Avsnitt
-
Að vera til staðar. Að hjálpa og aðstoða. Hvaða áhrif hefur það á aðstandendur að sjá ástvini glíma við andlega erfiðleika, Hvað er best að gera og er til einhver töfralausn? Hvernig get ég verið til staðar án þess að leiðast út í meðvirkni fyrir ástvini. Sigurlaug Sara og Steiney skoða hlið aðstandenda og hitta á Írisi Ósk Ólafsóttur, fjölskyldufræðing og Önuu Lísu Ríkharðsdóttur.
-
Fíkn Hvað er fíkn og hvenær er einhver orðinn fíkill? Hvenær er ráðlagt að skoða eigin venjur og athuga hvort fíknivandi sé til staðar? Sigurlaug Sara og Steiney Skúladóttir hitta Valdísi Ösp Ívarsdóttur og Ölmu Mjöll Ólafsdóttir.
-
Saknas det avsnitt?
-
Manneskjan er félagsvera og nýtur sín meðal fólks. Hvað er hægt að gera við því þegar maður hefur einangrað sig og finnur fyrir einmanaleika? Hver er munurinn milli þess að vera einn og að vera einmana. Rafræn samskipti, samfélagsmiðlar, meiðsli koma fyrir í þessum þætti um einmanaleika. Sigurlaug Sara og Steiney hitta Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sálfræðing og ræða um einmanaleika meðal ungs fólks í dag. Einnig hitta þær Önnu Maríu Björnsdóttur og ræða einmanaleika eftir höfuðáverka í fótboltaleik.
-
Íslendingar eiga Norðurlanda met í notkun geðlyfja. Hvers vegna förum við á geðlyf? Hvað gera þessi lyf? Hvers vegna er frasinn ,,farðu út að hlaupa“ svo vinsæll þegar reynt er að hressa niðurlútan ástvin við? Sigurlaug Sara og Steiney Skúladóttir hitta Erik Eiríksson og Lóu Björk Björnsdóttur og ræða notkun geðlyfja, kosti þeirra og ókosti.
-
Hvenær eru megrunarkúrar og matarvenjur okkar farin að hafa neikvæð áhrif á daglegt líf? Hvers vegna eiga svo margir í óheilbrigðu sambandi við mat? Má segja að samfélagið sé með átröskun? Sigurlaug Sara og Steiney Skúladóttir hitta Maríu Þóru og Helgu Guðrúnu og ræða um matarvenjur, átraskanir, ofát og megrunarkúra.
-
Hvað er lágt sjálfsmat? Hver er munurinn á sjálfstrausti og sjálfsmati? Sigurlaug Sara og Steiney Skúladóttir skoða áhrif lágs sjálfsmat og tilhneigingu okkar til samanburðar. Viðmælendur eru Baldur Hannesson, sálfræðingur og Björk Guðmundsdóttur, leikkona.
-
Svefn er okkur nauðsynlegur. Við þekkjum flest til óþægindanna að vera illa sofin. Hver er partur svefns í andlegri heilsu og hvers vegna er hann okkur lífsnauðsynlegur? Sigurlaug Sara og Steiney Skúladóttir hitta Erlu Björnsdóttur doktor í svefnrannsóknum og Pálma Frey Hauksson og ræða um svefn og svefnleysi.
-
Tilfinningar eru sammannlegar. Við virðumst öll þekkja til þess að sveiflast dag frá degi tilfinningalega en stundum verða sveiflurnar meiri og dýpri. Hvernig er hægt að hafa stjórn á þessum sveiflum? Hvernig náum við tökum á tilfinningum okkar og eigum við að stjórna þeim eða leyfa hjartanu að ráða för? Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir fá til sín Ingu Wessman og Sigurð Unnar Birgisson og ræða um tilfinningar og tilfinningastjórnun.
-
Útvarpsþáttur um geðheilbrigði Íslendinga. Umsjón: Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir.