Avsnitt
-
Saknas det avsnitt?
-
Fimmtudagurinn 27. júní
Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg talar um stöðu flokksins, rætur hans og framtíð. Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata ræða um húsnæðismál og einkum leigumarkaðinn. Tjörvi Schiöth fjallar um Bólivíu, Ísrael og Bandaríkin og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og Mörður Árnason íslenskufræðingur fjalla um franska pólitík. -
Miðvikudagurinn 26. júní:
Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list
Við ræðum við Eirík Bergmann um vopnvæðingu samsæriskenninga, nýja hægrið og könnun Maskínu sem mælir Sjálfstæðisflokkinn með 14,7% fylgi. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir okkur hvers vegna grásleppa var kornið sem fyllti mælinn og fékk hana til að ganga úr Vg. Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir að lagaskyldu sé ekki sinnt þar sem nemendur í grunnskólum fái ekki þá menntun sem þeim ber samkvæmt lögum. Steinunn Gunnlaugsdóttir er með sýningu í Gluggagallerínu Stétt og kemur að ræða hana við Rauða borðið ásamt Jóni Proppé listfræðingi. Er listin að verða pólitískari? -
Fimmtudagur, 26. júní
Sjávarútvegsspjallið - 11. þáttur
Grétar Mar ræðir við þá Jón Kristjánsson fiskifræðing og Jónas Pál Jónasson frá Hafrannsóknarstofnun -
Þriðjudagurinn 25. júní
Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni
Við byrjum á pólitísku uppgjöri. Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og Sjálfstæðisflokksmaður, Sigmundur Erni Rúnarsson blaðamaður, skáld og Samfylkingarmaður, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokks Vg og Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins ræða pólitíkina, um hvað hún er og hvert hún stefnir. Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur ræðir um Ríkisútvarpið og skort á stefnu þar innandyra. Og Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir okkur frá vinnukonunni Guðrúnu Ketilsdóttur, sem kölluð var Gunna suða, og stórbýlinu Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem Ragnheiður Scheving stýrði búi. -
Þriðjudagur 25. júní
Frelsið er yndisleg - #11 Fangelsaðir foreldrar og börnin þeirra
Í þessum seinasta þætti af Frelsið er yndislegt fyrir sumarfrí, er fjallað um fangelsaðra foreldra sem og um hlið barnanna. Gestir þáttarins eru þau Selma Dögg, sem nýlega vann að rannsókn um málefni fangelsaðra feðra, Eiríkur, fjölskyldufræðingur hjá Bjargráði og Birna, aðstandandi. Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
Frelsið er yndislegt snýr svo aftur í haust.
Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211. -
Mánudagurinn 24. júní
Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og Tjörvi Schiöth doktorsnemi ræða stríðið í Úkraínu og skuldbindingar Íslands gagnvart því. Eru stjórnvöld að grafa undan öryggi landsins með stefnu sinni? Í síðasta Þingi Rauða borðsins fyrir sumarfrí verður farið yfir umdeild þingmál sem fóru í gegn á lokametrum vorþingsins. Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi fara yfir stöðuna. Sólveig Ólafsdóttir doktor í sagnfræði segir okkur frá ritgerð sinni: Eitt hundrað og eina sögu af jaðri samfélagsins, sem fjallar um fatlað fólk í sögunni. -
Sunnudagurinn 23 . júní:
Synir Egils: Þinglok, goslok og endalok sumra flokka
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri, Brynjar Níelsson lögmaður og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða stöðu ríkisstjórnar og stjórnmálaflokka í þinglok, afgreid og óafgreidd mál á Alþingi, togstreitu í samfélaginu og átök. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni. -
Grimmi og Snar #18, 20. júní
Ef þú sérð ekki skuggann þinn sjá aðrir hann betur 👹🤴🏽👰♂️
Donatella Versace og þegar djöfullinn reyndi að giftast kóngsdóttur. Hasar og kaos í hámarki -
Laugardagurinn 22. júní
Helgi-spjall: Guðrún Hallgríms
Gestur okkar í Helgi-spjalli er Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur sem segir okkur frá Rauðsokkum, þörungum, Austur-Þýskalandi, sínu fólki , uppvexti og mótun, hugsjónum og harmi. -
Föstudagur 21. júní
Heimsmyndir - Óli Stef
Handboltahetjan Óli Stef kom í þáttinn að ræða heimspeki hugvíkkandi efna. Er tilveran ein vitund að máta við sig upplifanir? Eða eru hugvíkkandi efni bara grautur af bulli sem endurspeglar helst skapgerð þess sem þau tekur? -
Föstudagurinn 21. júní
Vikuskammtur: Vika 25
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Björgvin Þór Þórhallsson kennari, Jovana Pavlović mannfræðingur, Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Zúzanna Korpak nemi í hagnýtri siðfræði og þjálfari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af þinglokum, hraunrennsli, þjóðhátíð og pólitískum átökum. -
Fimmtudagurinn 20. júní
Bretland, mannúð, sagnaskemmtun og Gaza
Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR og Sveinn Máni Jóhannesson nýdoktor er hjón og áhugafólk um pólitík, ekki síst bresk stjórnmál. Þau ræða við okkur um komandi kosningar. Sigrún Steinarsdóttir sálfræðingur hlaut nýverið fálkaorðuna fyrir framlag til mannúðarmála. Hún berst gegn fátækt sem hún segir vaxandi vanda. Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur safnaði textum almennings í bók sem hún kallar Bragðaref, syrpu af kræsingum til að hafa sem húslestur. Í lok þáttar kemur Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði og ræðir ástandið í Palestínu og Ísrael. -
Miðvikudagurinn 19. júní:
Stjórnarandstaðan, Argentínuforseti og fæðingarorlof
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir ræðir ítarlega hlutskipti stjórnarandstöðunnar á tímum óvissu og sundrungar. Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor segir okkur frá Javier Milei forseta Argentínu, stefnu hans og andstöðunni við hana. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skólastjóri leikskólans á Holti ræðir við okkur um fæðingarorlof, umönnunargatið og stöðu barnafjölskyldna. -
Þriðjudagurinn 18. júní
Biðlistar, Úkraína, Frakkland og blessuð sagan
Hólmsteinn Bjarni Birgisson húsamálari segir okkur frá reynslu sinni af biðlistum eftir sérfræðilæknum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá varnarsamningi Íslands og Úkraínu, stöðunni á vígvellinum og friðarsamningum. Torfi H. Tulinius prófessor ræðir um pólitíska upplausn í Frakklandi. Sigurður Gylfi Magnusson prófessor segir okkur frá hinni stórkostlegu ritröð: Sýnishorn íslenskrar alþýðumenningar, þar sem lesa má um persónur sögunnar sem ekki sjást í öðrum sögum. -
Laugardagurinn 15. júní
Helgi-spjall: Þorvaldur Þórðarson
Í Helgi-spjall kemur Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur og segir sína sögu en líka sögu Íslands og jarðarinnar í gegnum eldgos og alls kyns hræringar. -
Föstudagur 14. júní
Heimsmyndir - Heiða Eiríks
Heiða Eiríksdóttir (Heiða í Unun) kom í þáttinn að ræða fyrirbærafræði. Um hvað er þessi dulúðlega grein heimspekinnar? Heiða er í doktorsnámi í heimspeki og er hafsjór af fróðleik um þetta áhugaverða svið greinarinnar. -
Föstudagurinn 14. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi, Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi og Róbert Marshall fjallamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum hrossakaupum, mótmælum og klassískum deilumálum, stríði, leit að vopnahléi og sveiflu til hægri. -
Grimmi og Snar, 13. júní
Hefur sá sem spyr valdið? 🧐
Í Grimma og Snar dagsins spyr Estrid Þorvaldsdóttir Ingibjörgu Magnadóttur mjög mikilvægra en erfiðra spurninga 🤯🥵😳 - Visa fler