Avsnitt
-
Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, fer yfir Borgarlínuverkefnið í heild.
Hvað er Borgarlínan? Hvaða vandamál á hún að leysa? Hvað kostar hún? Hvaða framkvæmdir fylgja henni? Af hverju á að fækka akreinum á sumum stöðum ef bílaumferð á samt eftir að aukast samkvæmt líkönum?
Við ræðum fyrstu lotuna, Suðurlandsbraut, áhyggjur íbúa og fyrirtækjaeigenda, þjóðarhöllina í Laugardal og stóru spurninguna um framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
-
Hildur Björnsdóttir fagnaði á dögunum stórafmæli á sama tíma og hún tók við sem borgarstjóri. Í glænýju hlaðvarpi Vísis ræðir Oddur Ævar Gunnarsson við Hildi um næstu skref í borgarstjórastólnum og en líka um æskuna og fjölskyldulífið. Síðasta kjörtímabil, meirihlutaviðræður og ósætti Miðflokksmanna auk fyrirhugaðra breytinga í borginni eru meðal þess sem fær að fljóta með.
-
Saknas det avsnitt?
-
Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.