Avsnitt
-
Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá einstæðri móður, tölum um sorgina sem hefur bankað upp á og stóru ástina sem hann fann snemma á lífsleiðinni.
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
-
Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það hvað hefur gagnast henni best í lífinu og markmiðið hafi alltaf verið að gera sitt besta.
Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5. -
Saknas det avsnitt?
-
Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
-
Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði.
Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hún flutt til London. Margrét á mörg líf að baki. Hún sló eftirminnilega í gegn sem Mæja í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en í þættinum segir hún frá því hvernig það æxlaðist allt saman. Á dögunum útskrifaðist Margrét Hugrún með BA próf í mannfræði þar sem hún skrifaði lokaritgerð um stafræna mannfræði en í þættinum útskýrir hún meðal annars hvers vegna við ættum alls ekki að vera á félagsmiðlum eins og Facebook. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 -
Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist á við veikindin með æðruleysi.
Hún er stemningsmanneskja sem er alltaf tilbúin til að taka aukaskref svo lífið verði örlítið skemmtilegra.
Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
-
Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og hvernig hann náði seinna á lífsleiðinni að koma hlutunum á réttan stað. Hann ræðir líka hvernig veröldin hrundi á nýjan leik þegar hann missti vinnuna og gekk í gegnum skilnað.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshruni 5.
-
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn og segist þakklát fyrir ástina og það að vera umvafin góðum vinkonum.
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5. -
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar segir að lífið geti verið flókið og því skipti máli að fara reglulega til hjónabandsráðgjafa. Í þættinum ræðum við skíðaiðkun Einars og hvernig það kom til að skíðin hans enduðu heima hjá þáttastjórnanda. Hann segir að skíðin hafi ekki verið ástæða skilnaðarins. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
-
Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en hann fór inn á þing og segir að reynslan hafi kennt honum að það sé bara tvennt sem geti bjargað fólki út úr alvarlegum vandræðum. Það er að eiga góðan maka eða finna guð. Hann var orðinn fullorðinn þegar hann komast að því að faðir hans hefði eignast tvö börn utan hjónabands. Hann upplifði aldrei að foreldrar hans væri hamingjusamir. Það er kannski þess vegna sem fjölskyldan skiptir hann öllu máli í lífinu.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
-
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari seldi steina með ömmu sinni niður í bæ þegar önnur börn voru í leikskóla. Hann var barnastjarna en var alltaf að reyna að ýta leiklistinn í burtu. Í þættinum ræðir hann um uppvöxtinn, æskuna og það að eiga föður sem glímdi við alkóhólisma. Hann náði að sættast við pabba sinn áður en hann féll frá.
Marta María býður heim er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind.
-
Faðir Ellýjar reyndi að senda skipsfélaga sinn í DNA-próf því hann vildi ekki gangast við henni. Móðir hennar gafst ekki upp og réð lögmann til að fá úr faðerni Ellýjar skorið. Fyrir stuttu fann Ellý bróður sinn sem nánast jafngamall henni sjálfri. Við ræðum ástina, gjaldþrotið og hamingjublöðruna. En líka andlegar tengingar og hvað gerist þegar fólk fylgir hjartanu.
Marta María býður heim er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
Skincarelab í Smáralind
-
Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og eigandi Strategíu lætur engan segja sér hvernig hún að haga sér. Í þættinum segir hún frá því þegar hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri með barn á handleggnum og tíkarspena í hárinu til þess að hefja lögfræðinám. Svo rann upp sá dagur að hún mætti á þykkbotna Buffalo-skóm inn í fjármálaheiminn. Hún segist hafa verið rétt kona á réttum tíma en þetta var ekki bara heppni því hún er eldklár og fyndin.
Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind. -
Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík er alinn upp í blokk í Álfheimum og þurfti sjálfur að hafa fyrir lífinu, ólíkt því sem margir halda. Við ætlum að fara yfir lífshlaupið, ræða sigra og fyrirmyndir og hvað lífið verður miklu skemmtilegra þegar það er stemning. Eitt af því fyrsta sem Ari kenndi mér fyrir 25 árum var að drekka Mojito.
Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind.
-
Gestur minn í dag er Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Akureyri. Í þessum þætti ætlum við að ræða vinskapinn, hjarta tengingar og það að setja alltaf undir sig hausinn og halda alltaf áfram sama hvað á dynur. Við ætlum líka að ræða ástina, ófrjósemi og gleðina sem fylgdi því að fá að verða móðir. Hvernig það var að kveðja Sex and the City lífsstílinn og flytja ein síns liðs á Patreksfjörð þegar hún fékk bæjarstjórastarf í Vesturbyggð.
-
Gestur minn í dag er ein af mínum elstu og bestu vinkonum. Hún heitir Júlía Margrét Alexandersdóttir. Við tvær bundumst djúpum tilfinningaböndum þegar við pöntuðum 10 pepperóní pítsur heim til bekkjarbróður okkar. Júlía datt út af vinnumarkaði fyrir nokkrum árum vegna alvarlegra veikinda. Við ætlum þó ekki að velta okkur upp úr því í dag heldur rifa upp gömul prakkarastrik og fara yfir það þegar Júlía Margrét lærði að þrífa upp ælur þar sem við unnum saman á Glaumbar sem unglingar.
Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blua Lagoon Skin Science og Skincarelab í Smáralind. -
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík talar um ástina, innsæi, kvenfyrirmyndir og hvernig það sé að vera alltaf eins og vél sem gengur aðeins of hratt.
Marta María býður heim er í boði Icelandair og Skincarelab í Smáralind.