Avsnitt
-
Hún Elín fæddi litla strákinn okkar síðastliðið laugardagskvöld. Vegna skorts á almennilegum svefni og hvað eina þá er heilinn minn ekki almennilega fúnkerandi. Ég reyndi að taka upp en það gekk alls ekki. Þannig ég fer í smá pásu, hversu löng sem hún er, þangað til heilinn minn er kominn aftur í almennilega virkni. Vonandi verður þetta bara vika en ef það verður eitthvað lengra þá verður það vonandi ekki langt. Svefninn batnar með hverjum deginum og allt er að komast í rútínu. Gunnari Loga líður vel, hann sefur vel og drekkur vel svo þetta lítur allt saman ljómandi út.
-
Í þessum þætti fer ég dýpra inní saumana á stjörnukortinu. Ég fer yfir hvernig pláneturnar virka í breytileika sínum í gegnum merkin, ég fer mun betur út í húsin og hvernig þau virka. Ég tek sálina ögn fyrir og að lokum fer ég aðeins yfir hvernig rísandinn og hnígandinn virka.
-
Saknas det avsnitt?
-
Í þessum þætti tek ég stjörnukortið fyrir og hvaða breytur eru til staðar í því sem gerir stjörnukort hvers og eins svo sérstakt og öðruvísi. Ég fer yfir ríkjandi plánetur merkjanna og tek þar merki nautsins og meyjunnar sérstaklega fyrir og kynni þær plánetur, jörðina og Ceres, sem ég tel að séu plánetur þessara merkja. Ég kynni húsin ögn fyrir hlustendum sem og afstöður sem plánetur mynda á milli sín.
Að lokum tek ég fram hve gífurlega mikilvægt það sé að vera með nákvæman fæðingartíma og fyrir einstaklinga sem fæddir eru í reykjavík að þá getið þið sent tölvupóst á [email protected] en fyrir þá sem eru fædd á landsbyggðinni þá ætti að nægja að hringa á spítalann eða fæðingarheimilið þar sem þið voruð fædd.
-
Í þessum þætti tek ég í byrjun fyrir viss atriði sem mér þykir mikilvægt að skilja hvað stjörnuspekina varðar. Eins og að pláneturnar skipti ekki öllu máli þegar kemur að stjörnuspekinni og að margir aðrir þættir, eins og sálarstaðan, skipti enn meira máli.
Síðan tek ég öll frumefnin fyrir og fer yfir hvernig hvert og eitt merki innan hvers frumefnis er mikilvægt til þess að án fullri virkni í því frumefni.
-
Í þessum þætti fjalla ég um frumefnið vatn og hvernig birtingarmyndir þess eru breytilegar í gegnum vatnsmerkin: krabbann, sporðdrekann og fiskinn.
Fyrirspurnir sendist á:
-
Í þessum þætti fjalla ég um frumefnið jörð og hvernig birtingarmyndir þess eru breytilegar í gegnum jarðarmerkin: nautið, meyjuna og steingeitina.
Einnig tek ég fram email sem hægt er að senda fyrirspurnir á
-
Í þessum þætti útskýri ég hvað frumefnin eru og hvernig er hægt að notast við þau og nýta þau sjálfum sér til góðs. Síðan fer ég yfir frumefnið loft og hvernig það birtist í merkjum loftsins; Tvíburanum, Voginni og Vatnsberanum. Ég styðst einnig við frumefni eldsins sem og merki eldsins til frekari útskýringa.
-
Í þessum þætti fer ég yfir frumefni elds. Ég tek eldin fyrir og síðan útskýri ég fjölbreytileika eldsins í gegnum merki eldsins: hrútinn, ljónið og bogmanninn. Ég styðst örlítið við frumefni loftsins til þess að gera eldinum skil.
-
Í þessum þætti tek ég fyrir andstæður og hvernig þær geta kennt okkur að skilja og rannsaka orku stjörnuspekinnar á ennþá dýpri og merkilegri vegu. Öll orka á sér tvo póla, heitt og kalt, bjart og dimmt, gott og slæmt, jákvætt og neikvætt. Öll orka og þar af leiðandi öll merkin, sem og frumefni, eiga sér andstæðu og galdrarnir í að skilja hvernig þessi orka er liggja í að átta sig enn betur á andstæðum og hvernig þær virka.
Í þessum þætti tek ég dæmi í frumefnunum jörðu og vatni sem og í stjörnumerkjum hrútsins og vogarinnar.
-
Í þessum þætti fer ég yfir hvernig ég skil orkuna sem égfinn og upplifi í gegnum stjörnuspekina. Orka er eilíf, hún hvorki minnkar né stækkar, hún breytir einungis um form. Orka gengur í hringi og er á stöðugri hreyfingu. Þessi þáttur er um þessa hringrás orkunnar og í gegnum þessa hringrás lýsi ég þar með stjörnumerkja hringnum og hvernig eitt merki tekur viðaf öðru.
-
Farið er yfir grunninn sem mótar þá vestrænu stjörnuspeki sem ég kenni hér í þessu podcasti en einnig hvað stjörnuspekin er þá ekki. Velt er vöngum yfir uppruna stjörnuspekinnar sem og hvort það sé hugsanlegt að pláneturnar í okkar sólkerfi hafi einhver áhrif á okkur manneskjurnar hér á jörðinni eða jafnvel stjörnurnar uppi á himni.
-
Stutt kynning á mér og af hverju mig langar að vera með þetta podcast og kenna stjörnuspeki.