Avsnitt
-
Það er komið að þessu, allt sem þið vilduð og vilduð ekki vita um maraþonið í Stokkhólmi er hér þessum þætti. Sækið ykkur popp og kók eða skellið ykkur í göngu- eða hlaupatúr með þetta litla sæta podcast í eyrunum <3
-
Lauflétt að tékka hér inn og fór aðeins yfir grindarbotns tips á hlaupum. Bjargráð sem hægt er prufa sig áfram með en mæli alltaf með að fá sérhæfða aðstoð með grindarbotninn samhliða þessum ráðum. Langar að fara miklu dýpra ofan í allskonar svona, koma tímar - koma ráð <3
Takk fyrir ykkur!
-
Saknas det avsnitt?
-
Í þessum þætti fáiði að heyra hraksögur af mér á hlaupum og í maraþonþjálfun að mínútu 11:40. Þannig hægt að skippa beint þangað ef þið viljið sleppa við að hlusta á þær raunir.
Eftir það er ég að ræða um hreyfingu eftir meðgöngu, við fáum svo oft spurningar um hvenær best sé að byrja eftir fæðingu og hvað þurfi að hafa í huga.
Hér fæ ég að fara aðeins yfir það í bland við hvað gott sé að hafa í huga þegar byrjað er að æfa eftir meðgöngu og fæðingu. Bæði fyrst eftir og hvað við höfum í huga þegar við aukum álag smátt og smátt. Svo væri best í heimi að nýta þessi ráð í álagsaukningu áfram í lífinu hvort sem það er eftir meðgöngu og fæðingu eða ekki.TAKK FYRIR AÐ HLUSTA ELSKU BESTU ÖLL <3
-
Hér er ég bæði að tala um krefjandi styrktaræfingar, hlaup, hjól eða allar æfingar sem láta mikið álag á vöðvana.
Fékk aðeins að kafa ofan í þetta í bland við allskonar blaður og reynslusögur frá mér og fólkinu í kringum mig, þau vonandi fyrirgefa mér 😅
Ef þið eruð með einhverjar spurningar eða pælingar þá endilega hendið á mig í gegnum Vivus instagrammið og ég væri svo til í að heyra frá ykkur og um að gera að senda þennan þátt á einhvern sem þið vitið að hefði gagn af 💚
-
Fór aðeins yfir hér hvernig við getum útfært álag í æfingum eftir dögum og vikum. Ég hef bæði prófað að fara all in á æfingum 6 daga vikunnar og þar af leiðandi ekki hlustað á merkin frá líkamanum og hef líka æft mig í að hlusta á merkin frá líkamanum og get með mikilli vissu sagt ykkur að ég er töluvert sterkari, hraðari og líður almennt betur með því að hlusta. En það er síður en svo einfalt, fer aðeins yfir það hér í bland við allskonar blaður.
Endilega sendið á mig í gegnum instagram ef það eru einhverjar spurningar eða pælingar <3
https://www.instagram.com/vivusthjalfun/
-
Hér fáiði einn hráan þátt frá mér og örlitla kynningu á því sem mögulega koma skal 💚
Spjall um þetta podcast, hlaup og ferðalög helgarinnar.
VIVUS er æfingastöð og sjúkraþjálfun þar sem við brennum fyrir hreyfingu og það að gera fólki kleift að sinna þeirri hreyfingu sem það elskar.