Avsnitt
-
Sunnudagurinn 22. júní
Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þeir Helgi Seljan blaðamaður, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og ræða fréttir og stöðu samfélagsins á miðju sumri, nú þegar dagarnir fara að styttast. Síðan koma þær Theódóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Líf Magneudóttur formaður borgarráðs og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og halda umræðunni áfram, um ástandið í heimsmálum, landsmálum og í nærsamfélaginu. Í lokin taka þeir bræður púlsinn á pólitíkinni. -
Laugardagur 21. júní
Helgi-spjall: Daníel Magnússon
Daníel Magnússon myndlistarmaður, vélstjóri og stólasmiður ræðir um listina, dugnaðinn og drykkjuna, foreldra sína og annað venjulegt fólk sem hefur mótað hann. -
Saknas det avsnitt?
-
Föstudagur 20. júní
Vikuskammtur: Vika 25
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Valgerður Þ. Pálmadóttir rannsóknarsérfræðingur í hugmyndasögu, Hafdís Helga Helgadóttir útvarpskona, Vigdís Halla Birgisdóttir leikkona og Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af loftárásum, málþófi, sumri og nýjum tækifærum. -
Fimmtudagur 19. júní
Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór
Við hefjum leik með umfjöllun um konur og kúrda. Í dag, nítjánda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi setur Ögmundur Jónasson kvenréttindabaráttuna á Íslandi í samhengi við baráttu Kúrda fyrir tilverurétti sínum. Kúrdískar konur hafa verið í fararbroddi baráttunnar og Ögmundur segir einnig frá fyrirlestri tveggja mannréttindalögfræðinga á mánudaginn, Jan Fernon og Ceren Uysal. Kristján Kristjánsson heimspekiprófessor í Birmingham ræðir við Gunnar Smára um umræðuhefð á tímum samfélagsmiðla, Marxíska vekni, póstmóderníska og þá sem náði flugi á tímum sjálfsmyndarstjórnmála. Hildur Margrétardóttir, myndlistakona, kennari og fyrrverandi skólastjóri, segir okkur frá nýjum námsleiðum, skapandi námi, náttúruspeki og útinám. Hún ræðir líka um ilminn og útiveruna. Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi og víkingur ræðir um handverk og mikilvægi fullnýtingar. Oddný Eir og María Lilja ræða við hana. Í bridgeþætti Samstöðvarinnar ræðir Björn Þorláks við Guðmund Snorrason fyrrum norðurlandameistara í bridds og Matthías Imsland, framkvæmdastjóra Bridgesambands Ísland. Vonbrigði í opna flokknum á Norðurlandamótinu á Laugarvatni verða krufin og leiðir ræddar til að ná betri árangri í framtíðinni. Við endum Rauða borðið með söng. Bjarni Karlsson kórstjóri leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þjóðlagahefðir og Kvæðakórinn sem hann stýrir. Hann tekur lagið um Lækinn. -
Fimmtudagur 19. júní
Auðlindin
Gestir Maríu Lilju og Björns Þorláks eru að þessu sinni þau Tinna Ólafsdóttir, Karl Frímannsson, Þórbergur Torfason og Gunnar Gunnarsson. -
Sjávarútvegsspjallið 19. júní
Grétar Mar ræðir við Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson -
Miðvikudagur 18. júní
Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um hvort Bandaríkin muni taka frekari þátt í loftárásum Ísraels á Íran. Og um Ísland og Evrópusambandið. Oddný Eir og María Lilja rabba við fólk um hugsanlegan heimsenda, um landamæri, efnahagsflótta, einmanaleika, skattaskjól og önnur hressileg frétta- og ekki-fréttamál. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur og Marxisti, svarar Gunnari Smára um hvers vegna vinstrið og sósíalisminn hafi ekki risið þegar nýfrjálshyggjan féll í Hruninu. Jón Torfi Jónasson prófessor á eftirlaunum talar um skólakerfið við Gunnar Smára og segir hvers vegna hann geldur varhug við samræmdum prófum eins og kallað er eftir. -
Mánudagur 16. júní:
Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir
Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinni ræða við Maríu Lilju og Oddnýju Eir um strip, femínisma, fordóma á Íslandi og njósnir í Svíþjóð. Ásdís Ásgeirsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Skúli Geirdal, Fjölmiðlanefnd, ræða pólaríseringu íslenskra fjölmiðla, starfsskilyrði blaðamanna, vinnubrögð, falsfréttir og traust til fjölmiðla við Björn Þorláks. Samkvæmt óbirtri könnun treysta hægri menn Morgunblaðinu best en Rúv síður. Við heimsækjum Víkingahátíð í Hafnarfirði þar sem sólin skín á tjöld, eldstæði, baráttu og hljómleik. Oddný Eir og María Lilja fóru og ræddu við víkingana um hátíðarhöld, handverk, hefðir og hugmyndir sem kvikna í ullartjöldunum og samverunni. Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, ræðir við Björn Þorláks um starfsaðstæður skapandi greina, mikilvægi þess að ungt fólk fái að stunda þá list sem það brennur fyrir og skyldur hins opinbera. -
Sunnudagurinn 15. júní
Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átökin í Mið-Austurlöndum, mótmæli í Bandaríkjunum og hér heima og fleiri fréttir. Síðan koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur og Davíð Þór Jónsson prestur og halda umræðunni áfram og ræða líka um skautun og upplausn milli ríkja og innan ríkja. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi. -
Laugardagur 14. júní
Helgi-spjall: Gnarr
Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina. -
Fimmtudagur 12. júní
Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál
Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefur verið tilkynnt um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Sýnar, Stöð 2 er úr sögunni. Frosti Logason fjölmiðlamaður kemur til Maríu Lilju og ræðir stöðu fjölmiðla og mikilvægi fjölbreytni. Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû, stuðningsfulltrúi, Margrét Pétursdóttir, leiðsöguman og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata svara kröfum hópsins Ísland þvert á flokka í tengslum mótmælin á Austurvelli sem boðuð eru fyrir helgi. Þær ræða líka við Oddnýju Eir Ævarsdóttur um uppákomuna í Húsdýragarðinum, rasismann og staðreyndir málsins. Oddný Eir ræðir einnig við dr. Áka Jarl Lárusson, líffræðing hjá Hafrannsóknarstofnun, sem ólst upp í Los Angeles, um ofbeldið í Bandaríkjunum, orsakir og afleiðingar. Og Björn Teitsson, borgarfræðingur mætti til Maríu Lilju og ræddið borgarsamfélagið. Þau fóru yfir samræðuna um bílastæði, einkabílinn, opin rými og hvers meirihluti höfuðborgarbúa óski sér í þeim efnum. -
Fimmtudagur 12. júní
Auðlindin
Gestir Maríu Lilju og Björns Þorlákssonar í landsbyggðaþættinum Auðlindin í dag eru Kristín Magnea Sigurjónsdóttir blaðamaður á trolli.is í Fjallabyggð Margrét Gauja Magnúsdóttir leiðsögumaður og skólastjóri Lýðsskólans á Flateyri og Sigurður Erlingsson landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði. Þau ræða fréttir og tíðaranda í héraði, landsmál og fleira. -
Sjávarútvegsspjallið 12. júní
Grétar Mar Jónsson og Ólafur Jónsson ræða við Jón Baldvin Hannibalsson um uppboð veiðiheimilda. -
Miðvikudagur 11. júní
Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum
Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnka umferð um völlinn að því er kemur fram í umræðunni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni og prófessor emerita í jarðvísindadeild Háskóla Íslands, ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðarleysi og hugsanavillur tengdum hagvexti sem ógna hafinu og framtíð okkar. Reynsluboltar vikunnar voru þingkonurnar fyrrverandi; Álfheiður Ingadóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Oddný Harðardóttir. Rætt var um helstu fréttir og stjórnmál. Ekki síst að það vanti fólk á þingi sem talar frá vinstri og hefur áhuga á náttúruvernd. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, ræðir við Maríu Lilju um glæpasamtök útlendinga í fangelsi og auknar valdheimildir lögreglu. Auður Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, höfundur, rannsóknarlektor og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit segir okkur frá nýjum rannsóknum á tengslum sköpunarkrafts og náttúru og hlutverki álfa, huldufólks í pólitík og menningu samtíma okkar. Páll Þórðarson, efnafræði-prófessor við háskóla í Sydney í Ástralíu segir Gunnari Smára frá umbyltingu í læknisfræði vegna RNA-tækni sem hann vinnur að. -
Þriðjudagur 10. júní
Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind
Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um Trump og heimsmálin, ástandið í Kaliforníu og Úkraínu, á Gaza og Mið-Austurlöndum og vaxandi stórveldaátök í heiminum. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrum lögga, segir frá sjálfum sér, þinginu, ofbeldismálum í samfélaginu og ýmsu öðru í samtali við Björn Þorláksson. Björn Þorláksson heldur áfram umfjöllun sinni um lífeyrissjóði. Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, ræðir kosti og galla íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Hvað aðgreinir okkur frá sambærilegum sjóðum utan landsteinanna? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þá afgerandi samfélagsbreytingu sem gervigreindin mun valda, ekki bara í samfélaginu og völdum innan þess, heldur á sjálfsmynd okkar sjálfra. -
Laugardagur 7. júní
Helgi-spjall: Drífa
Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig með móðurmjólkinni. -
Föstudagur 6. júní
Vikuskammtur: Vika 23
Það verður líf og fjör í Vikuskammtinum að þessu sinni þegar þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur og kennari, Steinunn Gunnlaugsdóttir, myndlistamaður og Atli Bollason, listamaður mætast við Rauða borðið hjá Maríu Lilju. Að þessu sinni verður farið ítarlega í menningarviðburði, störf þingsins, fordóma í samfélaginu, Gaza, Oscar og ríkisborgararéttinn, sumarveðrið, laun ráðafólks, evrópusambandið og margt fleira. -
Fimmtudagur 5. júní
Auðlindin
Í Auðlind dagsins ræða María Lilja og Björn Þorláks við fjóra íbúa sem allir eiga það sameiginlegt að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Björg Björnsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, ræðir daginn og veginn fyrir austan, Michael Jón Clarke tónlistarmaður í Hrísey og á Akureyri ræðir við okkur útlendingamál og tónlistarviðburð. Berglind Hlín Baldursdóttir bóndi í Húnaþingi styður ekki forystu bænda er kemur að búvörufrumvarpsáherslum og ræðir þá hlið mála og Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur á Svalbarðsströnd ræðir mannúðarmál og fleira. -
Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld
Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu máli þegar þeir ræða inngrip Víðis Reynissonar formanns allsherjarnefndar Alþingis, en allar líkur eru nú á að Oscar fái ríkisborgararétt. Árni Þór Sigurðsson, sendiherra í leyfi og fyrrverandi þingmaður VG, ræður við Gunnar Smára um alþjóðamál og ekki síður Evrópumál, en ríkisstjórnin ætlar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Jón Gunnar Bernburg prófessor segir Gunnari Smára frá ólíku auðmagni; peningalegu, félagslegu og menningarlegu og hvernig slíkt auðmagn ræður því hverjir heyrast og sjást og hverjir alls ekki. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar ræðir um helstu áskoranir dagsins í dag í tengslum við persónuvernd. Oddný Eir Ævarsdóttir ræddi við Helgu. Ole Anton Bieltvedt, samfélagsrýnir, ræðir um útlendingahatur á Íslandi við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Og við endum Rauða borðið með samtali við Þorvarð Árnason, forstöðumann Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði og fræðimanns í umhverfishugvísindum. Hann segir okkur frá nýútkominni bók sinni Víðerni sem er grundvallarrit í nýrri nálgun við náttúruna og ræðir tengsl okkar við hana, bókin er skrifuð fyrir almenning og náttúru í harðri viðureign okkar tíma. Oddný Eir ræðir við Þorvarð. - Visa fler