Avsnitt
-
Þriðjudagurinn 21. maí
Forsetakosningar og stúdentauppreisn
Forsetakosningarnar setja sitt mark á þátt kvöldsins. Fyrst koma þau Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld og blaðamaður, Ásgeir Friðgeirsson PR-maður, Guðmundur Andri Thorsson rit- og pistlahöfundur og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og fyrrum blaðakona og ræða kosningabaráttuna frá ýmsum sjónarhólum. Jón Gnarr forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hann á við þegar hann segist vilja beita sér gegn leiðindum. Við sláum á þráðinn til Ísabellu Lenu Borgarsdóttur í Nijmegen í Hollandi þar stúdentar hafa reist tjaldbúðir á háskólalóðinni til stuðnings Palestínu. Og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hún á við þegar hún segir að forseti verði að standa gegn þeim sem eiga og ráða. -
Þeir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson blaðamaður, Aðalgeir Jóhannsson netagerðanmaður og Magnús Gunnarsson trillukarl eruí hópi örfárra íbúa sem sem enn gista í Grindavík og hafa engin áform uppi um að gefast upp. Þeir eru mjög ósáttir við margt og ræða hispuslaust tilfinningar sínar pg skort sem þeir upplifa á mannlegu viðmóti í samtali við Björn Þorláks.
-
Saknas det avsnitt?
-
Laugardagurinn 18. maí
Helgi-spjall: Harpa Njáls
Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna. -
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Guðrún Þórsdóttir stjórnarkona í Geðhjálp, Svavar Halldórsson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Scheving höfundur, leikari og framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, tröllum og tilfinningalegum gusum, grimmd gagnvart flóttakonum, bókabrennum og stríðum.
-
Fimmtudagurinn 16. maí
Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta. -
Miðvikudagurinn 15. maí
Heima er bezt - Bjarki Bjarnason
Mosfellingurinn Bjarki Bjarnason, rithöfundur og sagnamaður, er gestur Sigurjóns í þættinum Heima er bezt. Þeir ræða stríðsminjar, sögur af Halldóri Laxness og margt fleira. Tveir sagnamenn að segja sögur. -
Miðvikudagurinn 15. maí:
Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
Við byrjum á umræðu um forsetakosningarnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Björn Þorláksson og Sigurjón Magnús Egilsson, gamalreyndir blaðamenn koma að Rauða borðinu og fjalla um kosningabaráttuna. Bjarni Snæbjörnsson leikari setti upp leikrit um eigin för sín út úr skápnum, Góðan daginn Faggi. Nú hefur hann skrifað bókina Mennsku um sama efni. hann segir okkur sína sögu. Í þinginu er frumvarp um breytingar á húsaleigulögum. Bjarni Þór Sigurðsson formaður húsnæðisnefndar VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina frumvarpið út frá hagsmunum leigienda og almennings, en frumvarpið er mest sniðið að hagsmunum leigusala. Kennararnir Maria Sastre og Marta Wieczorek búa í Breiðholti og eru þar menningarsendiherrar. Þær segja okkur frá hverfinu sínu og þeim breytingum sem það gengur í gegnum. -
Þriðjudagur, 14. maí
Með á nótunum - 98
Það var farið yfir Eurovision sem er nýafstaðin og má segja að hún hafi ekki vakið mikla lukku. Þáttastjórnendur tóku kosningarprófið. Mataræði og heilsa kom mikið við sögu og Mannanafnanefnd. Óvæntur alheimshittari varð til þökk sé Sylvester Stallone og Steve Buscemi fékk óvænt kjaftshögg og kvikmynda og þátta meðmælin eru á sínum stað. Þetta er aðeins lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum. -
Þriðjudagurinn 14. maí
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimur
Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu. -
Frelsið er yndislegt, þriðjudaginn 14. maí
Fjármálaóreiða og skuldafen fanga
Í þættinum er sjónum beint að skuldavanda þeirra sem koma í fangelsi og mikilvægi þess að tekið sé til í fjármálum dómþola áður en þeir snúa aftur út í samfélagið. Reynsla í nágrannalöndum okkar hefur enda sýnt að ef ekki sé tekið á fjármálaóreiðu einstaklinga sé líklegra að þeir snúi á ný í fangelsi. Ástæður þess og hugsanlegar lausnir eru til umræðu í þætinum.
Gestir þáttarins eru Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, Sigurður Ingi Jónasson, garðyrkjumaður og fyrrverandi fangi og Bjarki Magnússon, lögfræðingur sem fer fyrir Lögfræðiaðstoð Afstöðu.
Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900 og Lögfræðiaðstoð Afstöðu í síma 666-1211. -
Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí
Andrými
Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar, frelsis, jafnréttis og gagnkvæmrar hjálpar. Jakob Beat Altmann, Elías Snær Einarsson og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir segja okkur frá Andrými. -
Mánudagurinn 13. maí
Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
Hagráð verkalýðsins kemur að Rauða borðinu: Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og Stefán Ólafsson sérfræðingur Eflingar taka stöðuna á vaxta stefnu Seðlabankans og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og velta fyrir sér hvort forsendur kjarasamninga muni halda. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust saman á þing fyrir 25 árum, árið 1999. Björn Þorláks fær þær í heimsókn í Þingið og líka tvo blaðamenn sem nýverið réðu sig í þjónustu þingflokka; Atla Þór Fanndal starfsmann Pírata og Sunnu Valgerðardóttir starfsmann Vg. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir varnar- og öryggisstefnu stjórnvalda út frá yfirlýsingum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. -
Sjávarútvegsspjallið, mánudaginn 13. maí
Hafrannsóknir á Íslandi
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Arnar Atlason, Árni Sveinsson og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) sem munu ræða hafrannsóknir á Íslandi og íslenska kvótakerfið. Þáttarstjórandi er Grétar Mar Jónsson. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessu sinni koma þau Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sunna Sæmundardóttir fréttakona og Viðar Eggertsson leikstjóri og ræða vexti, forseta, söngvakeppni, pólitík og samfélagsmál. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ragnhildi Helgadóttur rektor í spjall um valdsvið forsetans og hversu mikið megi teygja það og toga.
-
Gestur þáttarins er Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju. Hann kom í þáttinn til að ræða við Kristin um eðli trúar, sem hægt er að skoða bæði trúarlega, sálfræðilega og heimspekilega. Er kristnin með góða nálgun við þetta óræða eitthvað sem við köllum guð? Eru trúarbrögðin viðbrögð við meðvitund um takmarkanir tungumáls og skilnings? Þetta varð flókið og skemmtilegt spjall ólíkra huga.
-
Laugardagurinn 11. maí
Helgi-spjall: Fida
Fida Abu Libdeh er frumkvöðull, palestínskur Íslendingur, sem ólst upp í Jerúsalem en kom hingað ung kona. Hún segir okkur frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótun, reynslu hennar sem innflytjandi á Íslandi og hvernig henni tókst að yfirvinna margvíslega erfiðleika. -
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjóri og ræða fréttir vikunnar sem voru markaðar af baráttunni um Bessastaði, af þjóðarmorði á Gaza, háum vöxtum og deilum um frammistöðu fjölmiðla og stjórnmálafólks.
-
Miðvikudagur 8. maí
Heima er bezt - Helgi Pétursson
Helgi Pétursson tónlistarmaður og formaður Landssambands eldri borgara er gestur í Heima er bezt að þessu sinni. Barátta fyrir hagsmunum eldra fólks á hug hans allan. Auk þess að ræða um þá baráttu verður einnig talað um árin hans í Ríó tríóinu og sorgleg endalok þeirrar sveitar. -
Miðvikudagurinn 8. maí:
Vextir, kynlaust mál og samfélagsmál við eldhúsborðið
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins er agndofa yfir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti. Hann hvetur til fjöldamótmæla við Seðlabankann. Við fáum Völu Hafstað, umtalaðasta greinahöfund dagsins, til okkar en hún hafnar kynhlutleysi íslenskunnar. Í lokin fáum við hjónin Helgu Völu Helgadóttur og Grím Atlason og dóttur þeirra, Ástu Júlíu Grímsdóttur körfuboltakonu, til að segja okkur frá hvernig rætt er um samfélagsmál við eldhúsborðið á þeirra heimili, til dæmis hvernig þar er nú rætt um forsetakosningar. - Visa fler