Betkastið er fyrir alla þá sem finnst gaman að spá í spilin um úrslit íþróttaviðburða eða annarra viðburða og keppna sem eru til umræðu í samfélaginu hverju sinni eins og enski og íslenski boltinn, Gunnar Nelson að keppa í UFC, lýðræðislegar kosningar o.s.frv. Í hlaðvarpinu eru rætt við landsþekkta viðmælendur og sérfræðinga í hverju fagi fyrir sig á léttum nótum og fengin innsýn inní hvað þau telja líkleg úrslit hverju sinni. Lögð er áhersla á að hver skoðun og spá hefur rétt á sér og er tilgangurinn að skapa umræður og vekja fólk til gagnrýnnar hugsunar. Betkastið var stofnað til að stuðla að ábyrgari spila hegðun fyrir þá sem stunda slíkt og vekja athygli á að hægt sé að hafa gaman að veðmálum án þess að það fari út fyrir velsæmismörk með hógværð í fyrirrúmi. Fyrst og fremst er hlaðvarpið ætlað til að velta upp líkinda reikning og svala forvitni þeirra sem vilja vita hvernig möguleg úrslit gætu litið út orðið óháð því hvort fólk stundi veðmál eða ekki.