Avsnitt
-
Meginstraumsfjölmiðlar halda áfram að tapa trausti þegar óeirðir í Los Angeles eru hvað eftir annað skilgreind sem friðsamleg mótmæli. Áróðurinn gegn Robert F Kennedy er heldur ekki til þess fallinn að auka það traust og íslenskir blaðamenn leggja sín lóð á vogaskálarnar þar. Þá ræðum við einnig sneypuför Gretu Thunberg á sjálfusnekkjunni til Gaza og stórhættulegan innanlandsflugvöll í Reykjavík. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankamaður, var með réttarstöðu sakbornings í heilan áratug á meðan sérstakur saksóknari rannsakaði hann á eftirárum hrunsins. Hann fékk að lokum skilorðsbundin dóm fyrir hlutdeild að umboðssvikum í hinu svonefnda Stím-máli, 10 árum frá húsleit og handtökum. Hann hefur skrifað ötullega frá hruni um starfsaðferðir og kúltúr embættis sérstaks saksóknara og málar þar ekki fagra mynd. Nýlegt mál um gagnaleka frá embættinu veitir innsýn í hvernig umgengni embættisins við lög og mannréttindi voru á skjön við reglur réttarríkisns. Hvernig embættið rannsakaði öll mál til sektar og beitti til þess óvönduðum meðulum.Þorvaldur Lúðvík hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu en nú hillir undir 15 ára afmæli málavafstur vegna þessa. Mannréttindadómstóll Evrópu er með mál hans til meðferðar og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Þorvaldur segir sögu sína hér í þessu áhrifaríka viðtali.Þorvaldur Lúðvík rekur hvernig honum varð kunnugt um réttarstöðu sína sem grunaðs manns í Kaupþingsmáli frá ritstjóra Kastljóss, Sigmari Guðmundssyni, sem vissi allt um réttarstöðu manna og grunsemdir embættis sérstaks saksóknara. Þorvaldur Lúðvík hafði ekki fengið neinar upplýsingar þar að lútandi frá embættinu og gat því engu svarað, enda fullkomlega án vitneskju. Þorvaldur segir augljóst að Kastljós hafi verið með upplýsingar frá embættinu og hafi unnið fréttir í samræmi við það. Í samtali milli ritstjóra Kastljóss og Þorvaldar Lúðvíks var hann margítrekað spurður hvort hann vildi ekki tjá sig, en hann sagðist enga vitneskju hafa um réttarstöðu eða málatilbúnað og gæti því ekki tjáð sig um eitthvað sem hann hefði ekki vitneskju um. Fréttaskýring RÚV sama kvöld hafi síðan verið með nafna- og myndbirtingum af mönnum í þessu máli (sem sumir hverjir voru aldrei ákærðir) og ritstjórinn lauk fréttaskýringunni með því að segja “engan sakborning hafa viljað tjá sig”.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Fylgdu okkur á Facebook: https://www.facebook.com/brotkast.isFylgdu okkur á YouTube: https://www.youtube.com/@brotkast_Fylgdu okkur á Instagram: https://www.instagram.com/brotkast.is/Fylgdu okkur á Twitter: https://twitter.com/brotkasttvBrotkast á vefnum: https://brotkast.is
-
Saknas det avsnitt?
-
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankamaður, var með réttarstöðu sakbornings í heilan áratug á meðan sérstakur saksóknari rannsakaði hann á eftirárum hrunsins. Hann fékk að lokum skilorðsbundin dóm fyrir hlutdeild að umboðssvikum í hinu svonefnda Stím-máli, 10 árum frá húsleit og handtökum. Hann hefur skrifað ötullega frá hruni um starfsaðferðir og kúltúr embættis sérstaks saksóknara og málar þar ekki fagra mynd. Nýlegt mál um gagnaleka frá embættinu veitir innsýn í hvernig umgengni embættisins við lög og mannréttindi voru á skjön við reglur réttarríkisns. Hvernig embættið rannsakaði öll mál til sektar og beitti til þess óvönduðum meðulum.
Þorvaldur Lúðvík hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu en nú hillir undir 15 ára afmæli málavafstur vegna þessa. Mannréttindadómstóll Evrópu er með mál hans til meðferðar og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Þorvaldur segir sögu sína hér í þessu áhrifaríka viðtali.
Þorvaldur Lúðvík rekur hvernig honum varð kunnugt um réttarstöðu sína sem grunaðs manns í Kaupþingsmáli frá ritstjóra Kastljóss, Sigmari Guðmundssyni, sem vissi allt um réttarstöðu manna og grunsemdir embættis sérstaks saksóknara. Þorvaldur Lúðvík hafði ekki fengið neinar upplýsingar þar að lútandi frá embættinu og gat því engu svarað, enda fullkomlega án vitneskju. Þorvaldur segir augljóst að Kastljós hafi verið með upplýsingar frá embættinu og hafi unnið fréttir í samræmi við það. Í samtali milli ritstjóra Kastljóss og Þorvaldar Lúðvíks var hann margítrekað spurður hvort hann vildi ekki tjá sig, en hann sagðist enga vitneskju hafa um réttarstöðu eða málatilbúnað og gæti því ekki tjáð sig um eitthvað sem hann hefði ekki vitneskju um. Fréttaskýring RÚV sama kvöld hafi síðan verið með nafna- og myndbirtingum af mönnum í þessu máli (sem sumir hverjir voru aldrei ákærðir) og ritstjórinn lauk fréttaskýringunni með því að segja “engan sakborning hafa viljað tjá sig”.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Viktor Anderson er hjúkrunarfræðingur og starfar á Landspítalanum. Hann vakti nýverið athygli fyrir þættina Tilbrigði um fegurð. Viktor segir okkur frá lífi sínu hingað til og áskorunum sem hann hefur tekist á við í þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Hluthafaspjallið hjá þeim Sigurði Má Jónssyni og Jóni G. Haukssyni er fróðlegt og skemmtilegt að vanda. Að þessi sinni ræða þeir félagar um kapal Jóns Ásgeirs Jóhannessonar með kaup Skeljar á Samkaupum en þeir hafa haldið því fram allt frá því í haust að Samkaup yrðu leið Jóns Ásgeirs af miklu afli inn á matvörumarkaðinn aftur. Þá ræða þær efnahagsmálin, málefni Alvotech í Svíþjóð og auðvitað um „sætustu stelpuna á dansgólfinu“, Kviku, en bæði Íslandsbanki og Arion banki hafa boðið henni upp í dans. En vill hún dansa? Snorri Jakobsson, eigandi Jakobsson Capital, lítur í heimsókn til þeirra og ræðir málin.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Stjórnvöld virðast í engri tengingu við meirihluta landsmanna sem telja útlendingamál komin í algjört óefni. Forgangsmál ríkisstjórnarinnar virðast fyrst og fremst vera varnarmál og Úkraína á meðan innviðir eins og menntamál, löggæslumál, heilbrigðiskerfi og dómsmál eru í molum. Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda en sá hópur hefur að mestu leiti verið afgreiddur af elítunni sem rasistar og fasistar. Færeyski tæknimaðurinn Ingimar skellti sér niður í bæ um helgina og tók púlsinn á mótmælendum úr öllum áttum.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Synir Ásgeirs Gíslasonar, skipstjóra, létust með 12 klukkustunda millibili í ágúst á síðasta ári. Bræðurnir Jón Kjartan og Sindri Geir, létust báðir af ofskömmtun ópíóðalyfja en ekkert bendir til annars en að um slys, en ekki viljaverk, hafi verið að ræða. Strákarnir höfðu báðir verið að leita sér aðstoðar vegna fíknar sem þeir réðu ekki við þegar þeir létust.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Íslenska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd hefur í langan tíma verið þolandi skipulagðrar herferðar róttæklinga sem vilja kenna því um árásarstríð Ísrael á Gaza.Það er grafalvarlegt að fyrirtækið þurfi nú einnig að verja sig fyrir íslenskum stjórnvöldum, á sama tíma og þau keppa við erlenda risa sem hafa aðgang að íslenskum bönkum sem nú starfa sem útibú fyrir þá. Í þessum þætti ræðum við einnig um mótmæli gegn mótmælum og þá staðreynd að leiðtogi jafnaðarmanna í Danmörku telji innflytjendur vera orðna stærstu ógn Norðurlandanna. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Íslenski bankamarkaðurinn er eins og sveitarball þar sem slegist er um sætustu stelpuna. Kvika banki er óumdeilanlega í því hlutverki en fyrst bauð Arion upp á sameiningarviðræður en Íslandsbanki var fljótur að stíga inn á gólfið með hærra tilboði. Atburðarásin gerist hraðar en séð var fyrir enda ekki ljóst hver fer með eigendavaldið hjá Íslandsbanka nú þegar ríkið er búið að afhenda bréf sín til 31 þúsund kaupenda. Það er eftir miklu að slægjast, sameining getur gefið forskot og boðið upp á mikla hagræðingu. Hluthafar Kviku hlæja allan daginn í bankanum!
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, rekur stærsta smásölufyrirtæki landsins en aðalfundur félagsins var á þriðjudaginn. Finnur mætti í Hluthafaspjallið og fór yfir tækifæri og áskoranir í þessum mikla rekstri en nánast allir landsmenn eiga viðskipti við félagið. Innan Haga eru mörg af verðmætustu verslunarmerkjum landsins og þar á meðal Bónus sem veltir á bilinu 85-90 milljörðum króna á ári. Hvernig er haldið utan um dýrmætastu vörumerki landsins? Hagnaður á hlut hefur verið að aukast en um leið skoða stjórnendur Haga tækifæri til vaxtar, bæði innanlands og erlendis.
-
Óli ræðir við tónlistarmanninn Háska um fjármál, húðflúr, sælgæti og fleira, og Háski hendir í rándýra eftirhermu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Páll Melsted, doktor í stærðfræði og Jóhanna Jakobsdóttir, doktor í líftölfræði eru nýjustu gestir Spjallsins með Frosta Logasyni. Þau eru foreldrar barna í íþróttafélaginu Aþenu og þekkja vel til starfa körfuknattleiksþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Í þessu viðtali ræða þau meðal annars um skýrslu sem samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála vann um þjálfunaraðferðir Brynjars Karls. Þau segja fræðileg vinnubrögð skýrslunnar fá algjöra falleinkun og telja ljóst að hún hafi í raun og veru verið pöntuð af Íþróttasambandi Íslands til þess að koma höggi á Brynjar Karl. Þá segja þau skýrsluna rýra allan trúverðugleika samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála og hafa farið fram á að Barna- og menntamálaráðuneytið geri úttekt embættinu og vinnubrögðum þess.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Páll Melsted, doktor í stærðfræði og Jóhanna Jakobsdóttir, doktor í líftölfræði eru nýjustu gestir Spjallsins með Frosta Logasyni. Þau eru foreldrar barna í íþróttafélaginu Aþenu og þekkja vel til starfa körfuknattleiksþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Í þessu viðtali ræða þau meðal annars um skýrslu sem samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála vann um þjálfunaraðferðir Brynjars Karls. Þau segja fræðileg vinnubrögð skýrslunnar fá algjöra falleinkun og telja ljóst að hún hafi í raun og veru verið pöntuð af Íþróttasambandi Íslands til þess að koma höggi á Brynjar Karl. Þá segja þau skýrsluna rýra allan trúverðugleika samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála og hafa farið fram á að Barna- og menntamálaráðuneytið geri úttekt embættinu og vinnubrögðum þess.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Áhrifavaldasamfélagið nötrar og við lítum á af hverju enginn sigrar í þeirri deilu, skoðum af hverju mönnum finnst í lagi að kalla eftir að fólk sé myrt vegna húðlitar síns, af hverju hvítir eru alltaf vondir karlinn í auglýsingum, karlmenn vikunnar og sjáum unga konu hrellta í miðbæ Reykjavíkur.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Ingveldur Sveinsdóttir á sér svakalega sögu en hún giftist manni, sem að hennar sögn er siðblindur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá reynslu sinni af því að vera í ástarsambandi með siðblindum manni og hvernig hafi verið að ala upp börn með honum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir meðal annars í þessu viðtali um dómsmál á árunum 2008 til 2012, en þá fengu íslenskir dómstólar alls 875 beiðnir um símhleranir frá saksóknara- og lögreglustjóraembættum landsins. Af þeim voru veittar 867 heimildir sem hlýtur að teljast bæði óeðlilegt og grunsamlega hátt hlutfall. Núverandi forseti hæstaréttar, Benedikt Bogason, var þá dómari við héraðsdóm Vesturlands og virtist hann á þessum tíma fúsastur allra dómara til að veita slíkar heimildir. Jón Steinar bendir líka á að rannsakendur brutu ekki einungis lög þegar þeir hleruðu samtöl sakborninga við verjendur sína heldur einnig þegar þeir hlustuðu á símtöl sakborninga eftir að þeim hafi verið tilkynnt að þeir þyrftu ekki að svara spurningum lögreglu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Við kíkjum aðeins á þátt þeirra Hauks Braga og Karlmennsku Þorsteins og einkunnagjöfin kemur eflaust mörgun á óvart. Karlmaður vikunnar er á sínum stað, kvenkyns incels eða ‚Femcels‘ og karlar að bjarga konum!
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu hefur upplifað það að fara tvisvar sinnum í fangelsi og segir það hafa mótað stefnu sína í lífinu. Hann segir okkur frá lífi sínu og áskorunum í þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Lögreglan á Suðurlandi segir að rannsókn á svokölluðu PPP máli miði vel. Þó hafa engar yfirheyrslur enn farið fram né gögn haldlögð. Hljómar svolítið eins og málið sé komið í hentuga kælingu hjá besta vini aðal. Athygli vekur þó að Persónuvernd hefur gefið út yfirlýsingar um að hugsanlega hefji hún frumkvæðisrannsókn á málinu þó að hingað til hafi hún ekki talið nauðsynlegt að skipta sér af stórum og alvarlegum lekum persónuupplýsinga líkt og þegar stóra lyfjagáttamálið kom upp fyrir nokkru.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Einstaklingum sem eiga bréf í skráðum hlutafélögum í Kauphöll Íslands fjölgaði um 50% við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í samtali við Magnús Harðarsson forstjóra Kauphallarinnar við umsjónarmenn Hluthafaspjallsins. Við útboðið fjölgaði þeim einstaklingum sem eiga bréf í kauphöllinni um 15.000. Við Íslendingar eigum þó langt í land með því að ná Svíum þar sem um fjórðungur landsmanna eiga hlutabréf. Hér var þetta hlutfall um 8% en fer upp í að verða 12% að sögn Magnúsar. Ljóst er því að sala Íslandsbanka hefur mikil áhrif á þróun mála í Kauphöll Íslands.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
- Visa fler