Avsnitt
-
Saknas det avsnitt?
-
Landráðskæran: Arnþrúður og Pétur ræða við Arnar Þór Jónsson, lögfræðing, um þá kæru sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra stendur frammi fyrir í dag. Arnar Þór Jónsson lögmaður hefur lagt fram kæru þess efnis til ríkislögreglustjóra í morgun, fyrir hönd hóps fólks sem kallar sig Þjóðfrelsi. Kæra beinist að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þar sem hún er framsögumaður frumvarps til laga um Bókun 35. Í kærunni kemur fram að Þjóðfrelsi telur að bókun 35 brjóti gegn ákvæðum Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins og feli í sér fullveldis brot og framsal dómsvalds úr landi. - 13. júní 2025
-
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðmund Karl snæbjörnsson lækni eða Kalla Snæ eins og hann kallar sig. Það eru stórtíðindi í gangi sem verða rædd í þættinum. En Guðmundur Karl hefur verið sviptur læknaleyfi fyrir að tjá skoðanir sínar á opinberum vettvangi og því haldið fram að hans kenningar um Covid-19 hafi ekki verið byggðar á vísindalegum rannsóknum. Þau munu ræða þetta alvarlega mál sem er sýnishorn af því sem koma skal hér á Íslandi þar sem með valdnýðslu er verið að taka tjáningarfrelsið af fólki - Þarna er um alvarlegt tjáningarfrelsis brot að ræða og tilraun til þöggunar---- Málið verður rætt og opnað verður fyrir símann þegar líður á þáttinn og hlustendur geta komið með spurningar fyrir Guðmund Karl. -- 12.juní 2025
-
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðmund Ólafsson hagfræðing um húsnæðismálin, sjávarauðlindir og vísindalygar. -- 11. júní 2025
-
Stjórnmálaumræðan: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Ingu Sæland félags- og húsnæðisráðherra um helstu mál sem hafa komið til hennar kasta í ráðuneytinu. -- 3. júní 2025
-
Sjómannadagurinn - Arnþrúður Karlsdóttir og Gylfi Æisson sjómaður og tónlistarmaður
-
Síðdegisútvarp: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Arndísi Hauksdóttur prest og Ingu Traustadóttur sem hafa búið um árabil í Noregi og Svíþjóð og segja frá upplifun sinni á breytingum sem urðu í báðum löndum vegna mikillar ásóknar innflytjenda. - Þá verður rætt um útifundinn á Austurvelli á laugardaginn n.k. vegna kröfu til stjórnvalda um harðari aðgerðir á landamærum Íslands.
-
Stjórnmálaumræðan: Kristján Örn ræðir við nýja forráðamenn Sósíalistaflokksins þá Trausta Breiðfjörð Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúa og Sæþór Benjamín Randalsson formann framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins. -- 27. maí 2025
-
Stjórnmálaumræðan: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, um ýmis mál sem hann hefur látið til sín taka á síðustu misserum. Fara þau yfir landamæramálið, brottvik Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á suðurnesjum og Helga magnúsar Gunnarssonar vara-saksóknara, útlendingamál og ESB sem eru öll í hámælum í dag. -- 27. maí 2025
-
Arnþrúður ræðir við Baldur Borgþórsson um fíkniefni, ofbeldi, sveðjur og hnífastungur. -- 26. maí 2025
-
Mál Úlfars: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Pál Vilhjálmsson blaðamann og bloggara um mál Úlfars Lúðvíkssonar, lekamál lögreglunnar og RÚV. -- 26. maí 2025
-
Lögreglustjórinn og stjórnmálin: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðing um helstu fréttamálin, Mál lögreglustjórans á Suðurnesjum og stjórnmálin. -- 23. maí 2025
-
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræða við Harald Ólafsson, prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, um Evrópusambandið. -- 22. maí 2025
-
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Harald Ólafsson prófessor og formann Heimssýnar um Evrópusambandið og bókun 35.
-
Stjórnmálaumræðan: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarsson þingmann sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra um stjórnmálin í dag. -- 22. maí 2025
-
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Björn Jón Bragason, lögfræðing og sagnfræðing, um uppgjör við eftihrunsmálin og lekamálið. -- 20. maí 2025
- Visa fler