÍB segir alvarlegast af öllu sé að álagningin hafi stóraukist hér og olíufélögin í raun svíni bara á neytendum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Reykjavík leituðu á bráðamóttökur Landspítalans á fimm ára tímabili. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Rótarinnar, segir þetta sýna glöggt, að brýnt sé að bæta aðgengi þessa fólks að lágþröskulds-úrræðum - sem myndi allt í senn bæta hag þess, létta á bráðamóttökunum og spara hinu opinbera stórfé. Ævar Örn Jósepsson talaði við Kristínu.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson -
Saknas det avsnitt?
-
Segja má að gervigreindarlögfræðistofa hafi nýlega unnið mál fyirr breskum dómstól, Málflutningsmaður flutti málið en allan undirbúning vann gervigreind. Hún er farin að gegna ákveðnu hlutverki í réttarkerfi víða og líka því íslenska, nokkrar vefsíður bjóða upp á lögræðiráðgjöf hér.
Níu menn eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa smyglað 106 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Straumsvíkur. Aldrei hefur lögregla lagt hald á svo mikið kókaín í einni sendingu. Í mars fundust 43 kíló af kókaíni í húsbíl í Norrænu. Hingað berst mikið af fíkniefnum ekki síst kókaíni og eftirspurnin virðist óþrjótandi. Stór hluti þeirra sem leita sér hjálpar á Vogi glímir við kókaínfíkn og hefur hlutfallið farið vaxandi segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. -
„Víðtæk og kerfisbundin dráp og misþyrmingar á börnum hafa verið framin á milli 23. október 2023 og 23. október 2025,“ sagði Srinivasan Muralidhar, formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á hernumdu svæðunum í Palestínu. Nýjasta skýrsla nefndarinnar fjallar sérstaklega um stöðu barna á hernumdu svæðunum og niðurstaðan er blátt áfram hryllingur. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.
Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segja já og þeirra sem ætla að segja nei.
Heldur fleiri segjast öruggir um jáið eða 39% en 35% segjast örugglega munu segja nei. Könnunin var gerð 12. til 24. júní. 26% eru ekki alveg afdráttarlaus en 13% segjast líklega munu segja já og 13% eru á því að líklega verði neiið ofan á. Það eru væntanlega þessi 26%, sem eru ekki tilbúin til að segjast örugglega ætla að kjósa svona eða hinsegin, sem barist er um í sumar. En hvar sleppir upplýsingum og áróðurinn tekur við? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson -
Herskáir hirðingjar voru liðsmenn Sea Shephard samtakanna kallaðir þegar þeir komu hingað fyrir fjörutíu árum undir forystu Pauls Watsons. Menn og skip á vegum samtakanna sem hann leiðir nú eru þessa stundina vestan við land að leita að hvalbátunum og tilbúnir til að gera hvað sem þarf til að stöðva hvalveiðar, en Watson segir enga hættu steðja að áhöfnum hvalbátanna.
Jim Townsend var um áratugaskeið hátt settir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og þekkir Ísland vel. Hann ræðir hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Evrópu, rússnesk viðbrögð og þýðingu fyrir Ísland.
Efla þarf viðnámsþrótt Íslands gagnvart fjölþáttaógnum með því að efla stafræna innviði. Uppbygging gagnavera og aðstaða fyrir skýjaþjónustu er lykilþáttur segir formaður Samtaka gagnavera. Orkunýting og skattaumhverfi þurfi að liggja ljós fyrir. -
Evrópubúar eru að kikna undan skæðri hitabylgju síðustu daga. Sérfræðingar segja að sambærileg hitabylgja hafi aldrei geta orðið fyrir fimmtíu árum. Halldór Björnsson, loftslagssérfræðingur Veðurstofunnar, ræðir ástæðurnar.
Milljónir biðu í ofvæni eftir því að forsala á nýjustu útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto hæfist. Bjarki Þór Jónsson, tölvuleikjafræðingur, útskýrir hvers vegna. -
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um að aðild né aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því sé þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu.
Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst.
María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði.
Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram að falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja má beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Má Nobakht bráðalækni.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred -
23. júní 2016 ákváðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að Bretland væri betur sett utan Evrópusambandsins, efnahags- og stjórnmálalegs ríkjasambands sem Bretar áttu þó ríkan þátt í að stofna og síðan móta um áratugaskeið. Af könnunum má ráða að meirihluti Breta telji Brexit hafa verið mistök, -ferlið allt hafa verið óttalegt klúður og að Bretland standi hallari fæti nú en áður. Rætt við Jón Daníelsson, prófessor við LSE.
Kúrasáar eru fámennasta þjóð sem hefur komist á HM karla í fótbolta og landsmenn eru að rifna úr stolti. Um helgina gerðu þeir jafntefli við Ekvador og markvörður Kúrasá var hetja leiksins, varði 15 sinnum. Sjö - eitt tap fyrir Þjóðverjum í fyrsta leik fyllti menn líka gleði. Halla Fróðadóttir lýtalæknir hefur unnið og búið á Kúrasá undanfarin ár. -
Á aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra.
Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga.
Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni. -
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana nota gervigreind í síauknum mæli í vinnu sinni en átta sig e.t.v. ekki á því að sum gagnanna sem unnið er með mega ekki fara út úr húsi, innihalda viðkvæmar og eða verðmætar upplýsingar. En um leið og gögn hafa verið sett inn í gervigreindarforrit er voðinn vís. Við ræðum við Ými Vigfússon sem er doktor í tölvunarfræði og tæknistjóri hjá Keystrike í lok þáttar.
Áður en sumarið er úti fá Bretar sinn sjöunda forsætisráðherra á tíu árum. Stjórnmálaskýrandi segir að ekkert eitt skýri óstöðugleikann í breskum stjórnmálum undanfarinn áratug en í ljós hafi komið að Keir Starmer, sem sagði af sér í morgun, hafi hvorki verið heillandi né góður stjórnandi. -
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé.
Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna.
Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði.
Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar. -
Viðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar.
Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun.
Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja. -
Fiskeldi er ört vaxandi grein í matvælaframleiðslu. Í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birtist í dag kemur fram að vöxturinn er mun meiri en í annarri matvælaframleiðslu. Framleiðslan var rúmlega hundrað milljón tonn í hitteðfyrra og hafði aldrei verið meiri. Á Alþingi og víðar er tekist á um nýtt frumvarp um lagareldi.
Mikilvæg skref í aðildarumsókn Úkraínu og Moldóvu að Evrópusambandinu voru tekin í gær í Luxemborg, þegar fyrstu samningskaflarnir voru opnaðir. Bæði ríkin fengu stöðu umsóknarríkis sumarið 2022, en Ungverjar hafa lengi staðið í vegi fyrir aðildarviðræðum við Úkraínu. Ný aðildarríki Evrópusambandsins gætu þurft að sætta sig við takmörkuð réttindi fyrstu árin eftir inngöngu.
Fjallkonan sést sjaldan utan 17. júni; áhugi á búningi hennar og íslenskum búning yfirleitt hefur glæðst undanfarin ár, ekki síst hjá körlum. -
Bresk stjórnvöld kynntu í morgun áform um bann við notkun samfélagsmiðla. Bannið nær til barna undir 16 ára aldri. Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi.
Dómur var kveðinn upp í dag yfir Mariusar Borg Høiby, stjúpsyni norska krónprinsins. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og ofbeldi í nánu sambandi. Hann ætlar að áfrýja dómnum.
En við byrjum á menguðum jarðveg. -
Hafrannsóknastofnun vill friðlýsa tæplega 33.000 ferkílómetra af landgrunninu suður af Íslandi. Þar er að finna hluta af helstu kóralrifum við Ísland sem togveiðar hafa skaðað í gegnum árin. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir einstakt landslag þarna á hafsbotninum sem fóstrar fjölbreytt lífríki og fjölbreytt búsvæði, kóralla, svampa og fleira. Friðlýsing þýðir veiðibann og allt lífríki sem þrífst þar á hafsbotni fengi algera friðun.
Þeir sem ætla í bíltúr í góða veðrinu, sem spáð er víða um helgina, þurfa að hafa varann á sér ef þeir ætla að stoppa einhvers staðar. Aldrei hefur verið rukkað fyrir bílastæði jafnvíða og í ár. Samkvæmt samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda frá í maí, rukkaði Parka fyrir notkun á 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík í fyrra, en nú 24. GreenParking rukkaði fyrir 15 stæði, tveimur árum áður voru þau sjö. Í nóvember var rukkað fyrir bílastæði á 43 ferðamannastöðum víða um land, í maí voru þau orðin 54, það er 25 prósenta aukning.
Tónlistarbolir og annar varningur sem merktur er hljómsveitum og listamönnum hefur aldrei verið mikilvægari en nú, til að mæta auknum kostnaði við tónleikahald. Þetta mátti meðal annars sjá fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi, þegar opnaður var sérstakur vefur með alls konar varningi merktum honum. Varningsborðin eru líka ómissandi á tónlistarhátíðum og þar flykkjst tónleikagestir að og skoða boli, derhúfur, merki til að sauma á boli og annað slíkt, geisladiska, plötur og fleira. -
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hitti leiðtoga Evrópusambandsins og gaf lítið fyrir kröfur um að banna olíu og gasvinnslu á norðurslóðum. Umhverfissamtök vilja banna þessa vinnslu, en Evrópa reiðir sig á gas og olíu frá Noregi.
Neyðarbirgðir olíu milduðu höggið þegar stríðið í Íran hófst en nú fara þær þverrandi og endalok stríðsins ekki í augsýn.
Fleiri lönd en nokkru sinni keppa á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. -
Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars.
Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Salvöru Nordal, umboðsmann barna.
Það hefur sveiflast nokkuð í gegnum árin hvort sveitarfélög velji að ráða ópólitíska bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar eða hvort þessir framkvæmdastjórar sveitarfélaganna komi úr röðum kjörinna fulltrúa. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það frekar bundið við stærstu sveitarfélögin að fara þá leið að ráða pólitískan bæjarstjóra. -
Þegar rætt er um samfélagsmál og stjórnmál eru oftar en ekki viðraðar áhyggjur af skautun, skautun orðræðu og samfélagsins sem ali á sundrungu og vegi að rótum lýðræðisins, sérstaklega segja menn þetta reyndar um málflutning þeirra sem eru á öndverðri skoðun í málum, en ólíkar skoðanir og ágreiningur um mál þarf ekki að vera neikvæður. Það er gagnlegt að greina á milli ólíkra tegunda skautunar, segir Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem hefur rannsakað skautun í stjórnmálum í íslensku kosningarannsókninni.
Andlátum fjölgar um 100% á næstu 20 árum. Þetta kemur fram í gögnum kirkjugarðaráðs sem hefur yfirumsjón með yfir 350 kirkjugörðum um allt land. Bálförum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Kirkjugarðaráð segir það gríðarlegt hagsmunamál fyrir bæði ríki og sveitarfélög að sem flestir velji bálför að þessu jarðlífi loknu. -
Í þættinum í dag fáum við fréttir af fundi leiðtoga Evrópusambandsríkja með kollegum frá ríkjum á vesturhluta Balkansskaga.
Við heyrum einnig ástæður þess að íbúar, við árkvíslir og leiruviðarskóga Nígeríu, hafa höfðað mál gegn olíufyrirtækinu Shell.
En við byrjum á geðheilsu. - Visa fler