Avsnitt

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Fátæka konan:„Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“- Skelfilegur stjúpi:„Ég var að verða fimm ára þegar móðir mín fór að búa með manni. Frá upphafi var honum illa við mig og sýndi það á allan hátt. Hann hefur ekki bara eyðilagt samband mitt við mömmu, heldur líka við föður minn.“- Allt betra en sannleikurinn?:„Hjónaband mitt var sérlega gott, hélt ég, en ef ekki hefði verið fyrir frétt sem ég sá í sjónvarpinu lifði ég kannski enn í þeirri blekkingu.“- Samþykki ömmu:„Þegar ég kynnti ungan mann fyrir ömmu beið ég spennt eftir samþykki hennar en fékk það ekki þótt ég vissi að henni líkaði ágætlega við hann. Amma var eins konar véfrétt í fjölskyldunni og mér fannst álit hennar skipta öllu máli.“- Lærdómsrík vinátta:„Eitt sinn átti ég vinkonu sem ég umgekkst talsvert mikið. Hún hafði mikla þörf fyrir að sýna yfirburði sína á flestum sviðum sem var í lagi mín vegna því ég hafði yfirleitt bara gaman að þessu. Óvænt eyðilagði þessi þörf hennar þó vináttu okkar.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með öllum ráðum:„Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri konu, minnkaði samband okkar mikið en konan leit á mig sem ógn og reyndi með öllum ráðum að halda pabba frá mér.“- Tíðahvörf ... eða kannski ólétta?:„Ég var farin að nálgast fertugt þegar ég fór til spákonu ásamt vinkonu minni. Það sem hún sagði við mig var fáránlegt og olli okkur vinkonunum hláturskasti. En svo fóru spádómarnir að rætast hjá okkur báðum.„Hún hristi höfuðið og sagðist sjá þrjú börn sem ég ætti sjálf. Hún talaði einnig um breytingar í vinnunni hjá manninum mínum og að yngri dóttirin myndi fara að læra eitthvað allt annað en hún hafði stefnt markvisst að árum saman.“ “- Froskurinn sem breyttist í prins:„Eftir skilnað við eiginmann minn til fimmtán ára kynnist ég manni sem ég var mjög hrifin af. En fyrri reynsla varð sennilega til þess að nýja sambandið stóð ekki lengi. Sá maður var vissulega ljúfur en það vantaði í hann alla drift og dugnað. Löngu seinna hittumst við og þá hafði orðið algjör viðsnúningur á lífi hans, vægast sagt.“- Sérkennilegur skólabróðir:„Ég var svo heppin að fá að fara í heimavistarskóla þótt ég byggi nánast í næsta húsi við ágætan menntaskóla í borginni. Á heimavistinni eignaðist ég marga góða vini sem ég á enn. Einn í hópnum var nokkuð sérstakur en hann hafði mikla þörf fyrir að vera öðruvísi en aðrir. Ég kalla hann Boga í þessari frásögn.“- Hið fullkomna hjónaband:„Ég hef verið gift tvisvar og skildi í bæði skiptin eftir að hafa gefist upp á eiginmönnunum. Ég er kannski ekki mesti mannþekkjari í heimi en ég taldi eitt öruggt í þessum heimi og það væri hið fullkomna hjónaband kunningjafólks míns.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Saknas det avsnitt?

    Klicka här för att uppdatera flödet manuellt.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Þráði að kynnast systkinum mínum:„Það hefur haft áhrif á allt mitt líf að ég var rangfeðruð. Ég var orðin fjórtán ára þegar mamma og pabbi viðurkenndu loks að ég ætti annan föður en þá hafði ég sífellt fengið að heyra frá fólki að pabbi ætti ekkert í mér. Ég hitti kynföður minn löngu seinna og enn síðar ákvað ég að hafa samband við hálfsystkini mín sem höfðu ekki haft hugmynd um tilvist mína.“- Óvænt vinslit:„Eftir að vera orðin edrú eftir margra ára óreglu eignaðist ég vinkonu sem ég taldi trausta og góða. Það tók mig mörg ár að sjá hvernig hún var í raun og veru og eftir á skildi ég ekkert í sjálfri mér fyrir að leyfa henni að koma svona fram við mig eins og hún gerði.“- Svona hefði líf mitt orðið ... :„Ég upplifði einstaka stund í brúðkaupsveislu sonar míns og fékk eins konar hugljómun um það hvernig líf mitt hefði orðið ef ég hefði ekki tekið afdrifaríka ákvörðun sem fór vægast sagt illa í fólkið í kringum mig..“- Úlfur í sauðargæru:„Ég hef búið í útlöndum frá unglingsaldri en lít þó alltaf á mig sem Íslending. Íslendingum hef ég einhvern veginn treyst betur en öðrum en fyrir mörgum árum fór ég flatt á því að treysta íslenskum manni sem var traustsins ekki verðugur.“- Stelsjúka frænkan:„Mamma mín og Ragna frænka voru fæddar með sextán mánaða millibili. Þetta gerði þær ákaflega nánar og í æsku voru þær aldar upp eins og tvíburar. Þær voru í eins fötum hvor í sínum litnum, voru settar í sömu tómstundir og eiginlega allaf gert ráð fyrir að þær hefðu sömu áhugamál. Mamma elskaði Rögnu systur sína en þegar systurdóttir hennar reyndist illa sjúk varð hún að velja og hún valdi mig.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Ást í meinum:„Sumarið sem ég varð nítján ára var ég döpur og vonsvikin. Ég hafði staðið mig illa í námi um veturinn og fannst að ég hefði klúðrað framtíðarmöguleikum mínum á að menntast. Mamma mín og pabbi voru líka að skilja og ég skammaðist mín fyrir það. Þegar mér bauðst mér að fara til Austurríkis og það fannst mér vera himnasending og tækifæri til þess að flýja ömurlegt líf mitt hér heima. Ég hafði ekki hugmynd um að innan skamms yrði ég ástfangin og depurð og iðrun vegna þeirrar ástar ætti eftir að fylgja mér nánast ævina enda.“- Gallagripur í hamingjuleit:„Þegar ég stóð í skilnaði í fyrsta skipti átti ég samúð vina og ættingja. Fólk kom gjarnan til mín og sagði mér hversu leitt það væri vegna þess að hjónabandið gekk ekki upp og var óspart á ráðleggingar. Þegar ég skildi við eiginmann númer tvö fékk ég allt öðruvísi viðbrögð og ég varð vör við gífurlega fordóma. Vinir og ættingjar veltu því fyrir sér hvað væri að mér og af hverju í ósköpunum ég gæti ekki haldist í hjónabandi. Skilaboðin sem ég fékk voru þau að ég hlyti að vera hinn mesti gallagripur.“- Óvæntir endurfundir:„Ég kynntist Sigrúnu þegar ég var 17 ára. Við vorum jafnöldrur, en ástæðan fyrir því að við kynntumst var sú að hún fór að vera með yngri bróður mínum. Sigrún varð strax góð vinkona mín og við urðum mjög nánar.“- Fiðrildið, dóttir mín:„Ég elska dóttur mína og hef alltaf haft lúmskt gaman af því hvernig hún lifir lífinu. Þrátt fyrir að hún sé alin upp á ofurvenjulegu heimili af mjög svo hversdagslegum foreldrum hefur litríkur persónuleiki hennar og val í lífinu ævinlega verið á skjön við hið hefðbundna. Helst dettur mér í hug að einhvers staðar í ættum okkar leynist ævintýrakvendi og gen hennar hafi öll safnast í þessa stúlku sem fer sínar eigin leiðir þvert á almenningsálitið.“- Kletturinn minn:„Ég og maðurinn minn rugluðum ekki saman reytum fyrr en eftir margra ára vinskap. Vinir mínir skildu ekkert í vináttu okkar tveggja í fyrstu, þeim þótti Jonni hálfskrítinn, að minnsta kosti frekar sérstakur og líkur mér, en þeir hefðu þá átt að kynnast tengdaforeldrum mínum og mági.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Vegalaus á Þorláksmessukvöld:„Eftir að pabbi dó breyttust samskipti mín við mömmu. Ég var ósátt við hvernig hún deyfði sorgina með róandi lyfjum en batt þó vonir við að allt breyttist til hins betra þegar hún kynntist manni nokkrum árum eftir lát pabba.“- Varð að hafna systur minni:„Við systurnar höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman og oftast stóðum við hvor með annarri þegar lífið lék okkur grátt. Hún hefur hins vegar stóra skapgerðargalla sem á endanum urðu til þess að ég varð að slíta öllu sambandi við hana.“- Uppi á röngum tíma:„Ég var orðin nokkuð fullorðin þegar ég áttaði mig á því að mamma var aldrei mikið fyrir börn. Hún reyndi að rækta hlutverk sitt sem heimavinnandi húsmóðir og móðir en leið sennilega afar illa í því sem bitnaði illilega á fjölskyldunni.“- Ótrúlegur blekkingarleikur:„Ég skildi við fyrri manninn minn seint á tíunda áratug síðustu aldar og var ekkert að flýta mér í annað samband. Ég ætlaði að byggja upp gott líf fyrir mig og dætur mínar tvær. Þetta var ekki auðvelt og einstæðar mæður hafa það sjaldan gott. Þegar ég kynntist Sigurði taldi ég mig hafa fundið ábyrgan og öruggan mann. Hann hafði farið í meðferð en var ákveðinn í að halda sér edrú og sagði mér að öll óregla væri að baki.“- Hryllilega vont en þess virði:„Margir hafa heyrt alls kyns hryllingssögur af fegrunaraðgerðum sem hafa mistekist og í mörgum tilfellum eru þær sjálfsagt sannar. Hins vegar heppnast meirihluti slíkra aðgerða vel og sjúklingarnir eru ánægðir með árangurinn. Ég er ein af þeim.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hress og harðdugleg ... : „Ég stjórna fyrirtæki sem er starfrækt yfir vetrartímann. Eitt haustið, annað árið mitt sem yfirmaður, réði ég hressa og harðduglega konu sem öllum líkaði vel við. Hún reyndist þó ekki öll þar sem hún var séð og kenndi mér dýrmæta lexíu.“- Hættuleg gestrisni:„Ég bjó í Danmörku í nokkur ár þar sem ég var í námi. Einn daginn kynntist ég ljúfri konu og okkur varð vel til vina. Líf hennar hafði ekki verið auðvelt en hún var samt alltaf glöð og einnig gestrisnasta manneskja sem ég hef nokkurn tíma kynnst.“- „Það verður mikið úr dóttur þinni“:„Nokkrum árum áður en ég stofnaði fjölskyldu fór ég til spákonu sem sagði mér sitt af hverju merkilegt. Margt af því sem hún sagði kom fram en ég var búin að steingleyma því öllu þar til nýlega þegar ég fann óvænt miða sem ég hafði hripað niður spádóminn á.“- Brúður á flótta:„Ég er þrígift og hef skilið þrisvar. Vinir mínir gera stundum góðlátlegt grín að ástamálum mínum og kalla mig „runaway bride“ eftir bíómyndinni. Ég hef svo sem ekki hlaupið frá neinum við altarið, það tók mig alltaf einhver ár að fá nóg. Frá barnæsku lét ég allt yfir mig ganga, byrgði sárindin og reiðina innra með mér þangað til ég sprakk með látum.“- Fyrstu góðu jólin:„Ég var orðin unglingur þegar ég var loks tekin út af heimili mínu og komið fyrir hjá ókunnugum. Þar kynntist ég eðlilegu lífi og átti mín fyrstu alvörujól.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Þrjú skilyrði:„Ég fylltist eldmóði þegar ég las sjálfsræktarbók og fór að reyna að laða til mín tækifæri, eins og kennt var þar. Ástin var ofarlega á blaði en ég hefði mátt forma óskir mínar aðeins betur ...“- Óþægilegur „aðdáandi“:„Ég bjó árum saman í frekar stórum kaupstað á landsbyggðinni með manninum mínum. Dætur okkar voru uppkomnar og sú yngri tiltölulega nýflutt að heiman þegar ég eignaðist „aðdáanda“, mann sem lét mig ekki í friði.“- Eini sonurinn:„Móðir mín hélt afar mikið upp á bróður minn, svo mikið að hún viðurkenndi eitt sinn þegar hún óttaðist um hann og var í mikilli geðshræringu að hún vildi frekar missa eina af okkur systrunum en einkasoninn.“- Sviphreini nágranninn:„Eitt sinn bjó ég í sama húsi og indælis fjölskylda. Mér líkaði sérstaklega vel við manninn sem var opinn, glaðlegur og virtist sérlega ljúfur en konan hans var hlédræg og feimin. Eftir að ég flutti frétti ég ekkert afþeim fyrr en ég las blaðagrein sem góði granninn skrifaði og í kjölfarið kom margt í ljós sem kom mér mjög á óvart.“- „Hún er svo heimsk, greyið“:„Um nokkurra ára skeið bjó ég í kaupstað á landsbyggðinni. Ég kynntist þar skemmtilegri ungri konu, Sólrúnu, sem átti þó ekki upp á pallborðið hjá bæjarbúum vegna þess að hún skar sig úr. Var opin og einlæg og í raun allt of lífsglöð miðað við aðstæðurnar í lífi hennar.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Tíu daga martröð:„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“- Yfirgangssamir vinir:„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“- Óvænt vinslit:„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“- Bíræfinn bóndi:„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hvern ertu að reyna að sannfæra?:„Þegar systir mín gifti sig var ég viss um að samband hennar við mann sinn yrði farsælt, svo ástfangin voru þau og tilbúin til að verja lífinu saman. Þrjátíu árum síðar virtist allt vera í lukkunnar velstandi en svo heyrði ég samtal á milli hennar og vinkonu hennar.“ - Kaldlynd vinkona:„Að missa ástvin er hluti af lífinu og huggunin er ekki síst fólgin í fólkinu í kringum mann sem styður og styrkir og hjálpar við að komast yfir sorgina. Vinkona mín til fjölda ára sýndi af sér undarlega framkomu þegar sameiginleg vinkona okkar upplifði sáran missi og síðar ég.“ - Allt of seint:„Ég er elst af fjórum systkinum og man því vel eftir því þegar faðir okkar yfirgaf okkur. Hann skildi ekki bara við mömmu, heldur einnig okkur börnin sín. Löngu seinna, þegar við vorum orðin uppkomin og nutum öll velgengni, vildi hann taka upp samband við okkur.“- Ofverndandi amma:„Lífið var oft erfitt hjá vinkonu minni en þegar hún kynntist góðum manni og eignaðist með honum barn hélt ég að nú yrði allt gott. Mér skjátlaðist.“ - Neydd í umgengni:„Fyrir fjölmörgum árum var mér og litla bróður mínum bjargað út af miklu óregluheimili og við sett í fóstur. Við höfðum þurft að þola það sem ekkert barn á að þurfa að þola en þrátt fyrir að vera komin í fóstur, vorum við ekki alveg sloppin.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Tíu daga martröð:„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“ - Yfirgangssamir vinir:„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“- Óvænt vinslit:„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“- Bíræfinn bóndi:„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Undarlegt tilboð:„Fyrir nokkru lenti ég í furðulegri reynslu þegar maður sem ég hafði aldrei hitt og þekkti bara í gegnum Facebook, gerði mér tilboð sem honum fannst greinilega að ég gæti ekki hafnað. Einhverju síðar fór eldri maður að gera hosur sínar grænar fyrir mér á ansi óþægilegan hátt.“ - Á einhverfurófi:„Allt frá því ég var barn hef ég þurft að bera ábyrgð á systur minni. Hún rakst illa í hópi eins stundum er sagt, þótti sérstök og var því alltaf höfð út undan. Mamma ætlaðist til að ég sæi um hana, tæki hana með í afmæli og seinna partí sem mér var boðið í og að ég stæði stöðugt í að breiða yfir mistök hennar og bæta fyrir þegar upp úr sauð milli hennar og hinna krakkanna. Þegar hún var greind á einhverfurófi ríflega fertug skýrði það margt en gerði hana sannarlega ekki auðveldari í umgengni.“ - Fíklarnir í lífi mínu:„Frá æsku stefndi ég að því að mennta mig og gera eitthvað mikið úr lífi mínu en strax í menntaskóla breyttist það. Ég sé þó ekki eftir neinu því ég er bæði reynslunni og yndislegum börnum ríkari.“- Draumurinn varð að martröð:„Eftir að hafa búið og starfað árum saman sem kennari og síðar skólastjóri á litlum stað á landsbyggðinni flutti ég, ásamt manni mínum og dóttur, í mun stærri bæ. Mig hafði dreymt um að verða „bara kennari“ á nýjan leik og hlakkaði til rólegra lífs. Sú varð nú aldeilis ekki raunin.“ - Ég veit ekki hvað kom yfir mig!:„Vinkona mín skildi ýmsa eftir í sárum þegar hún tók vanhugsaða ákvörðun. Hún áttaði sig á mistökunum nánast strax en of seint.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Hún bara veit …„Systir mín sér lengra en nef hennar nær og til eru margar sögur af henni og hugboðum hennar. Fyrr á árinu lenti hún í atviki en skjót viðbrögð hennar björguðu henni án efa frá vandræðum.“ - Óvænt umbreyting:„Besta vinkona mín frá barnæsku barðist lengi við offitu. Hún náði stundum að léttast mikið en var ekki lengi að bæta öllum aukakílóunum á sig aftur þegar kúrnum lauk. Fyrir nokkrum árum tókst henni að komast í kjörþyngd og halda henni en í leiðinni gjörbreyttist persónuleiki hennar.“ - Mamma breyttist við skilnaðinn:„Þegar ég var ellefu ára skildu foreldrar mínir. Pabbi hafði kynnst annarri konu og kom heim einn daginn og tilkynnti að hann væri farinn. Skiljanlega var þetta mömmu gríðarlegt áfall en það var bókstaflega eins og hún klikkaðist. Enn í dag á ég erfitt með að fyrirgefa henni margt af því sem gerðist fyrst eftir það.“ - Örlagarík áreitni:„Einn veturinn fyrir mörgum árum fékk ég vinnu við kennslu úti á landi. Eftir að ég var flutt aftur í bæinn heyrði ég að kjaftasögur hefðu grasserað um ásókn mína í giftan mann á staðnum. Sannleikurinn er hins vegar gjörólíkur sögunni og áreitnin sem átti sér stað reyndist mér ansi örlagarík.“ - Á síðasta snúningi?:„Lífið var svolítið tómlegt eftir skilnað við manninn minn til fimmtán ára. Sonur okkar kaus að verða eftir hjá pabba sínum en var afar duglegur að heimsækja mig. Ég var alveg opin fyrir nýju sambandi en að finna góðan mann til að verja lífinu með reyndist ekki auðvelt.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ógeðslegi karlinn á efri hæðinni:„Ég var erfiður unglingur. Milli okkar mömmu ríkti stríð sem lauk með því að hún rak mig að heiman. Fyrst á eftir reyndi ég að búa hjá pabba en fór fljótlega að leigja. Leigusalinn bjó á efri hæðinni og fljótlega komst ég að því að hann ætlaðist til að fá ýmislegt fleira en peninga fyrir íbúðina.“ - Þögul fyrirlitning:„Þegar við rugluðum saman reytum, ég og seinni maðurinn minn, höfðum við bæði verið í sárum í nokkur ár eftir makamissi. Börnin mín tvö tóku sambandi okkar vel en ekki er hægt að segja það sama um dóttur mannsins míns.“- Leynihólfið í skrifborðinu:„Ég hef oft sagt að konurnar í fjölskyldu minni séu ekkert sérlega heppnar í ástum, það er að ömmu undantekinni. Hún og afi hafa átt dásamlegt samband í yfir fimmtíu ár en mamma, móðursystur mínar, systur mínar og ég höfum allar lent í alls konar uppákomum með alla vega karla. Nýlega komst ég þó að því að ekki var allt sem sýndist í hjónabandi afa og ömmu.“ - Veit ekki hvort ég get fyrirgefið honum:„Þegar bróðir minn var barn að aldri var hann hvers manns hugljúfi. Eftir að hann fullorðnaðist breyttist hann til hins verra og ég hef núorðið lítinn áhuga á að vera í samskiptum við hann. Í raun engan eftir að hann fór illa með dóttur mína.“ - Ókunnugleg hljóð um miðja nótt:„Fyrir mörgum árum var ég næturvörður í fyrirtæki hér í Reykjavík. Ég var í námi á daginn og það hentaði ágætlega að taka fjórar slíkar vaktir í röð og eiga síðan frí í sex daga. Þetta var þægileg vinna og ég gat lært á nóttunni. En mér varð ekki um sel þegar ég fór að heyra undarleg hljóð í byggingunni og verða var viðýmislegt sem ekki verður fyllilega skýrt á jarðbundinn hátt.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ég er ekki að leita að karli:„Fyrir fjórum árum skildi ég við manninn minn. Ég komst að því að hann hafði haldið fram hjá mér um tveggja mánaða skeið. Konan var fyrrverandi kærasta hans og þetta var gríðarlegt áfall. Mér fannst eins og allt okkar hjónaband hefði verið lygi, eitthvert millibilsástand meðan hann biði eftir að hún losnaði. Ég var því mjög brotin og kærði mig sannarlega ekki um sambönd við aðra karlmenn en þeir létu mig ekki í friði.“- Draugagangur í nýrri íbúð:„Við fluttum í nýju íbúðina okkar á sólríkum sumardegi. Veðrið endurspeglaði gleði okkar og tilhlökkun því þetta var fyrsta heimilið sem við hjónin áttum sjálf. Dóttir okkar var yfir sig spennt að eignast sérherbergi eftir að hafa þurft að kúldrast með bróður sínum í pínulítilli kompu. Þarna var stór draumur að rætast en hann átti eftir að breytast í martröð.“- Níska fer illa með vináttu:„Ég á vinkonu sem ég hef þekkt í bráðum aldarfjórðung. Villa er orðheppin og gaman að skemmta sér með henni. En eftir að ég spjallaði við gamla vinkonu hennar gat ég loks almennilega fest fingur á það sem orsakar að ég hef lengi verið svolítið á verði gagnvart henni.“ - Ég fyrirgaf mömmu stjórnsemina:„Mamma var alltaf stóri og sterki aðilinn í minni fjölskyldu. Það var sama hvað gekk á það datt aldrei af henni né draup. Þessi styrkur mömmu fór oft í taugarnar á mér, enda fylgdi honum stjórnsemi sem gat gengið út í öfgar. Rétt áður en mamma dó í fyrra skildi ég loks hvað henni hafði gengið til og ég fyrirgaf henni stjórnsemina.“ - Mamma hans neitar að fyrirgefa mér:„Ég og barnsfaðir minn kynntumst á síðasta ári í menntaskóla og fórum að búa saman þegar við hófum háskólanám. Við eignuðumst son í miðju námi og nutum mikillar hjálpar frá fjölskyldu hans. Fyrir fjórum árum skildum við vegna framhjáhalds míns en tókum saman aftur níu mánuðum síðar. Við höfum farið til ráðgjafa og erum mjög hamingjusöm en mamma hans getur ekki fyrirgefið mér fyrri syndir.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Undarlegir endurfundir:„Þegar ég var unglingur gætti ég um tíma barna fyrir konu sem þótti skrautleg og skar sig úr í bænum þar sem við bjuggum. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman aftur og þá hafði margt breyst.“ - Jólin með mínum fyrrverandi:„Á jólunum fyrir þremur árum var ég óhamingjusamari en ég hafði nokkru sinni verið áður. Ég vissi að hjónabandi mínu var lokið. Sambandið var einfaldlega búið, allt dautt á milli okkar. Mér hafði liðið illa lengi en ekki haft hugrekki til að taka skrefið. Jólin voru alltaf uppáhaldsárstíð hjá mér en alein inni á klósetti eftir miðnætti á gamlárskvöld tók ég ákvörðun um að skilja. Hið undarlega er að bestu jól ævi minnar eru nýliðin og ég varði þeim einmitt með þessum sama manni.“ - Mamma spillti sambandi okkar systra:„Við vorum bara tvær systurnar. Agnes þremur árum yngri en ég. Mamma hélt því fram að ég hefði verið afbrýðisöm út í systur mína alveg frá því að hún fæddist. Ég vil hins vegar ekki kannast við að hafa nokkru sinni fundið fyrir öfund í garð hennar en viðbrögð mömmu ýttu ævinlega undir samkeppni og reiði milli okkar.“- Guðsgjöf til mannkyns … :„Þegar langþráður sonur bættist við fjölskylduna fundum við systurnar fjórar vel fyrir því. Látlaust eftirlæti foreldra og annarra ættingja hafði án efa einnig mikil áhrif á bróður minn og ekki til góðs. Hann hefur alla tíð vitað allt betur en aðrir og kunnað að ná sínu fram með samblandi af sjarma og frekju.“- Vonda stjúpan – góða stjúpan:„Ófá ævintýri fjalla um vondar stjúpur sem láta einskis ófreistað til að gera stjúpbörnum sínum lífið leitt, jafnvel koma þeim fyrir kattarnef. Hans og Gréta, Mjallhvít og Öskubuska koma strax upp í hugann. Sjálf hef ég upplifað að eiga stjúpu, alls ekki af betri gerðinni, og undanfarin ár hef ég verið stjúpmóðir tveggja drengja.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með grátstafinn í kverkunum í tvö ár:„Ég var 23 ára og hafði nýlokið háskólaprófi með góðum árangri. Ég taldi mig færa í flestan sjó og eiga bjarta framtíð fyrir mér. Okkur hjónin langaði að eignast barn og það varð úr að við ákváðum að þessi tímamót hentuðu vel til að stofna fjölskyldu. Allan meðgöngutímann var ég fílhraust og blómstraði. Allar konurnar í minni fjölskyldu höfðu átt auðvelt með að eignast börn og ég sá ekki nokkuð því til fyrirstöðu að eins yrði um mig.“- Tók ekki mark á viðvörunum:„Saga mín er lík sögu margra annarra kvenna, ég féll fyrir manni, trúði á hið góða í honum en endaði með að flýja frá honum kalin á hjarta. Mikið gekk á og ég fékk að lokum nálgunarbann á hann. Undanfarið hefur hann látið mig í friði en ég er hrædd um að það sé vegna þess að hann sé kominn með nýtt fórnarlamb að níðast á.“- Örlagaríkt símtal:„Fyrir tæpum tuttugu árum komst ég að því að maðurinn minn héldi fram hjá mér en það voru þó ekki einu svikin sem ég uppgötvaði í kjölfar símtals þar sem viðmælandinn breytti rödd sinni og sagði ekki til nafns.“- Draumurinn sem breytti lífi mínu:„Mig dreymdi fyrsta minnisstæða drauminn á barnsaldri þótt ég hafi ekki skilið hann fyrr en ég varð fullorðin. Draumarnir urðu fleiri en í nokkrum tilvikum vildi ég ekki horfast í augu við merkingu þeirra. Einn afar skýr og erfiður draumur varð síðan til þess að ég gjörbreytti lífi mínu.“- Undir yfirborðinu:„Fyrir rétt rúmum áratug varð ég yfir mig ástfangin af dásamlegum manni. Við vorum bæði í námi þegar við tókum saman og oft mikið að gera. Þess vegna var ekki alltaf allt fullkomið en við vorum hamingjusöm. Það eina sem skyggði á var að mín gallalausa svilkona lét ekkert tækifæri ónotað til að gera lítið úr mér. Nýlega kom hins vegar í ljós að ýmislegt var í gangi undir yfirborðinu á hennar heimili.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Meiðandi orð:„Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.“ - Neyð konunnar gekk mér að hjarta:„Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.“ - Systir í samkeppni:„Ég er næstelst í systkinahópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systkinin vorum ágætlega samrýnd en á unglingsárunum fann ég að systir mín virtist vera komin í einhvers konar samkeppni við mig.“- Faðir hans eyðilagði sjálfsmynd hans:„Þegar ég skildi við manninn minn og stóð uppi ein með drengina mína kom fljótlega í ljós að sambúð mín við föður þeirra hafði skilið eftir ör á sál þess eldri. Hann varð fljótlega fyrir miklu aðkasti í skólanum, enda var vanlíðan hans öllum augljós og börn geta verið grimm. Fagfólk kom inn í málið og ég varð að taka á öllu mínu til að ég og barnið mitt yrðum ekki kaffærð í sérfræðikjaftæði sem hafði ekkert með líf okkar að gera.“- Konan á móti:„Fyrir nokkrum árum bjó ég í sama fjölbýlishúsi og kona nokkur sem hafði átt sérstakt og erfitt líf sem hafði sett mark sitt á hana. Í fyrstu var hún indæl en það breyttist þegar hún fann að ég vildi ekki jafnmikið samband hafa og hún.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Mér leiddist maðurinn minn:„Ég var átján ára þegar ég kynntist Eiríki. Hann varð strax mjög hrifinn af mér og gekk á eftir mér með grasið í skónum heilan vetur. Mér þótti ósköp vænt um hann því þetta var góður strákur en ég get ekki sagt að ég hafi kiknað í hnjánum í návist hans og hjartað barðist svo sem ekkert hraðar þótt ég heyrði rödd hans. Þrátt fyrir það vorum við saman í tvö ár áður en ég sleit sambandinu. Eiríkur var vinur minn og mér fannst hann eiga betra skilið en kærustu sem var svona hálfvolg eins og ég.“ - Vinkona mín gerir lítið úr mér:„Ég tilheyri stórum vinahópi sem hefur haldið saman lengi. Fimm okkar kynntust fyrst í barnaskóla en svo bættust við kærastar, kærustur og vinir vina þar til hópurinn þéttist og varð að þeim kjarna sem nú myndar hópinn. Mér hefur alltaf liðið vel með þessu fólki eða þar til síðastliðið ár. Þá byrjaði ein úr hópnum að gera stöðugt lítið úr mér fyrir framan hina og nú finnst mér ég ekki vita hvar ég hef neinn.“- Þetta átti aldrei að ganga svona langt:„Fyrir löngu fluttum við hjónin út á land þar sem við byggðum okkur nýja tilveru ásamt yngri syni okkar. Á minni stöðum á landsbyggðinni vita flestir flest um flesta og ég varð áþreifanlega vör við það nokkrum árum seinna.“ - Lét alkann stjórna mér allt of lengi:„Þetta byrjaði allt mjög vel og sakleysislega. Ég var að koma úr sjö ára ágætis sambandi, var einstæð með eitt lítið barn í minni eigin íbúð og ágætlega stæð. Barnsfaðir minn var óvirkur alki og hafði verið edrú í nokkur ár þegar við kynntumst. Ég saknaði þess pínulítið að fá mér rauðvín og osta á fallegum kvöldum og bjór við grillið, mig langaði því ekki að ná mér í alka aftur. En þess í stað náði ég mér í bullandi alka – ómeðvitað sem alls ekki var ætlunin.“- Maður á þínum aldri:„Fyrir mörgum árum bjó ég í sveit. Ég eignaðist góða vini og kunningja þennan áratug sem ég var þarna en einn var mér sérstaklega minnisstæður. Löngu síðar tók ég upp sambandið við þennan gamla vin og einmitt þegar hann stóð á miklum tímamótum.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Ekkert er gefið eftir og sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Með harðri hendi:„Ég var alltaf hrædd við móður mína, hún var nánast stöðugt í brjáluðu skapi sem hún lét bitna á allri fjölskyldunni. Ég var að verða fertug þegar ég loks komst að ástæðunni fyrir því.“- Þú átt svo frábæran mann!:„Alltaf verð ég þakklát ömmu minni sem ég var skírð í höfuðið á fyrir að hafa hvatt mig til að mennta mig því án þess hefði tilveran getað orðið svo miklu flóknari og fest mig í erfiðum aðstæðum.“- Nú er Villi búinn að taka niður hringinn:„Fyrir fimm árum réði ég mig í vinnu hjá litlu en stöndugu fyrirtæki. Ég kunni vel við mig að því undanskildu að næsti yfirmaður minn, Villi, var eiginlega óþolandi. Okkur gekk ágætlega að vinna saman en sjálfhverfur persónuleikinn og yfirgangur hans gagnvart mér og öðrum reyndi stundum á þolinmæðina. Svo komst ég að því hver konan hans var.“- Getur ekki samglaðst mér:„Vinkona mín frá barnæsku hefur alltaf verið fyrsta manneskjan á vettvang þegar eitthvað slæmt gerist hjá mér en bregst öðruvísi við þegar vel gengur.“- Af hverju er barninu ekki BJARGAÐ?:„Hvernig má það vera að móðir sem hefur fengið á sig ákærur og margar ábendingar frá félagsmálayfirvöldum síðastliðin sjö ár sé enn með forsjá yfir barni sem bæði leikskóli, skóli og barnaverndarnefnd hafa bent á að sé vanrækt? Spurningu sem þessari er vandsvarað en langlundargeð þeirra er gæta eiga að réttindum barna virðist ótrúlegt og erfitt að sjá að þar sé hagsmuna barnsins gætt í hvítvetna.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  •  Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Grannkonan góða:„Fyrir tveimur árum flutti móðir mín í blokk. Hún hafði ákveðið að minnka við sig eftir að pabbi dó og þetta var falleg íbúð, fullkomin fyrir eina manneskju. Í byrjun gekk allt vel og mamma var mjög ánægð en svo flutti ný kona í húsið og þá breyttist allt.“- Hrökklaðist úr skóla vegna ofbeldis:„Sonur minn var lagður í einelti nánast alla skólagönguna. Hvað eftir annað reyndum við að fá skólayfirvöld itl að taka á málinu en ekkert að gert. Sonur minn var sendur til félagsráðgjafa og sálfræðings skólans því kennarinn hans var viss um að hann væri vandamálið, ekki drengurinn sem níddist á honum. Við komumst að því síðar að sá var sonur vinkonu kennarans ...“- Maðurinn minn reyndi að svipta sig lífi:„Ég get ekki sagt að hjónaband mitt hafi verið hamingjusamt. Frá fyrstu kynnum okkar hjóna var ég undir hælnum á honum. Hann var drykkjusjúkur og auk þess mjög stjórnsamur. Hann hikaði ekki við að beita mig andlegu og líkamlegu ofbeldi ef ég lét ekki að vilja hans. Ef ég stóð fast á mínu hótaði hann að fremja sjálfsmorð ... svo gerði hann alvöru úr hótun sinni.“- Presturinn notfærði sér vanlíðan mína:„Sumarið sem ég varð átján ára fór ég ásamt vinkonu minni að vinna á hóteli út á landi. Ævintýraþráin rak okkur þangað og tilhugsunin um að vinna á vinsælum ferðamannastað fannst okkur mjög spennandi. Fljótlega eftir að við komum á staðinn varð mér hins vegar ljóst að einn íbúanna á staðnum heillaði mig mun meira en þeir ferðamenn sem áttu leið um ...“- Spádómarnir sem rættust:„Ég fór til spákonu þegar ég var að verða 18 ára. Ekki var ég sátt við allt sem hún sagði, ég man það, en skrifaði spána samviskusamlega niður á miða. Ég gleymdi spádómnum fljótlega og týndi miðanum en áratugum seinna fann ég hann og þá brá mér heldur betur í brún. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.