Avsnitt
-
Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastinu sem er í boði Þvottahússins er engin annar en meistarinn Katrín Lilja Sigurðardóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafninu Sprengju Kata starfar dags daglega sem aðjúnkt í efnafræðikennari við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í allskonar íþróttum eins og hlaupi, hjólreiðum og sundi.
Katrín eignaðist sitt fyrsta barn aðeins sextán ára gömul sem þýddi að hún var í raun þrem árum á eftir í sinni mennta- og háskólagöngu. Engu að síður hélt hún ótrauð áfram þrátt fyrir að á námsárunum í HÍ hafi hún eignast tvö börn til viðbótar. Snemma á sínum háskólaárum snerist hún til kennslu; fyrst sem stundakennari og nú, tíu árum síðar er hún enn að. Nú sem kennari í almennri-, lífrænni- og ólífrænni efnafræði. -
Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastsinu er enginn annar er Jón Arnar Magnússon.
Jón Arnar er flestum landsmönnum kunnugur fyrir frækna frammistöðu á frjálsíþróttavellinum þar sem hann átti farsælan íþróttaferil sem spannaði yfir hartnær 20 ár. Á afrekaskránni hjá honum eru verðlaun á Íslands-, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramótum, auk þess að hafa verið kosinn íþróttamaður ársins í tvígang. -
Saknas det avsnitt?
-
Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er ferðfrumuðurinn Kolbrún Karlsdóttir.
Kolla eins og hún er kölluð er þó ekki bara ferðafrumuður í hefðbundnum skilning heldur er einnig um hugvíkkandi ferðalög að ræða. Kolla sem kynntist Ayahuasca fyrir mörgum árum síðan hefur tekið algjöra stefnubreytingu í lífi sínu síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í yfir 100 athafnir og upplifir að í gegnum það ferli hafi hún öðlast alveg nýja sýn á bæði sitt eigið líf sem og samfélagið sem hún tilheyrir.
-
Nýjasti gestur Alkastsins er forsetaframbjóðandi númer 15 af 18 að svo stöddu; Snorri Óttarsson.
Snorri er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku síðan 2007. Rétt fyrir kreppu fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borguðu aðeins 300 þúsund fyrir leigu á 20 feta flutningagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruni á íslensku krónunni. Snorri er menntaður húsasmiður en hefur svo í Horsens bætt við sig tveimur háskólagráðum. Hann hefur starfað við ýmislegt og verið mikið í akstri síðustu árin ásamt öðru.Snorri er mikil fjölskyldumaður og nefnir í viðtalinu að nú sé hann á landinu því faðir hann er mjög veikur á spítala um þessar mundir. Börn Snorra eru komin úr hreiðri að mestu leyti og munu því að öllum líkindum ferðast með honum á Bessastaði ef af því verður. Eiginkonan hans styður hann heilshugar og myndi líklega koma með og standa sína plikt sem hin íslenska first lady, enda vön álagi.
-
Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris.
Óskar Vann fjíögur ár í röð frá 2005 - 2008 sterkasti maður Íslands og keppti einnig í sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfyrði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þasr upplifði hann að vera talsvert á skjön og átti erfitt með að eignast vini og upplifði mikið einelti og þá einna helst því hann var þykkur í vextinum. Sem unglingur hóf hann störf hjá Landhelgisgæslunni og upplifði mikið áfall við björgun flutningarskipsins Víkartinds er gæsluskipið fékk á sig tvöfalt brot og lagðist bókstaflega á hliðini með þeim afleiðingum að lærimeistari hann Elli lést eftir alvarlegt höfuðhögg.
Óskar kynntist kraftlyftingum og sýndi þar mikla hæfileika og metnað. Hann óx fljót í metorði og lærði af mörgum af bestu kraftlyftingarmönnum Íslands. Í sinni síðustu lyftu á hans síðasta móti sem hann tók þátt í stórslasaðist hann og að eigin sögn bókstaflega murkaði á sér taugakerfið með þeim afleiðingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tímabil þar sem hann glímdi við allskonar verki og undarleg einkenni sem læknar áttu erfitt með að kortleggja en einn ráðlagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleiðingar í för með sér.
-
Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni.
Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. Hann stofnaði friðarsamtökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu samtökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tuttugu árum síðan. Hann hefur ítrekað boðið sig fram tl forsetaembættis síðan og þá með það að leiðarljósi að virkja embættið til friðar og sáttar í heiminum. Hann er knúin áfram af sýn sem segir aðÍsland verði miðpunktur friðar á jörðu og skapi þannig fordæmi fyrir viðleitni sem hann vill meina að sé í undanhaldi í alþjóða samskiptum.
-
Töframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis kom í Alkastið og lék listir sýnar.
-
Alkastið heldur innreið sína á hljóðvarpsmakraðinn áfram. Að þessu sinni settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleiðaranum og orkuheilaranum Söru Pálsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í viðtal hjá Gunnari því að á tímum Þvottahússins mætti hún tvisvar í viðtal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þessu sinni átti að taka örlítið annan pól í hæðina og sjá hvort væri hægt að dáleiða Arnór og tengja hann aftur við fyrra líf. Arnór komst að því að hann var eitt sinn með hárkollu og í froðuskyrtu að meika bökk í suður franskri hafnarborg árið 1700 og súrkál.
-
Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti.
Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðilinn DV sem bætist við Mannlíf sem hafa staðið á bakvið Þvottahúsið og nú Alkastið síðan að Marta á Smartland kanselaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum.
Kannabis, sveppir, fljúgandi furðuhlutir, swingmenningin, butplugs, slaufun og margt fleyrra í þessum þætti. -
Í nýjasta Alkastinu settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Guðrúnu Bergmann og ræddu við hana um heima og geima. Guðrún hefur um árabil verið áberandi í íslensku samfélagi sem frumkvöðull, lífsstílsráðgjafi, uppreisnarseggur og almenn heilsuvera.
Spjallið hófst á umræðu úr öðrum heimi, nánar tiltekið á heimsókn vera úr öðrum heimi til Íslands árið 1993, en þá höfðu verur af öðrum heimi boðað komu sína á Snæfellsnes. Fjöldi fólks lagði leið sína þangað til þess að verða vitni að opinberuninni, en því miður, létu geimverunar ekki sjá sig meðal almennings. Guðrún hefur það hins vegar eftir áreiðanlegum heimildum að geimverur hafi mætt á svæðið en út af umstangi og uppþoti í kringum mannskapinn sem hafði safnast þarna saman hafi þær aðeins opinberað sig fyrir fáum útvöldum.
Heimsóknir af þessu tagi eru hins vegar langt því frá að vera nýjar af nálinni. Í mörg þúsund ár hafa verur úr öðrum heimum lagt leið sína til Jarðarinnar og birst mannkyninu í alls kyns myndum. Allt frá tímum Forn-Egypta eru heimildir fyrir heimsóknum og samskiptum við verur frá öðrum heimum. Flestar þessara vera koma hingað til Jarðarinnar í friðsamlegum tilgangi en það er alls ekki algilt. Til eru hryllingssögur af fólki sem segist hafa verið brottnumið af geimverum og meðhöndlað eins og ómerkileg tilraunadýr.
-
Alkastið er nýjasta afsprengi hlaðvarpssamsteypunar Þvottahúsið. Alkastið sem samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium og Arnóri Jónssyni ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.
Nýjasti gestur Alkastins er Jana Napoli. Janna, 77 ára kona frá New Orlens sem frá tólf ára aldri hefur lesið í lófa. Hún segir í viðtalinu hvernig hún fyrir rælni rakst á bók þar sem lófalestur var útskýrður og um leið fann hún að ekki væri aftur snúið. Hún segir að hendurnar segja til um hver þú ert í raun og veru, eins og gluggi inn í sálina. Hún segir að fljótlega eftir getnað byrjar ferli í lófa og fingrum sem lýsa sér þannig að línur myndast sem segja til hvaðan þú ert að koma. Smátt og smátt eftir því sem aldurinn færist yfir bætast svo við einkenni sem kannski er hægt að lýsa sem afleiðing félagslegrar mótunar.
-
Eftir fjögura mánaða þunglyndi, kulnum, covid, þráhyggju og myrkur er Þvottahúsið snúið aftur. Það má með sönnu segja að bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum forsendum og snúið tvíefldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breytast.
Nýjasti gestur bræðrana er engin annar en vísindamaðurinn Egill Sæbjörnsson sem hefur verið búsettur í Berlín í ein tuttugu ár þar sem hann hefur starfað við sín vísindastörf tvinnuð í opnu flæði listsköpunar. Egill hefur komið til þeirra bræðra áður í Þvottahúsið, hann kom í þátt nr 34 sem tónlistar og listamaðurinn Egill S. og svo í þátt nr 95 sem Egill S. hin óáræðanlegi.
Nú er hins vegar allt annað upp á teningnum, Egill er svo langt frá því að vera óáræðanlegur í þetta skiptið enda eru engum vettlingartökum beitt í þættinum þar sem þeir kryfja mál sem snýr að grundvallarhugmyndum mannsins um sjálfan sig, tilgang sinn og örlög. Hver erum við og hvert erum við að fara, hvaðan erum við að koma og átti það sér stað einhverjum byrjun og er það einhver endir? -
Nýjasti gestur Þvottahússins sem er einnig 100ðasti gestur Þvottahússins er engin önnur en markþjálfinn, nándarinn, snertarin Matilda Gregersdotter.
Matilda og maðurinn hennar sem eiga fjögur börn saman tóku þá djörfu ákvörðun fyrir um 14 árum síðan að stunda kynlíf saman á hverjum degi.
Þau hafa haldið það út æ síðan með fáum undantekningum ef einhver er veikur eða erlendis.
Þessi samheldnin og stöðuga nánd þeirra á milli hefur ekki bara gjört breytt hjónabandinu og þeirra samskiptum heldur hefur Matilda náð að beisla vissri stjórn á kynorkuflæði líkamans og segist upplifa stöðugt visst streymi kynorku og geti með hugsun einni saman sett af stað fullnægingar af mismunandi styrkleikum.
Matilda ásamt að vera frumkvöðull á svið markþjálfunar á Íslandi heldur einnig hina ýmsu events tengt snertingu og nánd.
-
Nýjasti gestur Þvottahússins er engin annar en sjálfskilgreindi foréttindarhomminn og fulltrúi svokallaðs feðraveldis, sjálfstæði greina og pistlahöfundurinn og aktivistinn, Eldur Deville. Eldur er búin að vera gríðarlega áberandi í umræðunni um hinsegin heiminn sem hann vill meina að sé að mestu leiti á ranghugmyndum byggður. Hann er harður gagnrýnandi úrræða sem snúa að kynjaleiðréttingu barna og unglinga. Hann vill meðal annars meina að kynþroskabælandi lyf sem almennt kallast “Blokkerar” stöðvi ekki einungis líkamlegan þroska heldur einnig andlegan þroska.
Þetta er eldheitt viðtal um viðkvæmt málefni sem nauðsynlegt er að taka umræðuna um og þá sérstaklega í ljósi fáfræði flestra og meðal annars þáttarstjórnendana Gunnars og Davíðs. Það skal einnig tekið fram að í kjölfar upptöku þessar þáttar leitaðist Þvottahúsið ítrekað eftir viðtali við transeinstakling og þá eftir persónulegum leiðum ásamt að leitað var til samtakana 78 en án árangurs. Engin vildi hreinlega mæta og þá helst á þeim rökum að umhverfið (þvottahúsið) taldist “fjandsamlegt” og að handritið sem gert hafði verið fyrir það viðtal fannst einkennast af fáfræði, fordómum og hatursorðræðu. Svo lengra náði sú umræða ekki og byrjar því og endar á þessu viðtali við hann Eld Deville.
-
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er Vilmundur Möller Sigurðsson, rafeindarvirkjameistari, whistleblower og dýnuhvíslari.
Vilmundur uppgvötvaði fyrir að um 5 árum að heilsudýnan sem hann hafði keypt dýrum dómum árið 2006 væri í raun alvarlega heilsuspillandi. Hann var farin að glíma við alvarlega heilsukvilla á við krónískir verkir um allan líkama, sár og útbrot, hárlos, bólgur og gigt, hann var komin með kæfisvefn og ofsasvita, stöðug síþreyta og draugverkir sem færðust til um líkaman í að virtist algjöru samhengisleysi.
-
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Daíviðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er hann Ágúst Kristján Steinarsson stjórnunarráðgjafi, tónlistarmaður, fyrirlesari og rithöfundur. Ágúst er með langa sögu af geðkvillum sem og baráttu við krabbamein sem leiddi til þess að ristillinn var fjarlægður og er hann með stómu í dag.
Í viðtalinu fer hann yfir sögu sína af geðrofum sem hann hefur þurft að ganga í gegnum. Þessi geðrof hafa leitt hann í maníur með þeim afleiðingum að hann hefur þurft að sæta sjálfræðissviptingum og þvinglyfjunum af hálfu geðheilbirgðiskerfisins.
-
Nýjasti gestur bræðrana Gunars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsinu er engin annar en kokkurinn, lífskúnstnerinn, alkinn og fyrrum áhrifavaldstvíterinn Gústi Chef Eyrúnarson.
Gústi er óvirkur alki og því ansi kontraversialt þegar hann svo fer að færa sig yfir notkun á hugvíkkandi efnum.Það fór að bera á umræðu í umhverfi Gústa tengt hugvíkkandi efnum. LSD, Mescalin, DMT, Psilosobin, Auyaska. Fyrstu viðbrögð hans voru algjör nei, nei. Gunnar spyr hann út þessi viðbrögð, viðhorf og þessa fordómq innan edrú samfélagsins og hann Gústi segir að hann taki eftir og sjái þessi skilaboð sem þá aðalega koma frá SSÁ eða meðferðarbatteríinu almennt um að hinir og þessir triggerar séu eitthvað sem mun setja alkahólistan á hliðina. Það hélt hann með þessi efni eins og sveppinn, að hann myndi fara á hliðina og detta íða við að fara þessa leið.
-
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í þvottahúsinu er engin annar en listamaðurinn Egill Sæbjörnsson. Egill kom til bræðrana fyrir rúmu ári síðan í þátt nr 34. Þar fóru þeir í söguna hans Egils sem leiddi hann að hinni kjöthráu raf rokks plötu Tonk of the lawn sem kom út um síðustu aldarmót. Platan Tonk of the lawn er án efa einn af mestu kult plötum Íslands. Hljómurinn kom hrár eins og ljónsöskur eftir margra ára bælingu og fjötrun. Þessi einlæga plata er án efa ein sú frumlegasta og sjálfbærasta sem komið hefur út í manna minnum hér á landi.
í þessum þætti hinsvegar var farið örlítið öðruvísi að viðmælandanum en gengur og gerist hjá bræðrunum í Þvottahúsinu. Handrit þáttarins byggði Gunnar út frá texta lagsins “Im not 100% reliable” sem er lag nr. 4 á plötunni Tonk of lawn. En út frá textanum náðu þeir svo að spinna hálf samhengislaust klukkustundar langt spjall um heima og geima.
-
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er engin annar en Guðmundur Fylkisson lögreglumaður til margra ára og aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitt af merginverkefnum Guðmundar er að sinna leit að einstaklingum, einna helst ungmennum. Í gegnum árin hefur þú einnig sinnt samningaviðræðum fyrir hönd sérsveitarinnar, til dæmis þegar einstaklingar eru í sjálfsvígshugleiðingum. En í 8 ár hefur hefur hann sinnt málaflokk sem snýr að börnum og ungmennum í stroki. Verkefnið sem hófst sem eins árs tilraunaverkefni í nóvember 2014 er nú orðið fast verkefni, þar sem hann sinnir einn leitinni, en hefur sér til aðstoðar lögregluna í heild sinni.
- Visa fler