Avsnitt
-
Að þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
-
Meginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum.
Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum við Guðrúnu út í það hvort það hafi verið íslenska krónan sem bjargaði okkur út úr hruninu. -
Gestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.
-
Það var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu.
Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess að hjálpa okkur að kryfja þá hugsjón og þær hugmyndastefnur sem hafa mótað Evrópu samtímans, höfum við fengið til okkar góðan gest: Guðmund Hálfdánarson, sem er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Hugvísindasviðs. Hann er sérfræðingur í stjórnmálasögu Evrópu og hefur m.a. rannsakað og ritað um þjóðhyggju og þjóðernishyggju. -
Evrópuumræðan er á fleygiferð og nýjar upplýsingar um Evrópusambandið birtast okkur daglega.
Gestur þessa þáttar Meginlandsins er reynslubolti í stjórnmálum og jafnframt einn af virkustu greinahöfundum um Evrópumál. Þorsteinn Pálsson, fv. forsætis- og fjármálaráðherra, sjávarútvegs- sem og dómsmálaráðherra fer yfir fortíð og framtíð samstarfs Íslands og Evrópu í skemmtilegu og upplýsandi spjalli. -
Gestur þáttarins er Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst sem hefur stundað rannsóknir á alþjóðamálum um áratugaskeið og meðal annars skrifað bókina Frá Evróvisjón til Evru.
-
Gestur þáttarins er Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir lektur við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur í stjórnskipunarrétti. Í umræðunni hefur borið á misskilningi um það hvernig aðildarviðræður fara fram og við hvern Ísland er að semja. Yfir þetta er rækilega farið í þættinum.
-
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB fer fram 29. ágúst næstkomandi. Um þetta var tilkynnt á föstudag og kemur mörgum á óvart hve skammt er til kosninga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur þáttarins og talar meðal annars um upplýsingaóreiðu, afskipti erlendra ríkja og hvað sé í húfi fyrir okkur Íslendinga.
-
Að þessu sinni ræðir Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar HR, við þau Helgu Völu og Pál Rafnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu, hvernig þær gætu mögulega litið út og hvort undanþágur séu á teikniborðinu eða ekki.
-
Gestir þáttarins eru þau María Malmquist og Sverrir Páll Einarsson en María hefur verið virk innan Ungra Evrópusinna og Sverrir er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Meginlandið að þessu sinni er helgað unga fólkinu og vangaveltum um áhugaleysi þeirra á Evrópusambandinu.
-
Í fjórða þætti Meginlandsins er sjónum beint að efnahagsmálunum og erlendum viðskiptum Íslands, sem og samkeppnisskorti á Íslandi. Gestur þeirra Helgu Völu og Páls Rafnar er Gylfi Magnússon prófessor og fyrrverandi ráðherra.
-
Gestir þáttarins eru þær Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherrar. Í þessum sérstaka hátíðarþætti ætlum við að horfa til alþjóðlegs samstarfs í víðri merkingu og rödd Íslands í alþjóðakerfinu. Gestir þáttarins eru reynsluboltar í pólitík en koma einnig úr ólíkum áttum og hafa því líklega ólíka sýn á stöðu Íslands á alþjóðasviðinu.
-
Í þessum þætti beinum við sjónum okkar að EES samningnum, sem varð þrjátíu ára í fyrra og hefur, að margra mati, að stórum hluta skilgreint samband Íslands við Evrópusambandið.
Gestur Meginlandsins er Dóra Sif Tynes lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti. Dóra hefur starfað hvort tveggja hjá Eftirlitsstofnun EFTA og starfsstöð EFTA í Brussel, auk þess sem hún hefur rekið fjölda mála fyrir EFTA dómstólnum og Evrópudómstólnum. -
Í dag hefur göngu sína Meginlandið – nýtt Hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar.
Hlaðvarpið er leitt af Páli Rafnar Þorsteinssyni og Helgu Völu Helgadóttur en ætlun þeirra er að halda uppi umræðu um Evrópumál – Evrópusambandið og alla anga þess hvað felst í því að halda mögulega áfram aðildarviðræðum við þetta ríkjasamband.
Þau munu leitast við að takast á við Evrópumálin bæði á dýptina og breiddina - allt frá álitaefnum sem varða þessi grundvallargildi - til hversdagslegri spurninga um áhrif aðildar á okkar daglega líf.
Í hverjum þætti fyrir sig munu þau taka fyrir ákveðin viðfangsefni – hvaða málum sem þau tengjast. Þau munu bjóða til sín fólki víðsvegar úr þjóðfélaginu til þess að ræða þessi mál; fólk með þekkingu, reynslu eða hugmyndir sem vonandi geta hjálpað hlusteum að skilja betur hvaða áskoranir og tækifæri felast í Evrópusamstarfinu.
Af því að fyrsta þátt ber upp á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember, er tilvalið að fara beint í kjarnann, í stóru spurninguna sem oft kemur upp þegar umræða um Evrópusambandið er annars vegar - sjálft fullveldið – hvort aðild að Evrópusambandinu kunni að skerða fullveldi Íslands eða jafnvel styrkja það.
Gestur þáttarins er Davíð Þór Björgvinsson, deildarstjóri lagadeildar Háskólans á Akureyri, fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt.