Avsnitt
-
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní.
Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net.
Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira.
Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistarar senda á mótið. -
Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn.
Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar.
Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum.
Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn. -
Saknas det avsnitt?
-
Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg.
Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið.
Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót. -
Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill.
Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley.
Þá er fjallað um íslenska boltann. -
Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt.
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira.
Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru báðar að finna sig vel í öflugu umhverfi á Hlíðarenda. -
Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnarsson stýrir að þessu sinni en með honum eru Haraldur Árni Hróðmarsson og Tómas Þór Þórðarson.
Það var sett markamet fyrir eina umferð en varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska, þá sérstaklega ekki hjá KR í Vesturbænum.
Ísak Snær sendi skilaboð í Kórnum, Víkingur þurfti að hlaupa mikið gegn Fylki, Vestri barði á Stjörnumönnum, ÍA lagði vonlausa KA-menn og FH tapaði niður þriggja marka forystu gegn Fram. -
Útvarpsþátturinn á kosningadegi. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, er með þeim í þættinum. Þeir þrír fara yfir helstu fótboltafréttir vikunnar, leiki Bestu deildarinnar og Lengjudeildarinnar og ýmislegt fleira.
Í seinni hlutanum kemur Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitíkinni. Hann hefur skoðað samantektarskýrslu Deloitte og KSÍ um fjármál íslenskrar knattspyrnu og fer yfir það sem honum finnst áhugaverðast. -
Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn fóru yfir bikarúrslitaleikinn og tímabilið hjá Manchester United með Sæbirni Steinke.
Man Utd varð bíkarmeistari eftir sigur á Man City um síðustu helgi, úrslit sem komu mörgum á óvart.
Einstakir leikmenn í liðinu voru til umræðu og rætt vel um framtíð stjórans. Þá voru vangaveltur um hvaða leikmenn þyrfti að selja og hvaða stöður þyrfti að styrkja -
Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er Örn Þór Karlsson fótboltaþjálfari.
KR tapaði niður tveggja marka forskoti gegn nýliðunum, umdeild vítaspyrna réði úrslitum á Akranesi, stór dómaramistök á Hlíðarenda og sex stiga fallbaráttuslagur í Árbæ. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í hljóðveri.
Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann. Þarfagreining fyrir toppliðin í Bestu deildinni, landsliðsval Age Hareide, Lengjudeildina og fleira.
Í seinni hlutanum er uppgjör Kristjáns Atla á tímabilinu í enska boltanum. -
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason skoða alla leikina.
Blikar elta Víkinga, Jónatan Ingi hetja Vals í Kórnum, vondur vítadómur í Krikanum og KA vann botnslaginn. Lengjudeildarhornið er á sínum stað. -
Man City vann deildina fjórða tímabilið í röð. Einstakt afrek. Pep er klárlega besti knattspyrnustjóri sögunar. Arsenal sitja eftir í öðru sæti með 89 stig. Chelsea fer inn í Evrópudeildina. Aston Villa í fyrsta sinn í meistaradeildinni á næsta tímabili. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað. Tímabilið gert upp.
-
Enska úrvalsdeildin kláraðist núna um helgina en Manchester City varð Englandsmeistari fjórða árið í röð.
Jurgen Klopp stýrði sínum síðasta leik hjá Liverpool og Manchester United tryggði sér áttunda sætið.
Magnús Haukur Harðarson og Jón Kaldal mættu í heimsókn í dag og fóru yfir lokaumferðina, sem og tímabilið í heild sinni. Þeir völdu lið ársins, leikmann ársins og stjóra ársins. Og líka mestu vonbrigðin.
Núna er partýið búið en það er stutt í það næsta. -
Elvar Geir stýrir hringborðsumræðum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
Við hringborðið er farið yfir fréttir vikunnar en meðal annarra umræðuefna er: Þeir bestu og mestu vonbrigðin í Bestu deildinni, leikir vikunnar í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Bestu, Lengjudeildin og lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni.
Með Elvari við hringborðið eru Baldvin Borgarsson þjálfari og sérfræðingur og Sæbjörn Steinke og Sverrir Örn Einarsson fréttamenn Fótbolta.net. -
Úrslitin um titilinn ráðast á sunnudag. Man City er með þetta í sínum höndum. Tottenham gáfu City hörku leik í vikunni en nýttu ekki færin. Chelsea mögulega að ná inn í Evrópudeildina með mjög góðum endaspretti. Foden eða Rice leikmaður tímabilsins? Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
-
Það er mjög svo spennandi lokaumferð framundan í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og svo gríðarlega áhugaverður leikur í kvöld sem gæti haft mikil áhrif á það hvaða lið verður meistari.
Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, og Magnús Valur Böðvarsson, stuðningsmaður Crystal Palace, mættu í heimsókn í dag til að taka stöðuna.
Hvort verður Arsenal eða Manchester City enskur meistari? -
Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Það er sportbarinn Ölver sem býður upp á Innkastið.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke skoða alla leiki umferðarinnar. Víkingur vann toppslaginn, pressan eykst á Gregg Ryder, HK í fantastuði, gæði Breiðabliks gerðu gæfumun, Valur vann KA og ÍA vann Vestra.
Dómararnir áttu góða umferð! -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. maí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór.
Böðvar Böðvarsson leikmaður FH er gestur en hann kom aftur heim fyrir tímabilið eftir atvinnumennsku. FH-ingar hafa farið vel af stað á tímabilinu og leika toppslag gegn Víkingum.
Rætt er um stórtíðindin í gær en Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði óvænt upp hjá Haugesund. Þruma úr heiðskíru. Í hvaða starf fer hann næst?
Í þættinum er 1-1 jafntefli Stjörnunnar og Fram gert upp ásamt því að aðrir leikir umferðarinnar í Bestu deildinni eru skoðaðir. Þá er lið umferðarinnar í Lengjudeildinni opinberað og fleira. -
Haaland í stuði á Etihad. 6 mörk á Anfield. Arsenal heldur titildraumunum lifandi. Crystal Palace burstuðu Man Utd. Lánleysi Burnley heldur áfram. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
-
Áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist með ótrúlegum leik Crystal Palace og Manchester United í gær. United fékk þar vænan skell.
Þeir Chelsea félagar Jón Aðalsteinn Kristjánsson og Stefán Marteinn Ólafsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina.
Spennan er heldur betur farin að magnast. Hvaða lið vinnur deildina og hvaða lið fer eiginlega í Sambandsdeildina? - Visa fler