Avsnitt
-
Sunnudagurinn 21. júní
Bridgeþátturinn - EM að hefjast
Björn Þorláks fær þrjá briddsara í spjall til sín um EM sem hefst í næstu viku, laugardaginn 27. júní í Riga. Matthías Imsland, Jón Hersir Elíasson og Magnús Magnússon eru sammála um að ögurstund sé fram undan í opna flokknum. Alls sendir Ísland þrjú lið og spennan er mikil. -
Laugardagur 20. júní
Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
-
Saknas det avsnitt?
-
Föstudagur 19. júní
Talaðu við mig - 3. þáttur: Tónlistarbransinn
Í þættinum í dag spjölluðum við við tvo unga listamenn. Við ræddum listina, framtíðina, björtustu vonir bransans og margt fleira. Það var sannur heiður að fá að kynnast þessum meisturum. Við vonum að þið njótið í botn ❤️ -
Föstudagur 19. júní
Vikuskammtur: Vika 25
Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna. -
Fimmtudagur 18. júní
Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn
Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka. -
Miðvikudagur 17. júní
Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd
Ný stjórnarskrá sem fyrst til að tryggja réttindi dýra. Löggjafinn þarf að hlusta á þjóðina og banna hvalveiðar, blóðmerarhald og loðdýraeldi. Samtök bænda eiga að axla ábyrgð á dýravelferð. Við þurfum draga stórlega úr þjáningasporinu á bak við það sem við borðum og láta af þessari mannmiðjuvillu sem hrjáir mannkynið. Þetta er meðal þess sem kemur fram við Græna borðið þar sem Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, Valgerður Árnadóttir frá Hvalavinum, Rósa Líf Darradóttir frá Samtökum um Dýravelferð ræddu við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um ástandið í dýraverndarmálum. -
Þriðjudagur 16. júní
Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks. -
Mánudagur 15. júní
Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB
Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks. -
Laugardagur 13. júní
Helgi-spjall: Árni Pétur
Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri. -
Föstudagur 12. júní
Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum
Í þætti dagsins fengum við góða gesti sem ræddu við okkur um líf sitt og starf. listakonan, stílistinn, socialiteið og Iconið Iða Dögg og svo alt muligt mennirnir, listamennirnir og frumkvöðlarnir Dagur og Gylfi. -
Föstudagur 12. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn. -
Fimmtudagur 11. júní
Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni. -
Miðvikudagur 10. júní
Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen. -
Miðvikudagur 10. júní
Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskipti -
Miðvikudagur 3. júní
Græna borðið 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing
Varmá, vatn og virðing verða rædd við Græna borðið í dag. Heilbrigðiseftirlitið, vatnalíffræðingur og íbúi við Varmá telja að mengunin í ánni sé brot á lögum og afleiðing óvirðingar gagnvart náttúrunni, en ekki umhverfisslys. Þörf sé á miklu betri umgengni við vatn á Íslandi, eins og náttúruna almennt, en ferskvatn, ár og votlendi séu undir álagi vegna slæmrar umgengni við framkvæmdir og hætta sé á varanlegu tjóni. Hugsa þurfi til framtíðar, efla fræðslu og eftirlit. Umsjón hefur Björg Eva Erlendsdóttir. -
Þriðjudagur 9. júní
Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús
Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára. -
Föstudagur 5. júní
Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín
Nýr þáttur á Samstöðinni um listir og menningu í umsjón Álfheiðar Karlsdóttur og Emilíu Bergsdóttur. Í þessum fyrsta þætti spjölluðum við við Gretti Valsson, leikara, grínista og tónlistarmann. Hann klúðraði aðeins og komst ekki í stúdíóið, en við gerðum það besta úr aðstæðum og hringdum í kallinn á zoom. Eftir spjallið fórum við eitthvað að babbla og fórum í nokkra góða liði og reyndum að hafa ofanaf fyrir hlustendum og tókst vonandi bara ágætlega til. Við teljum þó að eina leiðin sé upp eftir þennan fyrsta þátt og í næsta þætti ætlum við að fá til okkar góða gesti sem hafa ýmislegt skemmtilegt að segja. -
Laugardagur 6. júní
Helgi-spjall: Sigfinnur
Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar. -
Mánudagur 8. júní
Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM
Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum. - Visa fler