Avsnitt
-
Áhrifavaldasamfélagið nötrar og við lítum á af hverju enginn sigrar í þeirri deilu, skoðum af hverju mönnum finnst í lagi að kalla eftir að fólk sé myrt vegna húðlitar síns, af hverju hvítir eru alltaf vondir karlinn í auglýsingum, karlmenn vikunnar og sjáum unga konu hrellta í miðbæ Reykjavíkur.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Ingveldur Sveinsdóttir á sér svakalega sögu en hún giftist manni, sem að hennar sögn er siðblindur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá reynslu sinni af því að vera í ástarsambandi með siðblindum manni og hvernig hafi verið að ala upp börn með honum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Saknas det avsnitt?
-
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir meðal annars í þessu viðtali um dómsmál á árunum 2008 til 2012, en þá fengu íslenskir dómstólar alls 875 beiðnir um símhleranir frá saksóknara- og lögreglustjóraembættum landsins. Af þeim voru veittar 867 heimildir sem hlýtur að teljast bæði óeðlilegt og grunsamlega hátt hlutfall. Núverandi forseti hæstaréttar, Benedikt Bogason, var þá dómari við héraðsdóm Vesturlands og virtist hann á þessum tíma fúsastur allra dómara til að veita slíkar heimildir. Jón Steinar bendir líka á að rannsakendur brutu ekki einungis lög þegar þeir hleruðu samtöl sakborninga við verjendur sína heldur einnig þegar þeir hlustuðu á símtöl sakborninga eftir að þeim hafi verið tilkynnt að þeir þyrftu ekki að svara spurningum lögreglu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Við kíkjum aðeins á þátt þeirra Hauks Braga og Karlmennsku Þorsteins og einkunnagjöfin kemur eflaust mörgun á óvart. Karlmaður vikunnar er á sínum stað, kvenkyns incels eða ‚Femcels‘ og karlar að bjarga konum!
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu hefur upplifað það að fara tvisvar sinnum í fangelsi og segir það hafa mótað stefnu sína í lífinu. Hann segir okkur frá lífi sínu og áskorunum í þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Lögreglan á Suðurlandi segir að rannsókn á svokölluðu PPP máli miði vel. Þó hafa engar yfirheyrslur enn farið fram né gögn haldlögð. Hljómar svolítið eins og málið sé komið í hentuga kælingu hjá besta vini aðal. Athygli vekur þó að Persónuvernd hefur gefið út yfirlýsingar um að hugsanlega hefji hún frumkvæðisrannsókn á málinu þó að hingað til hafi hún ekki talið nauðsynlegt að skipta sér af stórum og alvarlegum lekum persónuupplýsinga líkt og þegar stóra lyfjagáttamálið kom upp fyrir nokkru.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Einstaklingum sem eiga bréf í skráðum hlutafélögum í Kauphöll Íslands fjölgaði um 50% við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í samtali við Magnús Harðarsson forstjóra Kauphallarinnar við umsjónarmenn Hluthafaspjallsins. Við útboðið fjölgaði þeim einstaklingum sem eiga bréf í kauphöllinni um 15.000. Við Íslendingar eigum þó langt í land með því að ná Svíum þar sem um fjórðungur landsmanna eiga hlutabréf. Hér var þetta hlutfall um 8% en fer upp í að verða 12% að sögn Magnúsar. Ljóst er því að sala Íslandsbanka hefur mikil áhrif á þróun mála í Kauphöll Íslands.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Sigurður Þórðarson segir frá því hvernig starfsmenn sérstaks saksóknara hafi fengið hann til að afla gagna og framkvæma afritanir úr tölvukerfum hinna ýmsu fyrirtækja á árunum eftir hrun, aðgerðir sem aldrei höfðu verið heimilaðar með dómsúrskurðum. Þá segir hann að þegar hann var síðar kærður og handtekinn, grunaður um að hafa stolið gögnum frá fjárfestingarfélaginu Milestone hafi hann fundað með Grími Grímssyni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um hvernig þeir gætu hagað yfirheyrslum yfir honum þannig að ekki kæmist upp um samstarf þeirra. Þá segir hann að hann hafi fengið vilyrði frá embættismönnum sérstaks saksóknara um að kæran gegn honum vegna Milestone þjófnaðarins yrði aldrei að neinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Það er mikið um að vera í viðskiptalífinu þessa dagana og nýjasti þáttur Hluthafaspjallsins á Brotkast.is ber þess heldur betur merki. Þeir Jón G. og Sigurður Már ræða útboðið og þá koma öflugir gestir til þeirra í heimsókn; þeir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Ákveðið var að taka viðtalið við Jón Guðna sjóðheitan daginn eftir að niðurstaða fékkst í vel heppnað útboð bankans. Hörkuþáttur og ritstjórarnir í stuði að venju.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Bjarni Benediktsson var gagnrýndur harðlega fyrir að selja hluta af Íslandsbanka á 144 kr hlutinn. Nú þykir hins vegar í góðu lagi að selja stærri hlut, á lægra verði og með meiri afslætti. Þá virðist dómsmálaráðherra ekki hafa sagt alveg satt og rétt frá þegar hún tilgreindi ástæður þess að ætla auglýsa stöðu lögreglustjóra á suðurnesjum. Við ræðum einnig um herferð stjórnvalda gegn íslenska fyrirtækinu Rapyd og áróðurinn gegn hugvíkkandi efnum. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Viðtalið við Jón Óttar Ólafsson fyrrverandi rannsóknarlögreglumann er kjarnorkusprengja sem getur ekki annað en leitt til afsagnar Ólafs Haukssonar héraðssaksóknara. Ef frásögn Jóns er rétt hefur Ólafur með mjög óheiðarlegum hætti gert tvo starfsmenn sína að blórabögglum fyrir vinnubrögð sem viðhöfð voru með fullu samþykki hans á árunum eftir hrun. Við förum yfir málið allt í Harmageddon þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari hefur sakað Jón Óttar og félaga hans, sem nú er fallinn frá, um að hafa stolið gögnum frá sérstökum saksóknara. Jón Óttar hafnar þessu og segir gögnin einfaldlega hafa verið á tölvum þeirra vegna þeirrar vinnu sem þeir unnu fyrir embættið á sínum tíma. Árið 2012 kærði Ólafur Jón Óttar og félaga hans fyrir brot á þagnarskyldu en Jón Óttar segir þá kæru einungis hafa verið yfirvarp yfir þá staðreynd að starfsmenn sérstaks saksóknari hafi á þeim tíma unnið samtímis fyrir bæði embættið og slitastjórnir, með fullu samþykki Ólafs. Jón segir málið hafa verið látið niður falla þegar hann sýndi ríkissaksóknara fram á þetta. Jón Óttar heldur því fram að Ólafur hafi í raun sjálfur lekið gögnunum til fjölmiðla nýlega, en það segir hann hafa verið viðbragð Ólafs við því að Jón Óttar kærði hann fyrr í vetur til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Farið verður í af hverju við þurfum allir að eiga trúnaðarvini en einnig verður farið í hluti eins og karlmenn og háríðgræðslu, karlmann vikunnar, af hverju við þurfum að skilgreina hvað kona er og auðvitað BAKSLAGIÐ ógurlega.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Haukur H. var nýlega kærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að halda manninum sem dæmdur var fyrir að brjóta kynferðislega á 18 ára stjúpdóttur hans er maðurinn reyndi að flýja af vettvangi glæpsins.Við ræðum dóminn og ýmislegt annað í góðu spjalli.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Fylgdu okkur á Facebook: https://www.facebook.com/brotkast.is
Fylgdu okkur á YouTube: https://www.youtube.com/@brotkast_
Fylgdu okkur á Instagram: https://www.instagram.com/brotkast.is/
Fylgdu okkur á Twitter: https://twitter.com/brotkasttvBrotkast á vefnum: https://brotkast.is
-
Í þættinum ræðir Óli við þá Dóra DNA og Rúnar Hroða sem eru að byrja aftur með Skítamix þættina sína. Þeir fara yfir húðflúrin sem Dóri er með og Iron man keppnina sem Rúnar er að fara að taka þátt í.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Fylgdu okkur á Facebook: https://www.facebook.com/brotkast.is
Fylgdu okkur á YouTube: https://www.youtube.com/@brotkast_
Fylgdu okkur á Instagram: https://www.instagram.com/brotkast.is/
Fylgdu okkur á Twitter: https://twitter.com/brotkasttv
Brotkast á vefnum: https://brotkast.is
-
Í þættinum ræða ritstjórarnir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson um forstjóraskipti hjá Nova og Íslenskri erfðagreiningu og fleiri félögum. Hvað tekur Kári sér fyrir hendur en sagan segir að hann hafi öðrum fremur áhuga á að ná í eins og ein Nóbels-verðlaun enda án efa einn fremsti mannerfðafræðingur heims. Rætist draumur Kára eða gerist hann bara rithöfundur?
Í seinni hluta þáttarins kemur Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í heimsókn og fer yfir rekstur félagsins og áherslur félagsins á að skila hagnaði á næstunni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Í þættinum ræðir Óli við þá Dóra DNA og Rúnar Hroða sem eru að byrja aftur með Skítamix þættina sína. Þeir fara yfir húðflúrin sem Dóri er með og Iron man keppnina sem Rúnar er að fara að taka þátt í.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Brynjar í Club Dub, Kanye West og Shilo Hendrix eiga það sameignlegt að hafa sett internetið á hliðina með tjáningu sem þykir tabú og bönnuð. En almenningur nennir ekki lengur að hneykslast þar sem rétttrúnaðurinn er fyrir löngu búinn að gjaldfella öll tabú orðin sem ekki hefur mátt segja. Við skoðum þetta allt saman og fleira í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Erpur Eyvindarson er landsþekktur rappari sem hefur verið í bransanum í 25 ár. Hann er þekktur fyrir að segja sína skoðun í málefnum líðandi stundar og kom í þátt dagsins og sagði frá lífi sínu hingað til, ástinni, rappinu og fleira.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
- Visa fler