Avsnitt
-
Árið 1993 varð hugmynd Friðriks Weisshappel og Dýrleifar Ýrar Örlygsdóttur að Kaffibarnum að veruleika. Staðurinn varð fljótt að suðupotti listafólks, tónlistarfólks og næturhrafna og átti stóran þátt í að móta skemmtanalíf og ímynd miðborgar Reykjavíkur. Við förum yfir söguna, fólkið og stemninguna sem gerði litla rauða húsið að einu helsta kennileiti íslensks næturlífs. Gestur þáttarins er blaðamaðurinn Andrés Magnússon, sem var einn af stofnendum Kaffibarsins.
-
Í fjórða þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi, Birgir og Kristján Högni niður og ræða það helsta úr veitinga-, skemmti- og borgarlífinu.
Þeir fara yfir Hjarta Hafnarfjarðar, velta fyrir sér hvar sé best að horfa á HM og ræða hvað vanti í miðbæ Reykjavíkur — þar á meðal hvort það sé kominn tími á alvöru „dinner & a show“.
Þetta og ýmislegt fleira í fjórða þætti Eftirvaktarinnar.
-
Saknas det avsnitt?
-
Í þriðja þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi Heimisson og Kristján Högni Kristjánsson niður með Fannari Loga Jónssyni barþjóni, veitingastjóra, brand ambassador hjá Ölgerðini og ræða starfið, stemninguna og lífið í bransanum þegar kvöldið fer af stað.
-
Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur komið víða við í íslensku skemmti-, tónlistar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur starfað í fjölmiðlum, verið umboðsmaður listamanna, haldið tónleika og sinnt viðburðastjórnun hjá CCP áður en hann hellti sér út í veitingarekstur.
Í þessum þætti af Eftirvaktinni fer Steinþór yfir tilurð Röntgens, fyrstu árin í rekstri, höggið sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum og hvernig staðurinn náði að festa sig í sessi í miðbæ Reykjavíkur. Hann ræðir líka Skreið, Bullseye, skemmtanabransann, rekstrarumhverfið og áfengisgjöldin sem hann segir komin langt úr hófi.
Þáttur um barinn sem átti bara að vera bar, lífið á bak við tjöldin í miðbænum og spurninguna um hver taki í raun stærsta hlutann þegar bjórinn kostar 1.800 krónur.
-
George Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur. Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþjóðlegt samstarf við nöfn á borð við tónlistarkonuna Norah Jones og körfuboltamanninn Tony Parker.