Avsnitt
-
Þórarinn ræðir við Frosta Logason, útvarps- og hlaðvarpsstjórnanda veitunnar Brotkast. Í þættinum er rætt um hið nýja hægri í Evrópu, stjórnmálin á Íslandi, #MeToo, Vestræn gildi og viðmið, trúleysi og Kristna trú og margt fleira.
Hlaðvarpið í heild má finna á pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við Háskóla Íslands um nýja skýrslu Margrétar um tengsl ungra innflytjenda við samfélagið. Sérstök áhersla er lögð á glæpatíðni á Norðurlöndunum og rætt hvort að rekja megi fjölgunina til aukins fjölda innflytjenda.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Saknas det avsnitt?
-
Þórarinn ræðir við Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins. Guðmundur telur að mikið af þeim samfélagsmálum sem eigi sér stað megi með beinum eða óbeinum hætti rekja að miklu leiti til lesblindu. Stjórnvöld geri ekki nægilega mikið til þess að koma til móts við fólk með lesblindu, ungt fólk, og sérstaklega strákar, verði því fyrir mismunun sem brýst út í óæskilegri hegðun. Þeir einstaklingar sem að eru ekki greindir með lesblindu séu einnig í mun meiri áhættuhóp til þess að fara út af sporinu og færir Guðmundur Skúli rök fyrir sínu máli með því að benda á að 80% fanga í Finnlandi séu lesblindir.
Til að styrkja þetta framlag má fara inn á www.pardus.is/einpaeling -
Stefán Baxter er frumkvöðull sem að hefur komið af fjölmörgum verkefnum sem varða tæknigeirann og starfar í dag sem framkvæmdarstjóri snjallgagna. Hann er viss um að gervigreindin muni koma til með að umbylta okkar hugmyndum um störf og að eftir tíu ár verði hlutirnir orðnir allt öðruvísi.
- Hvernig verður þín persónulega gervigreind?
- Verða tölvunarfræðingar ónothæfir?
- Hvaða störf munu hverfa?
- Hvernig mun upplýsingaöflun breytast?
Þessum spurningum er svarað hér.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson um ýmis mál sem snýr að gríni og bransanum í kringum uppistandið. Fjallað er um hvort að grínistar eigi að skipta sér að stjórnmálum, forvirka meðvirkni, hvort að spuni sé skemmtilegur, veitt er hjónabandsráðgjöf, rætt um föðurlaus börn, þróun framtíðarinnar, heimsmálin og íslensk stjórnmál.
Til þess að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Brynjar Karl, körfuboltaþjálfara og frumkvöðul. Brynjar hefur reynslu af því að starfa í Efra Breiðholti og í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að starfa þar, hvernig eigi að takast á við félagsleg vandamál, þjálfun, markmið, hvað það þýðir að vera sterkur einstaklingur, framtíðina og margt fleira.
Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðakerfið, áhrif þess og praktískt eðli er varðar stríðið á Gaza, loftslagsmálin, stríðið í Úkraínu, alþjóðasáttmála og margt fleira.
- Getur alþjóðakerfið leyst loftslagsvána?
- Hvaða áhrif hefur stríðið á Gaza á alþjóðakerfið?
- Hvað mun gerast í Úkraínu?
- Er Ísland á villigötum í loftslagsaðgerðum?
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Tóti speaks with Mads Gilbert, a physician and a specialist in anesthesiology who has been fighting for the Palestinian cause for decades.
What is happening in Gaza today? How can the conflict be resolved?Are the numbers provided by health officials in Palestine to be trusted?What does this conflict mean for the political situation in the Western world?
All of these questions, and more, are answered in this podcast. -
Þórarinn ræðir við Dagbjörtu Hákonardóttur um leikskólamál, stjórnmálin, nýju stefnu Samfylkingarinnar, útlendingamál og bollaleggingar í því hvaða flokkum Samfylkingin væri tilbúin að vinna með.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Jón Bjarka en hann er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Lögð er sérstök áhersla á efnahagsmál og hvaða áhrif húsnæðismarkaðurinn hefur á efnahagshorfurnar næstu árin.
Fjallað er um:
- Inngrip hins opinbera.
- Er peningaprentun hins opinbera stjórnlaus?
- Hvaða áhrif hefur ákvörðun Seðlabankans á húsnæðismarkaðinn?
- Er möguleiki að lækka stýrivexti án þess að húsnæðisverð fari enn hærra?
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Farið er yfir víðan völl og rætt um ríkisfjármálin, framleiðni fyrirtækja, fyrirsjáanleika, stjórnmálin, heilbrigðiskerfið og heimspeki.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir að þessu sinni við síðasta forsetaframbjóðandann, Katrínu Jakobsdóttur.
Rætt er um eftirfarandi málefni:
- Fóstureyðingar
- Mannréttindastofnun
- Verður VG sterkari án Katrínar?
- Er Katrín stoltur Íslendingur?
- Nýju stjórnarskrána -
Þórarinn ræðir við Ingu Sæland, formann Flokk fólksins. Rætt er um stjórnmálin, öryrkja, húsnæðis- og leigumál, útlendingamál og Eurovision sniðgönguna.
Hlaðvarpið má finna í heild á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn speaks with Ron Nehring and David Reade from the Leadership Institute where immigration, economics, politics and the Republican party are discussed.
-
Þórarinn ræðir við Höllu Hrund Logadóttur en hún býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi.
Í þessu hlaðvarpi er rætt um orkumál, háskólamál í Bandaríkjunum, hvaða áherslur Halla telur sig muna koma til með að leggja áherslu á verði hún forseti og margt fleira.
Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Jasmínu Vajzović Crnac um viðsnúning Samfylkingarinnar í hælisleitendamálum. Fjallað er um orðið inngildingu, agavandamál í skólum, hvernig eigi að takast á við glæpi sem framdir eru af erlendum ríkisborgurum, stefnu stjórnvalda og margt fleira.
Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Heiðar Guðjónsson um Landspítalann, hugmyndafræði, Javier Milei, ábyrgð og skyldur, útlendingamál, orkumál og forystu Sjálfstæðisflokksins.
-
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eða HMS. Þórarinn ræðir efasemdir um, og fær svör við, ákvarðanir um:
Hlutdeildarlán og önnur sértæk úrræðiMerkjalýsingarSértök úrræðiLoftslagsmarkmiðForgangsröðunEr mygla í skólum siðfár?Hlaðvarpið í heild sinni má finna á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Jón Gnarr en hann býður sig fram til forseta í kosningum sem háðar verða þann 1. júní næstkomandi.
Í þessu hlaðvarpi er rætt um áherslur Jóns, hvort að grínisti geti valdið svo formlegu embætti, hvað hann vill setja á dagskrá verði hann forseti, muninn á þjóðarstolti og stærilátum, framboð Katrínar Jakobsdóttur, Bandaríkin og margt fleira.
Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling -
Þórarinn ræðir við Helgu Þórisdóttur um það hvaða áherslur hún sér fyrir sér að leggja fram fyrir komandi kosningar en hún hefur boðið sig fram til forseta.
Rætt er um persónuvernd, gildi, agaleysi í skólum, PISA kannanir hvort að börn séu snillingar og margt fleira. - Visa fler