Avsnitt
-
Að gefnu tilefni, einvígi þessarar aldar millli Heimis og Hödda, var hurðinni sparkað upp í Ellingsen studioinu.
Þó kapparnir séu alla jafna perluvinir hafa þeir löngum eldað grátt silfur á reitunum 64. Þann 28 mars verður rígurinn útkljáður í eitt skipti fyrir öll. Budvar einvígið fer fram á 220 bar í Hafnarfirði en einnig verður beint streymi á Vísi. Leikar hefjast klukkan 8.
Fyrsti hálftíminn gerir einvíginu góð skil. H&H eru þó ekki við eina fjölina felldir og fóru þeir vel yfir nýyfirstaðið landsliðverkefni. Fimleikafélag Hafnarfjarðar fékk góða umfjöllun ásamt Bestu deildinni í heild sinni. Við snertum á enska boltanum og settum hlutina í sögulegt samhengi. Ber þá hátt að nefna endurminningar Heimis á "Stjörnuráninu" 2014 er Kassim vaknaði af vondum draumi. -
Þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu
-
Bankastjóri Arion banka
-
Gestur Chess After Dark í kvöld er Ragnar Sigurðsson fyrrum atvinnumaður og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu.
Tókum góðan tíma í að fara vel yfir sviðið. -
Nýjasti gestur Chess After Dark er Garðar Gunnlaugsson fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og Herra Ísland.
Nokkur umræðuefni í þættinum:
Skaginn
Kai Havertz
CSKA Sofia - lífið í Búlgaríu.
Bikar Garðar
Garðar Gunnlaugs árið 2016 eða Arnar Gunnlaugs 1995?
Garðar gerði ferlinum sínum afar góð skil með skemmtilegum sögum.
Látið ekki þennan frábæra þátt framhjá ykkur fara.
Eigið frábæra helgi. -
Heimsóttum Arnór Sigurðsson til Manchester. Arnór er leikmaður Blackburn Rovers á Englandi og íslenskur landsliðsmaður en fyrst og fremst sómadrengur.
Hljóðið var aðeins að stríða okkur - við biðjumst afsökunar á því. Að því sögðu var þátturinn einn sá allra besti í 150 þátta sögu CAD ef þið spyrjið sælkerabræður svo við hvetjum ykkur til að leiða það hjá ykkur.
Takk fyrir samfylgdina í 150 þætti, þakklæti og fleira.
Birkir & Leifur - Visa fler