Avsnitt
-
Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Við fórum yfir þessa mögnuðu sögu og rýndum í hvernig framganga ljónanna breytti fótboltaheiminum – bæði í Afríku og fyrir ungan miðjumann Parma á Ítalíu!Njótið!
-
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag.
EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið?
Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni.
Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum. -
Saknas det avsnitt?
-
Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke.
Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið. -
Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum.Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur.Njótið vel!
-
Hvað er eiginlega málið með að allir geta unnið alla og eru deildirnar að styrkjast?
- Förum yfir allar neðri deildirnar
- Nýjustu úrslit og umferðir
- Hvað er að frétta í Utandeildinni?
- Spurningar frá fans -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.
-
Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977
Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B.
Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni. -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.
-
Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur.Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun
-
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
-
Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað?Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA og við fórum yfir þetta allt og fleira til!
-
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní.
Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt.
Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur. -
Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur.Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á skrautlegan tíma Mick McCarthy og Roy Keane og rifjum upp nokkrar gullmolarasögur af stórkostlegum karakterum úr írskri fótboltasögu.Og að sjálfsögðu, hver önnur en Hólmfríður Karlsdóttir, ungfrú heimur 1985, sparkar veislunni í gang með Írunum.Góða skemmtun!
-
Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fer í umspil þar.
Næsta verkefni er EM í Sviss og þar þurfum við að fara að vinna einhverja leiki, en stelpurnar hafa núna farið í gegnum tíu leiki í röð án sigurs.
Guðmundur Aðalsteinn fór yfir síðasta landsliðsglugga og framhaldið með þeim Orra Rafni Sigurðarsyni og Gylfa Tryggvasyni.
Icelandair, TM, Lýsi, Landsbankinn og Hertz styðja umfjöllun Fótbolta.net um kvennaboltann. -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Innkastið eftir 10. umferð, Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geirs. Haraldur Örn fréttaritari Fótbolti.net og Atli Viðar Björnsson fyrrum leikmaður FH mættu með honum.
-
Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa!Góða skemmtun.
- Visa fler