Avsnitt
-
Hefnendurnir hafa áhyggjur af Tick ruglingi, átta sig á aldri iMax, skipta sér af Skerjagarðsdrama og syrgja Sam.
-
Hefnendurnir rannsaka mútanta Íslandssögunnar, rugla saman Carpenter og Gomez, spá í hrukkur Ali G og láta sig dreyma um vélvini framtíðarinnar.
-
Saknas det avsnitt?
-
Strákarnir ræða um Helsinki syndrómið, áhrifavaldarassa, píkuhallir, nornahreima, gervi-wonka, endaleysuframhöld og ofurstelpur.
-
Ævar fer yfir helstu animationfréttirnar í okkar júniversi og Hulli bjargar Marvel Cinematic júniversi En hvorugir botna þeir neitt í quantum júniversi (Hey það er nú einu sinni júní(versi)).
-
Strákarnir spjalla um óþarft áframhald Austins, meltingarfæri hvals, nýjustu geimverumynd geimverumeistarans, íslenskar poppfötur og Arthúr Björgvin Bollason.
-
Ævar mikli og Hulli litli ræða um upphaf nördahaustsins, fráhvarf doktorsins, endurgerða sjóræningja, framhaldna fugla, klippta tittlinga og tik tok villinga.
-
Hulkleikur og Ævorman taka símafund yfir hafið um mandolínmanninn, falsaðan ofurhetjuhöfund, endurtekinn nýju-jórvíkurflótta, hnefaleikahæfileika útikatta og endalok strákanna.
-
Félagarnir voga sér í dýfuna, kýla í fötuna og fara gaumgæfilega yfir kvikmyndasumarið 2026.
-
ÆvorMan og Hulkleikur póka hvorn annan í mon, hafa uppá vampýrum í sjöheimi og skella sér á date night í stjörnuþoku langt langt í burtu.
-
Hulli upprifjar uppistand, Ævar púslar Pratchett, báðir blaðra um Ofurhugabrölt, Goðheimagusugang og Tinnatjón.
-
Hulkleikur og ÆvorMan minnast liðinna skiptikorta, velta fyrir sér verðbólgu ástarinnar og telja upp besta dósahláturstilefnið á youtube.
-
Félagarnir forðast að fara yfir faðm-protocol, tala um traðk á tinnarétti, detta í djúpa digital dótaskúffu, týnast í tölusettum tímalínum teiknimyndasögurisa og leiðrétta lygar um lýtalæknaðan lagasmið.
-
Hulli og Ævar spila kvikmynda-sudoku, fagna nýjum ritstjóra upplýsingastríðsins og flótta sléttuúlfsins undan skattaafskriftum, eru misspenntir yfir leirkallastiklu og reyna að muna hvað í ósköpunum bækurnar hétu þarna með stelpunni og stráknum og apanum þarna sem sami og gerði Tinna gerði.
-
Endur hefndarinnar fá Þorstein Joð til að finna góða þýðingu á Intellectual Property, reyna að éta hina ríku áður en þeir éta okkur, skammast útí loftbeyglaraþjófa og fagna komu Bullocks á grammið.
-
Hefnendurnir fara enn og aftur í tiltölulega niðurstöðulaust umræðuferðalag um óumflýjanleika gervigreindarinnar, endurreista undraheima, ekki svo fantastic mr. fantastic og aldur Jasons Voorhees.
-
Hulkleikur Dagsson og ÆvorMan Grímsson búa sig undir páskahret með því að etja saman eingyðistrú og fjölgyðistrú, lúffa fyrir erfiðleikum streymisveitusveltis og minnast lítilega á elskhuga gilmore mæðgna.
-
Öndunarvélarbræðurnir taka nauðsynlegt spjall um live action disney remake slop, líkamshrylling oflimaðs kónulóarmanns, gervigreind Orsons Wells, brottför Chuckys og hljómsveitina 30 seconds to ass.
-
Leikur Hulksins og Maður Ævorsins fara yfir afhendingar akademíunnar, vandræði vampýrubanans og grænbúningaleysi geimlögreglunnar.
-
Hefnendurnir taka heljarstökk í þróunarsögu sinni og kynna til sögunnar nýja áskrifatrmöguleika! Hverjir halda þeir að þeir séu? Stöð tvö árið 1986? But seriously, folks. Tékkið á Patreon.com/hefnendurnir ef þið viljið gerast Neðanjarðarbúar.
-
Ævar hristir af sér veiru og ræðir við Hulla sinn um mennskar puntsvínstennur, dvínun treksins og sjö kraftmiklar framhaldsmyndir.
- Visa fler