Avsnitt
-
Í þætti vikunnar ræðir Erla við dásamlega vinkonu og gleðisprengju Auði Hallgrímsdóttur. Auður er mikil félagsvera sem elskar að hreyfa sig úti í náttúrunni. Auður missti föður sinn úr sjálfsvígi fyrir rúmum 5 árum og ákvað strax að hún myndi nýta sér þessa erfiðu lífsreynslu til þess að hjálpa öðrum.
Í þessu einlæga og fallega viðtali ræðum við meðal annars um sjálfsvíg, áhrif á aðstandendur, sálgæslu og mikilvægi hreyfingar í andlegri heilsu og þegar tekist er á við erfið áföll. Auður kemur einnig með ráð og ábendingar til þeirra sem missa einhvern úr sjálfsvígi og góð ráð hvernig er hægt að styðja við aðstandendur.
Auður minnir á hvað það er mikilvægt að tala upphátt og leita sér aðstoðar, t.d. hjá Píeta samtökunum.
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvörur Nóvember eru frá New Nordic. Undanfarin ár hafa vörur New Nordic unnið til fjölda verðlauna og fyrirtækið býður aðeins upp á það besta frá náttúrunni.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Helga Ómarsson ljósmyndara og jáhrifavald um sjálfsvinnu, narsissisma, flókna áfallastreituröskun, að setja mörk, litla Helga, þakklæti, stolt, jólahefðir og hvernig hann vill nýta rödd sína og þekkingu ti þess að hjálpa öðrum.
Helgi er með hlaðvarpið Helgaspjallið og Helgi og Erla áttu afar skemmtilegan dag saman og tóku ,,two for one" þar sem að Erla fór einnig í spjall til Helga sama dag. Kíkið á viðtalið í Helgaspjallinu
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvörur Nóvember eru frá New Nordic. Undanfarin ár hafa vörur New Nordic unnið til fjölda verðlauna og fyrirtækið býður aðeins upp á það besta frá náttúrunni.
Þátturinn var tekinn upp í Podcast stöðinni.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Árna Björn og Guðrúnu Ósk um lífið og tilveruna, um áföll eins og að eignast langveikt barn, höfuðhögg og heilsuleysi, áfallastreitu, triggera og traust.
Einnig ræðum við um mikilvægi þess að leyfa sér að upplifa allar tilfinningar, hvernig samskipti eru lykillinn að góðu sambandi, hvers vegna þau eru vegan, hvernig kynlíf getur orðið betra með árunum, nekt, opin sambönd og fleira.
Guðrún og Árni segjast lífa eftir þeirri lífsspeki að það eigi ekki vera neinn filter og vonast til að það hafi jákvæð áhrif á einhver. Þau fara sínar eigin leiðir og finnst normið ótrúlega leiðinlegt.
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó- netto.is. Sæktu samkaupaappið og byrjaðu að spara!
Spíruna- spiran.is. Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum.
Heilsuhilluna- artasan.is. Heilsuvörur október eru frá Better You.
Þátturinn var tekinn upp í Podcast stöðinni.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Sigurð Örn Ragnarsson, verkfræðing og þríþrautakappa um það hvernig hægt sé að ná sem bestum árangri sem afreksíþróttamaður, ,,kostnað" afreka á heilsuna, hámarkssúrefnisupptöku, HRV, mjólkursýru, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns, ofþjálfun, grunnbrennslu og margt fleira.
Sigurður Örn er magnaður íþróttamaður sem nýtir þekkingu sína og reynslu til þess að ná góðum árangri í þríþraut en um leið besta heilsu sína. Hann er viskubrunnur og áður en við vissum af vorum við búin að spjalla saman í næstum 2 klukkutíma!
Grípið blað og penna til að glósa og góða skemmtun!Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi grasa um náttúrulækningar, lýðheilsu, meltingu, þarmaflóruna, streitu, hormónaójafnvægi, tíðarhring kvenna, rushing womans syndrome ofl.
Ásdís Ragna er Lýðheilsufræðingur og grasalæknir. Áhugi hennar á virkni lækningajurta og hæfni þeirra til að bæta heilsu fólks kviknaði snemma á lífsleiðinni.
Hún hefur lengi haft brennandi áhuga á því hvernig við getum haft áhrif á heilsuna frá náttúrunnar hendi og hvaða áhrif þessi fjölmörgu virku efni úr jurtunum hafa á mannslíkamann.
Starf Ásdísar sem grasalæknir er fyrst og fremst fólgið í því að meðhöndla einkenni og kvilla á heildrænan og náttúrulegan hátt og líta á líkamann sem eina heild og bæta almenna starfsemi líffærakerfa.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um mjög áhugavert tímabil í lífi hans þar sem hann tók ekkert hvíldartímabil í 7,5 ár! Sem sagt hreyfði sig 30 mínútur á dag í 2737 daga og taldi ekki göngutúra og lyfingar með.
Þó að hann æfi ekki á hverjum degi lengur er hann þó eintaklega hreyfiglaður maður og er nammigrís sem elskar tölur og tölfræði, sérstaklega í tenglsum við íþróttir.
Í dag hvetur Steinn öll til þess að vera dugleg að hreyfa sig, finna sér hreyfingu við hæfi og hreyfingu sem veitir manni ánægju en láta ekki dagafjölda, mínútur eða klukkutíma ná tökum á sér.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þætti vikunnar spjallar Erla við Ágústu Kolbrúnu Roberts jógakennara og heilara. Ágústa byrjaði sína andlegu vegferð snemma eftir að hafa verið á flótta frá erfiðri æsku. Þær stöllur ræða á einlæglega um það hvernig æskan hefur mótað hana, hvernig jóga tók yfir líf hennar, hugleiðslu, áföll, heilun og hvernig við þurfum að taka ábyrgð á okkur sjálfum.
Hún hefur stundað jóga í 28 ára og kennt fjölmörgum að kenna jóga. Ágústa er líka frábær listakona og er nú með listasýningu á Sólheimum um Sesselju stofnanda Sólheima.
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við Nettó, Spíruna og Heilsuhilluna.
Auk þess fær Ágústa glaðning frá Share á íslandi sem er japönsk Apríkósa og Pomelo grape, gerjað í 30 mánuði! 100% náttúrulegt og einstaklega gott fyrir meltinguna.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
7 mínútna sitjandi hugleiðsla og núvitundaræfing þar sem við færum athygli okkar á milli skynfæra. Hægt að gera hvar og hvenær sem er.
Njótið!Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Siggu Dögg kynfræðing um kynfræðslu, kærleika, mikilvægi samskipta í kynlífi og lífinu almennt, kynheilbrigði, skömm, opin sambönd, væntingar og hvernig breytingarskeið kvenna er tækifæri til að losa sig við það sem þjónar manni ekki lengur.
Sigga Dögg hefur lagt mikinn metnað í að fræða unga sem aldna um kynlíf síðustu ár og áratugi. Undanfarin ár hefur hennar helsta starf verið kynfræðsla í grunn- og framhaldsskólum þar sem hún fræddi nemendur, kennara og foreldra. Sigga áttaði sig svo á því að kynfræðslu fyrir foreldra og fullorðið fólk væri mjög ábótavant og stofnaði því Betra Kynlíf ásamt Sævari manninum sínum. Á þeirri síðu eru yfir 300 fræðslumyndbönd og fyrirlestrar um fjölbreytt efni.
Sigga Dögg var svo yndisleg að gefa ykkur öllum glaðning! Allir hlustendur hlaðvarpsins fá frían mánuð á betrakynlif.is með kóðanum heilsuerla
Þátturinn er unninn í samstarfi við Nettó, Spíruna og HeilsuhillunaSendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Krummu Jónsdóttur sem starfar sem árangursráðgjafi um hæfni, færni, sjálfstæði, hamingju og hugrekki, hvað við þurfum til að dafna og hvernig við náum árangri án þess að missa vitið og heilsuna.
Til að ná árangri þurfum við fjölþætta vellíðan, líkamlega, andlega og félagslega. Þegar við erum í jafnvægi og upplifum vellíðan í þessum þáttum, erum við betur í stakk búin til að takast á við áskoranir og ná árangri.Á sama hátt þurfum við árangur til að dafna; það að setja okkur markmið og ná þeim gefur lífi okkar tilgang og uppfyllir okkar innri þörf fyrir vöxt og þróun. Árangur og vellíðan eru þannig órjúfanlega tengd og styðja hvort annað í okkar persónulega og faglega lífi.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræða Lukka og Erla um breytingaskeiðið, þyngdarstjórnun, efnaskiptaheilsu, hormónaójafnvægi, alvarleika hreyfingaleysis, hvatberavirkni, hvað það skiptir miklu máli að fólk viti að það er með lífi í lúkunum og margt fleira.
Lukka er einn af stofendum og eigindum GreenFit og hefur áratuga reynslu af að hjálpa fólki að bæta heilsu með mataræði og hreyfingu. Hún hefur starfað í 30 ár við þjálfun og ráðgjöf og hefur skrifað 3 bækur um tengsl næringar og heilbrigðis. Auk tveggja háskólagráða hefur hún svalað sífelldum þekkingarþorsta á hinum ýmsu námskeiðum og ráðstefnum og hefur diplómanám að baki í Functional Blood Chemistry Analysis hjá Optimal Dx auk ýmissa þjálfararéttinda og jógakennaranáms.Lukka elskar hreyfingu af öllu tagi, helst úti í náttúrunni með góðu fólki. Hún er bæði hrifnæm og hvatvís og stundum þarf að stoppa hana af þegar hana langar að taka viðskiptavini með sér heim til að elda hollan mat handa þeim og tryggja góðan árangur.
Lukka kom einnig í frábært viðtal fyrir skömmu með Sigurði Erni samstarfsmanni sínum sem ég hvet alla til þess að hlusta.
Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru Nettó, Spíran og Heilsuhillan.
Ég hvet þig til þess að sækja Samkaupa appið hér og byrja strax að spara.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
í þættinum ræðir Erla við Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing um hvað það er að eiga í heilbrigðu sambandi við mat, matarvenjur, ADHD og mataræði, næringarþéttni matvæla, næringarlæsi, áhrif þarmaflórunnar á almenna heilsu og margt fleira.
Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur MSc með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Kristjánsdóttur, sálfræðing um tengslamyndun og afhverju hún er mikilvæg, áhrif tengslamyndunar í æsku á heilsu okkar í framtíðinni, rannsóknir á tengslamyndun í ungbarnasundi, örugg tengsl, fæðingarþunglyndi, vanrækslu, tenglsaröskun, ,,good enough” foreldra og hvernig við getum haldið góðum tengslum við okkur sjálf og aðra.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Önnu Töru Andrésdóttur um ADHD, sjálfsvitund, vinnsluminni, tilfinningastjórnun, frestunaráráttu, kynjamun, gagnsemi lyfja, fordóma og áhrif ADHD á heilsu og öfugt.
Þær stöllur ræða einnig um áhrif hreyfingar, mataræðis og svefns á ADHD og áhrif kynþroskaskeiðs, meðgöngu og breytingaskeiðs á einkenni ADHD hjá konum.
Anna Tara er doktorsnemi við Háskólann í Barcelona með sérstaka áherslu á konur með ADHD. Hún brennur fyrir málefnum ADHD því hún skilur vel hversu mikil áhrif ADHD getur haft á líf fólks. ADHD er meðhöndlanlegasta röskunin sem til er og því er mikilvægt að veita fólki þau bættu lífsgæði sem það eiga skilið.
Að mati Önnu Töru ætti frekar að kalla þetta styrifærniröskun þar sem að ADHD snýst ekki bara um skort á athygli. Rætur þess eru oftar líffræðilegar en eiturefni í umhverfinu geta valdið ADHD.Samfélagslegur kostaður vegna ómeðhöndlaðs ADHD er hár og afleiðingar ómeðhöndlaðs athyglisbrest geta verið mjög alvarlegar, t.d. félagsleg einangrun, meiri líkur á fíkn, kviða og þunglyndi og aukin slysahætta vegna áhættusækni ofl.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Guðbjörn Gunnarsson sérlegan áhugamann um fólk, einkaþjálfara og markþjálfa um venjur, hegðun, þarfir, hvað það er að vera listamaður í að lifa, neðansjávardjúpmarkþjálfun, morgunsíður og hvernig við berum ábyrgð á eigin heilsu.
Guðbjörn hefur unnið með fólki í 21 ár og blandar nú saman á skemmtilegan hátt einkaþjálfun og markþjálfun með góðum árangri. Hann trúir því að það sem þú gefur er það sem þú færð og að þú getir ekki hlustað betur en þér líður. Hann segir að heilsa sé heimild sem virkar í báðar áttir. Það er því á okkar ábyrgð að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að huga að eigin heilsu og vellíðan.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Davíð Aron Routley, heilsumarkþjálfa, jógakennara og einkaþjálfara um heilsu- og næringarlæsi, skólakerfið, hegðunarvanda, skólaforðun, kvíða, tilfinningalæsi, samkennd og meðvirkni. Þau ræða einnig um áhrif umhverfis, markaðssetningar og efnahagskerfisins á heilsu og hvernig við getum aðeins verið jafn heilbrigð og umhverfið okkar er.
Davíð Aron hefur unnið í barnavernd, Brúarskóla og með einhverfum börnum. Hann telur að börn eigi að fá að upplifa að þau séu verðmæt, örugg, ófullkomin (megi gera mistök) og ósjálfbjarga.
Davíð Aron telur ekki vera svigrúm í íslensku skólakerfi til þess að tjá sig og segir að hegðunarvandi sé alltaf viðbragð við einhverju úr umhverfinu. Hann er með hugmyndir um það hvernig væri hægt að gera skólakerfið betra fyrir börnin okkar. Hann segir börn þurfa aga og samkennd og með því að kenna þeim gagnrýna hugsun, næringarlæsi, heilsulæsi og tilfinningalæsi, þá erum við að segja ,,fokkjú" við kapítalismann.Áhugasamir geta fylgt Davíð á wholehealth_wisdom á Instagram.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Viðar Halldórsson, félagsfræðing og prófessor við Háskóla Íslands um samfélagið, félagslega töfra, tilfinningalega smitun, félagslegt heilbrigði, stemmningu, tæknilega skynsemisvæðingu, hlutverk íþrótta og fleira.Viðar bendir á að félagsleg samskipti eru grunnbyggingarefni samfélagsins og félagslegir töfrar og samskipti mynda eitthvað sem var ekki til áður og summan verður oft stærri en einingarnar. 1+1 verða 3. Við búum til eitthvað meira og merkilegra en áður var til.
Erla og Viðar ræða einnig um hvenig tæki og tól hafa aukið samskipti við fjærsamfélagið en gallinn er að þau hafa takmarkanir og minnka mannleg tengsl. Snjalltæki soga mennskuna úr og eftir stendur bara það sem er skrifað. Það er ekki bara það sem við segjum (eða skrifum) heldur þetta ósýnilega, líkamstjáning, raddblær ofl sem skiptir svo miklu máli. Við erum ekki eins meðvituð um nærumhverfi okkar og þá tapast augnsamband ofl.
Viðar gaf út bókina Sjáum samfélagið sem er fræðileg greining á nútímasamfélaginu út frá ljósmyndum úr hversdagslífinu
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Friðriksdóttur eða Siggu eins og hún er alltaf kölluð. Sigga er hjúkrunarfræðingur, búsett í Bandaríkjunum og starfar á heildrænni tannlæknastofu. Þar er hún með heilsu- og næringarþjálfun auk þess að gera alls konar mælingar á skjólstæðingum sínum, t.d. að taka og greina blóðprufur, skanna fyrir þungamálmum í líkamanum og fleira.
Sigga bendir á að góð munnheilsa/tannheilsa skiptir miklu máli fyrir alhliða heilsu og getur meira að segja minnkað líkur á hjarta og æðasjúkdómum.Hún segir okkur einnig frá því hvernig líf í Bandaríkjunum er frábrugðið lífinu á Íslandi og kemur með mörg góð ráð til að bæta heilsu okkar bæði með mataræði og lífsstíl.
Ég minni á gjafaleikinn á Instagram þar sem þú getur unnið glæsilegan gjafapakka frá Heilsuhillunni og Heilsumarkþjálfun hjá mér. Vítamínin sem Sigga mælir með að taka fást öll í heilsuhillum Nettó.
Við Sigga kíktum svo auðvitað á Spíruna þegar hún var hérna á klakanum og hún var yfir sig hrifin að geta fengið svona góðan og næringarríkan mat á góðu verði í dásamlegu umhverfi.Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við:
Nettó - netto.is
Spíruna - spiran.is
Heilsuhilluna - heilsuhillan.is
Í þættinum ræðir Erla við Lukku Pálsdóttur og Sigurð Örn Ragnarsson hjá Greenfit um heilsulæsi, forvarnir, ákjósanlegt matar- og hreyfiumhverfi, efnaskipti, insúlínviðnám, tískubylgjur í vinsældum orkuefna, þ.e. fitau, kolvetna og próteina og hvernig við hámörkum heilsu okkar.
Þau ræða einnig um hvaða hindranir standi í vegi fyrir því að bæta lýðheilsu þjóðarinnar og hvernig við og samfélagið virðumst bara setja ,,plástra" á flest vandamál.Sykursýki er samfélagslegt mein. Þú vaknar ekki bara einn daginn með sykursýki, þetta gerist yfir langan tíma, oft áratugi og unga fólkið okkar er í mun meiri áhættu á sykursýki 2 en eldri kynslóðir.
Við erum búin að normalísera óheilbrigða lifnaðarhætti og þurfum öll í samfélaginu að taka höndum saman og breyta þessu.
Lukka segir t.d. að það ætti að vera fæðingarréttur hvers barns að það fái holla og góða fæðu þangað til að það hefur vit og aldur til að taka ákvarðanir sjálft.Lukka og Siggi starfa hjá Greenfit og markmið Greenfit er að bæta og efla heilsu fólks, auka lífsgæði, auka heilsulæsi og hjálpa einstaklingum að fá aðgengi að upplýsingum sem að þeirra mati eru lykilatriði til þess að valdefla fólk þannig að það geti tekið ábyrgð á heilsunni sinni.
Lukka hefur áratuga reynslu af að hjálpa fólki að bæta heilsu með mataræði og hreyfingu. Hún hefur starfað í 30 ár við þjálfun og ráðgjöf og hefur skrifað 3 bækur um tengsl næringar og heilbrigðis.Siggi hefur yfirumsjón með efnaskipta- og álagsmælingum Greenfit. Hann sér einnig um úthaldsþjálfun og ráðgjöf ásamt því að semja fræðsluefni og halda fyrirlestra.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
-
Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken
Í þættinum ræðir Erla við Þorgerði Sigurðardóttur, kvenheilsusjúkraþjálfara um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna og hafa áhrif á lífsgæði þeirra, t.d. þvagleka, legsig, endaþarmssig, blöðrusig, ofspennu í grindarbotni og endómetríósu. Þær ræða einnig um áhrif meðgöngu og fæðingar á kvenlíkamann, mæðravernd eftir fæðingu, íþróttakonur, mikilvægi grindarbotnsæfinga og hvernig er best að framkvæma þær, kynlíf, breytingarskeið kvenna, mikilvægi slökunar og öndunar og margt fleira.Þorgerður er einn fremsti sérfræðingur landsins á sviði kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfunar og hefur starfað í kvenheilsu í 30 ár. Hún starfar á flestum sviðum kvenheilsusjúkraþjálfunar og býður einnig upp á mæðravernd eftir fæðingu en það er nátengt mastersrannsókn og doktorsrannsóknum hennar.
Þorgerður segir að það sé mikivægt að líta á manneskjuna sem heild því sjaldan standa mál ein og sér, verkir geta t.d. verið tengdir áfallasögu eða andlegum veikindum.Þorgerður segir að margar konur haldi að þær séu einar í heiminum að glíma við eitthvert vandamál og hafa jafnvel átt þrautargöngu í heilbrigðiskerfinu. Þá segir hún að það sé mikilvægast af öllu að það sé hlustað á konur og að þær viti að það er víða til hjálp. Í flestum tilvikum er hægt að bæta heilsu, líðan og lífsgæði.
Áhugasamir geta fundið upplýsingar á heimasíðu Þorgerðar og einnig á Instagram og Facebook
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
- Visa fler