Avsnitt
-
Hverju myndir þú svara ef að maki þinn krefðist þess að þú losaðir þig við börnin þín? Því að samkvæmt maka þínum standa börnin í vegi ykkar að geta átt hamingjusamt samband. Það er ansi auðvelt fyrir flesta að svara þessari spurningu - En, ekki fyrir hina 29 ára gömlu Brittany Gosney. Hún þurfti að velta þessari spurningu vel og vandlega fyrir sér, þar sem hún var svo yfir sig ástfangin af hinum 42 ára gamla James Hamilton. Í þessum þætti förum við yfir stórundarlega atburðarás sem að átti sér stað þann 28 febrúar árið 2021 - Ásamt því að rýna í yfirheyrslu þeirra Brittany og James á lögreglustöðinni, sem eru vægast sagt áhugaverðar.
Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉRVið skráningu í illverk áskriftina færð þú aðgang að yfir 130 aukaþáttum, fimm nýja í mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga, 950,- kr á mánuði. Kynntu þér endilega áskriftarleiðina inni á ILLVERK.IS
-
Eitt skelfilegasta mál vanrækslu sem að heimurinn hefur nokkurntíman séð. Mál Lacey Fletcher, konunar sem að bókstaflega bráðnaði ofan í sófa foreldra sinna. VARÚÐ Þátturinn er ekki fyrir viðkvæma
Þessi þáttur er í áskrift, þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉRVið skráningu færð þú einnig aðgang að öllu aukaefni illverk podcast (120+) þættir, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
-
Saknas det avsnitt?
-
Ég hef aldrei verið beðin jafn oft um að taka fyrir mál eins og þetta. Skelfilegt mál hinnar 17 ára gömlu Junko Furuta. Stelpa sem átti framtíðina fyrir sér, var alveg að fara að útskrifast úr menntaskóla og var á leiðinni í útskriftarferð með vinkonum sínum. Málin fóru hinsvegar á allt annan hátt. Sagt er að mál hennar sé eitt það skelfilegasta í sögu Japan og hefur oft verið kallað The girl in Concrete, eða stelpan í steypunni.
Þessi þáttur er í áskrift. Þú þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉR - Við skráningu í illverk áskrift, færð þú aðgang af öllu áskriftarefni sem ég hef gefið út (120+ þættir) Fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
-
Louise Porton átti tvær heilbrigðar og fallegar stelpur. Þriggja ára gömlu Lexi & 18 mánaða gömlu Scarlett. Í lok ársins 2017 flutti hún með stelpurnar í Rugby á Englandi og hóf þar störf í nýrri vinnu. Með tímanum fór það að reynast Louise mjög erfitt að sinna bæði nýju vinnunni og móðurhlutverkinu. Hún ákvað því að það besta í stöðunni væri að losa sig við allt sem að stóð í vegi fyrir starfsframa hennar. Engum hefði nokkurntíman grunað hvað hún valdi að losa sig við.
Þátturinn er í boði SIXT langtímaleigu
-
Skelfilegt mál hinnar ungu og efnilegu Micaelu Costanzo. Þessi þáttur kom út í illverk áskriftinni árið 2021. Í mars síðastliðinn voru liðin 10 ár frá þessum harmleik og vil ég þess vegna leyfa hinum almenna hlustanda að heyra mál hennar í opinni dagskrá.
Hvíldu í friði Micaela.
Þátturinn er í boði SIXT langtímaleigu.
Þú getur skráð þig í áskrift af illverk hlaðvarpsþáttum inni á illverk.is - Þannig færð þú aðgang að yfir 120 þáttum, fimm nýir koma inn í hverjum mánuði og þessir fríu vikulegu eru án auglýsinga.
-
Þegar íbúar Antill götu í Canberry, Ástralíu, sjá sjúkraliða bera á milli sín líkbörur út úr húsi 79, bregður þeim verulega. Á því heimili bjó ungt fólk með framtíðina fyrir sér. Það átti þó ekki eftir að líða langur tími þar til kom í ljós að um eitt undarlegasta sakamál Ástralíu var að ræða.
Þessi þáttur er í áskrift - Þú getur skráð þig í hana HÉR og þannig fengið aðgang að þættinum. Ásamt því að fá aðgang að yfir 120 öðrum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
-
Zahra Claire Baker var mögnuð tíu ára stelpa. Sama hvað bjátaði á, var hún alltaf með bros á vör og fór áfram á jákvæðni og kátínu. Hún smitaði út frá sér gleði og hamingju - en, það var þó ein manneskja sem gat ekki með nokkru móti notið nærveru Zöhru og náði með illsku sinni að þröngva sér inn í líf hennar og eyðileggja allt.
Þátturinn er í boði SIXT LANGTÍMALEIGU
-
Þann 21. október 2009 hvarf hin 9 ára gamla Elizabeth Olten. Hún hafði ætlað sér að leika örlitla stund við vinkonu sína sem bjó á næsta bæ. Hún skilaði sér hinsvegar aldrei heim. Við tók stórtæk rannsókn og leit af Elizabeth en fljótlega áttu málin eftir að færast í óvænta og stórfurðulega átt.
Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig í áskrift HÉR
-
Hvað myndir þú gera ef ókunnugur einstaklingur stæði við rúmmið þitt og horfði á þig sofa, með epli í annari og exi í hinni?
Árið 1991 fór af stað hrina innbrota í bænum Queen Anne í Seattle. Bær sem áður var rólegur og öruggur breyttist á einni nóttu. Fólk keypti sér byssur, setti auka lása á alla glugga og hurðir. Ekki nóg með það, heldur snar hætti það að versla ávexti inn á heimilið, þar sem innbrotsþjófurinn át alla ávexti er hann braust inn og skyldi svo eftir hýðið á gólfinu hjá rúmmi heimilisfólksins.
Þú getur hlustað á þáttinn í heild sinni með því að skrá þig í áskrift af illverk HÉR
-
Mál hinnar umdeildu Lizzie Borden sem spilaði stóran þátt í einu óhugnarlegasta óupplýsta morðmáli í sögu Bandaríkjanna.
Þátturinn er í boði SIXT LANGTÍMALEIGU
-
Það var mikið að gera á verslunnargötunni Anderson Lane í Austin, Texas þann 6. desember árið 1991. Jólin nálguðust og var örtröðin samkvæmt því. Vinkonurnar Jennifer og Eliza stóðu vaktina í hinni sívinsælu Jógúrt sjoppu I can't believe it's yogurt, sem var staðsett í enda göngugötunnar og afgreiddu þær svanga viðskiptavini frá 16:00-23:00. Stelpurnar voru sautján ára gamlar og elskuðu að fá að vinna saman og græða smá pening í þokkabót. Þeir viðskiptavinir sem þær afgreiddu þennan dag, grunaði ekki að þessar brosmildu og vinalegu stelpur, ættu aðeins nokkrar klukkustundir eftir ólifaðar.Þú getur hlustað á þáttinn í heild sinni með því að skrá þig HÉR
-
Sjúk stjórnsemi, græðgi og höfnun getur látið fólk gera hræðilega hluti. Morðingjanum í þessu tiltekna máli fannst við hæfi að síðasti hvíldarstaður fórnarlambsins væri ofan í rotþró, sturlunin innra með honum var það mikil.
Þátturinn er í boði SIXT LANGTÍMALEIGU
ILLVERK.IS
-
Mál þeirra Anissu Weier & Morgan Geyser. Vinkonurnar sem að urðu helteknar af yfirnáttúrulegu verunni The Slender Man.
Þessi þáttur er í áskrift - Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉR - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 110+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
-
Hinn almenni hlustandi fær að þessu sinni að skyggnast inn í illverk áskriftarleiðina. Þessi þáttur kom út í ágúst árið 2021 og fjallar um eina þekktustu skotárás í sögu Bandaríkjanna. Mál sem hvert mannsbarn hefur heyrt um - Columbine Shooting Massacre.
Þann 20 apríl árið 1999 réðust vinirnir Dylan Klebold og Eric Harris inn í Columbine menntaskólann og skutu þar saklausa nemendur. Þeir höfðu skipulagt þennan dag í langan tíma og trúðu því að með þessu, myndu þeir skilja eftir spor sem myndi aldrei gleymast. Því miður, var það hárrétt hjá þeim.
Þátturinn er í boði SIXT LANGTÍMALEIGU
Skráðu þig í áskrift HÉR - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 100+ áskriftarþáttum. Fimm nýja þætti í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. Aðeins 950,-kr
-
Skorski raðmorðinginn Robert Black átti aldrei möguleika í lífinu. Frá blautu barnsbeini var hann útskúfaður og honum strítt, en ungur fékk hann uppnefnið Smelly Bobby Tulip. Á eldri árum urðu hugsanir hans um börn ljótar og þrálátar, uns hann lét undan. Á nokkrum árum varð hann einn aldræmdasti fjöldamorðingi sem að Bretland hafði nokkurntíman augum litið.
* VARÚÐ: ILL MEÐFERÐ Á BÖRNUM *
Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉR - Við skráningu í áskrift færðu einnig aðgang að yfir 120+ aukaþáttum, 5 nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga.
-
Mál Rachel Barber er talið eitt furðulegasta sakamál sem hefur átt sér stað í Ástralíu - Rachel var 15 ára þegar hún hvarf sporlaust. Það kom öllum á óvart þegar kom í ljós að morðinginn var náin fjölskylduvinur.
Þátturinn er í boði SIXT LANGTÍMALEIGU
-
Samantha Wohlford dreymdi um að verða Youtube stjarna. Líf hennar tók þó aðra stefnu þegar hún fékk boð sem hún gat ekki hafnað, boð sem átti eftir að breyta lífi hennar og barnanna hennar 5 varanlega.Þátturinn er í boði SIXT langtímaleigu
Skráðu þig í áskrift af illverk og fáðu aðgang að yfir 100 aukaþáttumILLVERK ÁSKRIFT
-
Þátturinn er í boði SIXT langtímaleiga
-
Larry Paul McClure er einstaklingur sem réttarkerfi Bandaríkjanna hefði aldrei átt að sleppa lausum út í samfélagið. Um leið og hans 17 ár í fangelsi voru yfirstaðin, notaði hann frelsið sitt til þess að níðast á fólki í kringum sig.
TRIGGER WARNINGÞátturinn inniheldur skelfilegar lýsingar. Kynferðisafbrot gegn börnum, morð og sifjaspell.
Þessi þáttur er partur af illverk áskriftinni - Þú getur hlustað á hann í fullri lengd með því að skrá þig HÉR
-
Diane & Mark Staudte virtust lifa ameríska drauminn, en þið vitið hvernig þetta virkar, það er ómögulegt að dæma bókina útfrá kápunni. Árið 2012 átti sér stað hrina hörmulegra atvika innan fjölskyldunnar. Fólk sem að þekkti til the Staudte's sárvorkenndi þeim, hvað er eiginlega hægt að leggja á eina fjölskyldu? Það kom þó fljótlega í ljós að hlutirnir voru ekki alveg eins og þeir sýndust, þvert á móti.
Þessi þáttur er partur af illverk áskriftinni. Þú getur hlustað á hann í fullri lengd með því að skrá þig HÉR - Við skráningu færð þú einnig aðgang að yfir 100+ aukaþáttum og fimm nýja í hverjum mánuði.
www.illverk.is
- Visa fler