Avsnitt
-
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um að aðild né aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því sé þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu.
Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt að setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi að setja sem fyrst.
María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði.
Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram að falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja má beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Má Nobakht bráðalækni.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred -
23. júní 2016 ákváðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að Bretland væri betur sett utan Evrópusambandsins, efnahags- og stjórnmálalegs ríkjasambands sem Bretar áttu þó ríkan þátt í að stofna og síðan móta um áratugaskeið. Af könnunum má ráða að meirihluti Breta telji Brexit hafa verið mistök, -ferlið allt hafa verið óttalegt klúður og að Bretland standi hallari fæti nú en áður. Rætt við Jón Daníelsson, prófessor við LSE.
Kúrasáar eru fámennasta þjóð sem hefur komist á HM karla í fótbolta og landsmenn eru að rifna úr stolti. Um helgina gerðu þeir jafntefli við Ekvador og markvörður Kúrasá var hetja leiksins, varði 15 sinnum. Sjö - eitt tap fyrir Þjóðverjum í fyrsta leik fyllti menn líka gleði. Halla Fróðadóttir lýtalæknir hefur unnið og búið á Kúrasá undanfarin ár. -
Saknas det avsnitt?
-
Á aukabúnaðarþingi sem haldið verður 14. ágúst taka bændur afstöðu til Evrópusambandsaðildar - ekki til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem verður síðar í ágúst, segir Trausti Hjálmarsson, formaður samtaka þeirra.
Rauð, appelsínugul og fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða í Evrópu vegna steikjandi hita og fólk drukknar þegar það reynir að kæla sig. Í Frakklandi hafa að minnsta kosti fjörutíu drukknað í ám og vötnum undanfarna daga.
Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann í nýrri samgönguáætlun að mati Ragnars SIgurðssonar, formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Brýn samgönguverkefni sem vilyrði var fyrir hafi ýmist verið slegin af eða færð aftar í áætluninni. -
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana nota gervigreind í síauknum mæli í vinnu sinni en átta sig e.t.v. ekki á því að sum gagnanna sem unnið er með mega ekki fara út úr húsi, innihalda viðkvæmar og eða verðmætar upplýsingar. En um leið og gögn hafa verið sett inn í gervigreindarforrit er voðinn vís. Við ræðum við Ými Vigfússon sem er doktor í tölvunarfræði og tæknistjóri hjá Keystrike í lok þáttar.
Áður en sumarið er úti fá Bretar sinn sjöunda forsætisráðherra á tíu árum. Stjórnmálaskýrandi segir að ekkert eitt skýri óstöðugleikann í breskum stjórnmálum undanfarinn áratug en í ljós hafi komið að Keir Starmer, sem sagði af sér í morgun, hafi hvorki verið heillandi né góður stjórnandi. -
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé.
Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna.
Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði.
Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar. -
Viðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar.
Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun.
Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja. -
Fiskeldi er ört vaxandi grein í matvælaframleiðslu. Í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birtist í dag kemur fram að vöxturinn er mun meiri en í annarri matvælaframleiðslu. Framleiðslan var rúmlega hundrað milljón tonn í hitteðfyrra og hafði aldrei verið meiri. Á Alþingi og víðar er tekist á um nýtt frumvarp um lagareldi.
Mikilvæg skref í aðildarumsókn Úkraínu og Moldóvu að Evrópusambandinu voru tekin í gær í Luxemborg, þegar fyrstu samningskaflarnir voru opnaðir. Bæði ríkin fengu stöðu umsóknarríkis sumarið 2022, en Ungverjar hafa lengi staðið í vegi fyrir aðildarviðræðum við Úkraínu. Ný aðildarríki Evrópusambandsins gætu þurft að sætta sig við takmörkuð réttindi fyrstu árin eftir inngöngu.
Fjallkonan sést sjaldan utan 17. júni; áhugi á búningi hennar og íslenskum búning yfirleitt hefur glæðst undanfarin ár, ekki síst hjá körlum. -
Bresk stjórnvöld kynntu í morgun áform um bann við notkun samfélagsmiðla. Bannið nær til barna undir 16 ára aldri. Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi.
Dómur var kveðinn upp í dag yfir Mariusar Borg Høiby, stjúpsyni norska krónprinsins. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og ofbeldi í nánu sambandi. Hann ætlar að áfrýja dómnum.
En við byrjum á menguðum jarðveg. -
Hafrannsóknastofnun vill friðlýsa tæplega 33.000 ferkílómetra af landgrunninu suður af Íslandi. Þar er að finna hluta af helstu kóralrifum við Ísland sem togveiðar hafa skaðað í gegnum árin. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir einstakt landslag þarna á hafsbotninum sem fóstrar fjölbreytt lífríki og fjölbreytt búsvæði, kóralla, svampa og fleira. Friðlýsing þýðir veiðibann og allt lífríki sem þrífst þar á hafsbotni fengi algera friðun.
Þeir sem ætla í bíltúr í góða veðrinu, sem spáð er víða um helgina, þurfa að hafa varann á sér ef þeir ætla að stoppa einhvers staðar. Aldrei hefur verið rukkað fyrir bílastæði jafnvíða og í ár. Samkvæmt samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda frá í maí, rukkaði Parka fyrir notkun á 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík í fyrra, en nú 24. GreenParking rukkaði fyrir 15 stæði, tveimur árum áður voru þau sjö. Í nóvember var rukkað fyrir bílastæði á 43 ferðamannastöðum víða um land, í maí voru þau orðin 54, það er 25 prósenta aukning.
Tónlistarbolir og annar varningur sem merktur er hljómsveitum og listamönnum hefur aldrei verið mikilvægari en nú, til að mæta auknum kostnaði við tónleikahald. Þetta mátti meðal annars sjá fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi, þegar opnaður var sérstakur vefur með alls konar varningi merktum honum. Varningsborðin eru líka ómissandi á tónlistarhátíðum og þar flykkjst tónleikagestir að og skoða boli, derhúfur, merki til að sauma á boli og annað slíkt, geisladiska, plötur og fleira. -
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hitti leiðtoga Evrópusambandsins og gaf lítið fyrir kröfur um að banna olíu og gasvinnslu á norðurslóðum. Umhverfissamtök vilja banna þessa vinnslu, en Evrópa reiðir sig á gas og olíu frá Noregi.
Neyðarbirgðir olíu milduðu höggið þegar stríðið í Íran hófst en nú fara þær þverrandi og endalok stríðsins ekki í augsýn.
Fleiri lönd en nokkru sinni keppa á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. -
Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars.
Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Salvöru Nordal, umboðsmann barna.
Það hefur sveiflast nokkuð í gegnum árin hvort sveitarfélög velji að ráða ópólitíska bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar eða hvort þessir framkvæmdastjórar sveitarfélaganna komi úr röðum kjörinna fulltrúa. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það frekar bundið við stærstu sveitarfélögin að fara þá leið að ráða pólitískan bæjarstjóra. -
Þegar rætt er um samfélagsmál og stjórnmál eru oftar en ekki viðraðar áhyggjur af skautun, skautun orðræðu og samfélagsins sem ali á sundrungu og vegi að rótum lýðræðisins, sérstaklega segja menn þetta reyndar um málflutning þeirra sem eru á öndverðri skoðun í málum, en ólíkar skoðanir og ágreiningur um mál þarf ekki að vera neikvæður. Það er gagnlegt að greina á milli ólíkra tegunda skautunar, segir Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem hefur rannsakað skautun í stjórnmálum í íslensku kosningarannsókninni.
Andlátum fjölgar um 100% á næstu 20 árum. Þetta kemur fram í gögnum kirkjugarðaráðs sem hefur yfirumsjón með yfir 350 kirkjugörðum um allt land. Bálförum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Kirkjugarðaráð segir það gríðarlegt hagsmunamál fyrir bæði ríki og sveitarfélög að sem flestir velji bálför að þessu jarðlífi loknu. -
Í þættinum í dag fáum við fréttir af fundi leiðtoga Evrópusambandsríkja með kollegum frá ríkjum á vesturhluta Balkansskaga.
Við heyrum einnig ástæður þess að íbúar, við árkvíslir og leiruviðarskóga Nígeríu, hafa höfðað mál gegn olíufyrirtækinu Shell.
En við byrjum á geðheilsu. -
Það eru nokkrar blikur á lofti í efnahagsmálum og flest bendir til þess að verðbólga, sem mældist 5,1% í síðustu mælingu, verði ekki komin undir 4,95% í haust en það var viðmið sem var sett í kjarasamningana í hitteðfyrra. Samningarnir gilda út janúar 2028 og tvisvar á þeim tíma skal leggja formlegt mat á hvort forsendur haldi.
Í fyrsta sinn í sögu Danmerkur eru konur í meirihluta ríkisstjórnar. Ráðherraskipan nýrrar ríkisstjórnar var kynnt í morgun.
Mette Frederiksen verður áfram forsætisráðherra og Lars Løkke Rasmussen situr áfram í stóli utanríkisráðherra. Ráðherrarnir eru tuttugu og einn, þar af ellefu konur. -
Ný og viðamikil fjölþjóðleg rannsókn sýnir að
þess að um 1,2 milljarðar karla, kvenna og barna séu með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi nær tvöfalt fleiri en 1990. Geðræn vandamál eru algengari meðal kvenna en karla og þau leggist þungt á ungmenni. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir
ekkert af þessu koma á óvart og ríma ágætlega við þróunina hér.
Það tók næstum sjötíu daga að mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningar í Danmörku og Mette Frederiksen, leiðtoga jafnaðarmanna og sitjandi forsætisráðherra, tókst það eftir töluvert þóf. Hún gæti orðið þaulsetnasti forsætisráðherra Dana frá því í seinna stríði.
Lýðheilsustofnun Svíþjóðar hefur gefið út nýjar leiðbeiningar til foreldra um símanotkun og skjátíma barna. Símar verða bannaðir í skólum þar í haust og fleiri lönd íhuga að setja sambærilegar reglur. -
Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af.
Um 1.2 milljarðar Jarðarbúa, 1.200 milljónir karla, kvenna og barna, eru með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi. Það eru nær tvöfalt fleiri en 1990. Það þýðir að geðraskanir eru algengasta heilbrigðisvandamál samtímans. Þetta er meginniðurstaða viðamikillar rannsóknar sem birt var í læknatímaritinu Lancet á dögunum.
Bresk stjórnvöld birtu í dag skjöl í þremur bindum upp á um fimmtán hundruð síður með samskiptum sem tengjast sendiherratíð Peters Mandelsonsa í Bandaríkjunum. Ýmislegt í skjölunum er talið koma illa við Keir Starmer sem þegar sætir mikilli gagnrýni vegna skipunar Mandelsons. -
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt a Alþingi í dag. Það er því ljóst að atkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. Þangað til eru þrír mánuðir - við hverju getum við búist á þeim tíma? Yfirveguðum umræðum um það sem greiða á atkvæði um eða áframhaldandi skotgrafahernaður um kosti og galla ESB og aðildar að því? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum Evrópu og Evrópusambandsins.
Í Ituri-héraði í norðausturhluta lýðstjórnarlýðveldisins Kongó mætast sjúkdómar og átök með hörmulegum afleiðingum, sagði Tedros Ghebreyesus forstöðumaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í yfirlýsingu á X í gær. Engin lyf bíta á það afbrigði ebóluveirunnar sem nú geisar í nokkrum löndum Afríku, einkum Kongó. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Þórhildi Ólafsdóttur, sem býr með fjölskyldu sinni í Úganda.
Umsjón: Ævar Örn Jósespsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason - Visa fler