Avsnitt
-
Laugardagur 20. júní
Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
-
Föstudagur 19. júní
Vikuskammtur: Vika 25
Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna. -
Saknas det avsnitt?
-
Fimmtudagur 18. júní
Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn
Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka. -
Þriðjudagur 16. júní
Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks. -
Mánudagur 15. júní
Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB
Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks. -
Laugardagur 13. júní
Helgi-spjall: Árni Pétur
Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri. -
Föstudagur 12. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn. -
Fimmtudagur 11. júní
Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni. -
Miðvikudagur 10. júní
Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen. -
Þriðjudagur 9. júní
Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús
Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára. -
Laugardagur 6. júní
Helgi-spjall: Sigfinnur
Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar. -
Mánudagur 8. júní
Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM
Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum. -
Föstudagur 5. júní
Vikuskammtur: Vika 23
Kverkatak Írans á Vesturlöndum, bein Jónasar, græðgi og brottfararbúðir koma við sögu í Vikuskammti að þessu sinni. Sara Oskarsson læknanemi, Magnea Marínósdóttir ráðgjafi, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingmaður eru gestir Björns Þorlákssonar. Þau ræða fréttir og helstu þjóðmál líðandi stundar. -
Fimmtudagur 04. júní
Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál
Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hleypt verður af stokkunum á morgun. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum fer yfir helstu áskorarnir íslenskra neytenda um þessar mundir. Vextirnir, olían, maturinn og húsnæðið verða til umræðu. Björn Þorláks ræðir við Breka. -
Miðvikudagur 3. júní
Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar
Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir þá ákvörðun borgaryfirvalda að hætta að flagga fánum erlendra ríkja. Nýr meirihluti fer illa af stað, að mati Ingólfs. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur segir Gunnari Smára frá pólitísk svik stjórnmálafólksins við ungu kynslóðina, einkum varðandi húsnæðismarkaðinn sem þjónar síst af öllu ungu fólki. Rán Flygenring, myndlistarmaður og rithöfundur, er mikil sundmanneskja og upp á síðkastið hafa gestir í sundlaugum rekið augun í myndlist hennar á sundlaugarbökkum Reykjavíkur. Rán ræðir við Björn Þorláks um þjóðareinkenni Íslendinga, útisundlaugina. -
Þriðjudagur 2. júní
Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma alls staðar að lokuðum dyrum. Ólafur Páll Sigurðsson segir Gunnari Smára frá skáldsögunni Villistrákum og höfundi hennar William S. Burroughs, því alræmda skáldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, vill að tekin verði upp löggilding meðal leiðsögumanna hér á landi. Í samtali Björns Þorláks við Pál Ásgeir ber samanburð færeyskrar og íslenskrar ferðaþjónustu á góma en í Færeyjum hafa leyfislausir leiðsögumenn verið handteknir undanfarið. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá hringveginum, undirbúningi hans, lagningu, vígslu og áhrifum. -
Mánudagur 1. Júní
Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun
Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta segir Ólafur G, Harðarson stjórnmálafræðingur í samtali við Björn Þorláks. Baldur Jezorski fasteignasali segir Gunnar Smára frá þeim breytingum sem hafa orðið á íbúðamarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp eignir á meðan almenningur hefur ekki efni á íbúðunum. Maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum, segir í bókinni Menntun í félagsmenningarlegu ljósi sem Hafþór Guðjónsson kennari hefur skrifað. Hann útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára. -
Föstudagur 29. maí
Vikuskammtur: Vika 22
Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu. -
Fimmtudagur 28. maí
Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið
Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar. -
Miðvikudagur 27. maí
Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi
Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka Pálsdóttir vill auka heilsulæsi og fjölga heilbrigðum æviárum. Í viðtali við Ásdísi Olsen veltir hún fyrir sér hvers vegna heilsubyltingin mæti þöggun og andstöðu frá kerfinu. Sigurjón Magnús ræðir við Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambandsins, um uppgang í golfíþróttinni. Hátt í 400 nemendur í Árbænum hafa fengið fría leiðsögn á hljóðfæri síðustu ár en stuðningur við verkefnið hefur nú verið blásinn af. Björn Þorláks ræðir við Stefán S. Stefansson tónlistarmann um öfugþróun í listum og menningu. - Visa fler