Avsnitt
-
Í þessum síðasta þætti heimsækjum við fræðafólk og rithöfunda, þau Yrsu Þöll Gylfadóttur og Gunnar Theódór Eggertsson, sem þekkja Disney myndir bæði úr eigin æsku og barnanna sinna. Við förum um víðari völl en í síðustu þáttum en meðal þess sem á góma ber Disneyvæðing dýra og Disney drunginn. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
-
Í þessum þætti ætlum við að tala um ást, rómantík og jafnvel kynlíf við stjórnendur hlaðvarpsins Athyglisbrestur á lokastigi, þær Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og Lóu Björk Björnsdóttur. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
-
Saknas det avsnitt?
-
Í þessum þætti ætlum við að íhuga Disney illmenni, og hvernig þau öll, virðast meira eða minna, hinsegin. Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur á Leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnandi Fréttablaðsins lítur við. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
-
Í þessum þætti ætlum við að rýna í ósýnilegan en samt svo augljósan hluta fjöldamargra Disney mynda: fatlanir. Hvernig þær birtast og hvað þær þýða í grænum sjó og víðar. Gestir eru Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og barnabókahöfundur og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og baráttukona. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
-
Í þessum þætti hittum við Ragnar Eyþórsson, framleiðanda hjá KrakkaRÚV og skyggnumst með honum á bakvið tjöldin við framleiðslu Disney mynda. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.