Avsnitt
-
Gulla og Lydía skoða hvort lífið breytist eftir fertugt. Stundum heyrist sagt að lífið byrji eftir fertugt eða að lífið verði miklu betra eftir fertugt. Er það satt? Eða er lífið erfiðara eftir fertugt en fyrir þann aldur?
Stelpurnar ræða málið og skoða margar hliðar á lífinu eftir fertugt. Hvernig sjálfstraustið er mögulega aðeins meira en hvernig þær eru orðnar meiri “dúllur” og þurfa að hugsa betur um sig. Svo finnst Gullu soldið erfitt að vera þremur árum eldri en Lydía og finnst frekar pirrandi að vera að tala um það!
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason. -
Við ákváðum óvænt og með engum fyrirvara að taka upp þátt þar sem við töluðum um það hvernig upplifun það var að búa til podkast. Hvenær og hvernig varð hugmyndin til? Hvernig hefur gengið? Hvað hefur verið erfitt í ferlinu og hvað hefur verið auðvelt?
Skemmtilegur þáttur þar sem orkustigið og gleðin er mikil. Lydíu og Gullu liggur mikið á hjarta og langar að þakka hluta af því góða fólki sem hjálpaði okkur að láta podkast drauminn rætast. Góða skemmtun!
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason. -
Saknas det avsnitt?
-
Við höldum áfram að tala um streitu, en núna skoðum við hvernig taugakerfið tengist streitu. Í þættinum setur Lydía aftur á sig sálfræðingshattinn og fræðir Gullu og hlustendur um taugakerfið. Gulla segist ekkert vita um taugakerfið, en Lydía fæst við taugakerfi fólks í vinnunni alla daga.
Hvað er þetta taugakerfi? Hvernig virkar það? Hvað þýðir að vera strekktur á taugum? Hvernig hefur streita og áföll áhrif á taugakerfið? Gulla ásamt hlustendum fá svör við öllum þessum spurningum í þættinum. Góða skemmtun!
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason. -
Hæ og takk fyrir að hlusta.
Þessi þáttur af Í alvöru talað! er frábrugðinn öðrum. Þetta er stuttur þáttur, svokallaður örþáttur, sem inniheldur stutta hugleiðslu fyrir þig. Komdu þér fyrir í ró og næði og njóttu þessarar hugleiðslu. Hún getur hjálpað þér að róa taugakerfið aðeins og að tengjast þér betur. Hugleiðslan er gjöf frá mér til þín. Njóttu vel!
Kveðja, Lydía.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
-
Í þessum þætti af Í alvöru talað! fjöllum við um gleði frá ýmsum hliðum. Er gleði bara viðbrögð okkar við því sem gerist eða getum við stjórnað henni sjálf? Getum við bætt lífið okkar með því að reyna að auka gleðina?
Lydía og Gulla upplifa gleðina á ólíkan hátt. Gullu er eðlislægt að bæta gleði og fíflaskap inn í flest sem hún gerir en Lydía á það til að upplifa lífið með of miklum alvarleika. Er Gulla í bullinu? Hvað segir sálfræðingurinn?
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
-
Í þessum þætti af Í alvöru talað! skoðum við saman hvort það skiptir okkur einhverju máli að hugsa um útlitið. Hverju getur það breytt og hverju getur það ekki breytt. Er það að hugsa um útliði yfirborðskennt prjál eða er það öflugt verkfæri til sjálfsástar.
Þrusulíflegar samræður um útlit þar sem Gulla kennir okkur alls konar trikk og hlær að því að Lydía viti ekki hvað rótarsprey er.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.
-
Við elskum að tala um streitu! Í þættinum setur Lydía á sig sálfræðingshattinn og fræðir Gullu og hlustendur um streitu. Hvað streita er, hvernig mismunandi streituvaldar geta valdið álagi ásamt því að við ræðum það hvað hægt er að gera til þess að minnka streitu, hlúa að sér og finna jafnvægið.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason. -
Í þættinum kynnumst við Lydíu Ósk, sem er annar stjórnanda hlaðvarpsins. Lydía segir frá lífi sínu og hvað hefur mótað hana og gert að þeirri manneskju sem hún er í dag.
Lydía er þriggja barna móðir, sálfræðingur og jógakennari. Hún er sterk og dugleg kona með það markmið að minnka streituna í samfélaginu. Í æsku var hún ábyrgðarfullur nörd sem fannst hún ekki passa inn í hópinn í skólanum.
Lydía hefur mest alla ævina haft of mikið að gera og hefur tvisvar sinnum misst heilsuna, í fyrra skiptið vegna raka og myglu á heimilinu en í seinna skiptið vegna langvarandi streitu. Kulnunin breytti Lydíu heilmikið. Hún ákvað eftir það að skipta um starfsvettvang og hjálpa fólki í starfi sínu sem sálfræðingur. Einnig stofnaði hún fyrirtækið sitt Gott jafnvægi og heldur námskeið um streitu sem einnig heitir Gott jafnvægi.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað! á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason. -
Í þættinum kynnumst við Gullu, sem er annar stjórnanda hlaðvarpsins. Gulla segir frá lífi sínu og hvað hefur mótað hana og gert að þeirri manneskju sem hún er í dag.
Gulla er tveggja barna móðir, förðunarfræðingur, áhugaleikari og grallaraspói með ólæknandi áhuga á öllu sem tengist tísku og förðun. Hún hress, skemmtileg og klár kona sem elskar að hjálpa öðrum konum að auka sjálfstraust sitt í gegnum föt og förðun. Hún ólst upp í Árbænum og átti góðar og traustar vinkonur en heimilisaðstæður voru alls ekki góðar. Móðir hennar glímdi við alvarlegan geðsjúkdóm og faðir hennar við alhóhólisma. Æska hennar var því mjög strembin en hún komst vel í gegnum þetta og sigraði brekkurnar með jákvæðu viðhorfi og þrautseigju.
Það hefur því verið krefjandi verkefni fyrir Gullu að vinna úr þessari reynslu. Hún fór í burnout en hefur náð vopnum sínum á ný með sjálfsmildi og sjálfsvinnu.
Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?Í alvöru talað á Instagram
Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram
Gulla á Instagram
Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.