Avsnitt
-
Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessara tíðinda mætti fyrstur á sviðið Baldvin Már Hermannsson forstjóri og skýrði frá þessum tíðindum og hvað þau þýða fyrir félagið.
Í öðrum hluta þáttarins mæta þeir Unndór Jónsson V.P Sales & Marketing, Einar Jón Blandon Director Ground Operations og Haukur Eyjólfsson Manager DevOps en þeir eiga allir það sameiginlegt að hafa starfað lengi fyrir Air Atlanta og hófu sinn starfsferil í vinnu sem flugfreyjur.
Í þriðja hlutanum er spjallað við flugstjórana Guðrúnu Helgadóttur og Braga Sigþórsson sem bæði eru flugstjórar í dag á Boeing 747 hjá félaginu. Í lokahlutanum segja fyrrverandi flugstjórarnir Bogi Agnarsson og Einar Dagbjartsson nokkrar sögur úr bransanum.
Þátturinn var tekinn upp 28.maí 2026 í Cafe Atlanta í Kópavogi. -
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni.
Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið. -
Saknas det avsnitt?
-
Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðinni í Keflavík og öllu flugi félagsins í gangi, alla daga allt árið um kring. Áhugavert spjall sem veitir örlitla innsýn í flókin verkefni við rekstur Icelandair.
-
Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli yfir stöðu vallarins og þar á eftir koma stutt erindi frá hverjum frambjóðenda um afstöðuna til flugvallarins.
-
Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan.
Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni.
Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum. -
Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og líka erfiðar aðstæður eins og þegar WOW varð gjaldþrota. Hún segist njóta þess mjög í dag að geta sameinað flugfreyjustarfið og leiklistina. Bæði súist um samskipti við fólk og í flugfreyjustarfinu eru samskiptin við fólk alls staðar að úr heiminum. Hressandi spjall við stórskemmtilega konu í fluginu.
-
Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins í Brussel en hann hefur á síðustu árum unnið að því að greina áhrif ETS kerfisins á flug og við að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri við framkvæmdastjórnina í Brussel. Evrópusambandið er að meta áhrifin af ETS kerfinu á samkeppnishæfni flugfélaga, flugtengingar og fjarlægar byggðir eins og Ísland. Þessari endurskoðun á að ljúka á þessu ári og því mikið undir að vel takist til.
-
Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðrún Hrefna er af Suðurnesjunum og er ein þeirra sem bjó í Grindavík þegar rýma þurfti bæinn vegna jarðhræringa og býr nú Keflavík.
Áhugavert spjall við öfluga konu þar sem sjónum er beint að fjölbreyttum störfum flugvirkja og ekki síst skipulagi viðhalds á farþegaþotum í dag. -
Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niður á þjónustunni eins og stundum hefur gerst á síðustu árum. Hann segir kynslóðaskipti vera að eiga sér stað í hópi flugumferðarstjóra vill sameina krafta krafta starfsfólks um að auka sveigjanleika og tryggja um leið öfluga þjónustu við flugið.
-
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils fer yfir hvers vegna þetta er talið álitlegt fyrir Icelandair og um möguleika sem þetta skapar í að víkka út starfsemi félagsins. Einnig er stuttlega komið inn á ástand heimsmála, hækkun eldsneytisverðs og íslenskan vinnumarkað.
-
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
-
Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins og þau sem valdið hafa flestum banaslysum í farþegaflugi í heiminum á síðustu árum. Þau eru flest rakin til þess að flugmenn hafa af einhverjum orsökum misst stjórn á flugvélinni og í kjölfarið ekki náð að fljúga vélinni út úr slíkum aðstæðum þar sem flugvélin er komin langt út fyrir það sem kallast getur venjulegt flug. Flugvélin verður það sem skilgreint er sem „UPSET“.
Dr. Sunjoo segir samvinnu allra hagsmunaaðila í flugi vera lykil að góðum árangri og hrósar samstarfi þjálfunardeildar Icelandair, Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu í þessum efnum. Fróðlegt spjall við merkan mann sem hefur um áratuga skeið verið í forystu á alþjóðavettvangi fyrir bættu öryggi í atvinnuflugi. -
Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess vegna ólíklegt er að fáist upp í forgangskröfur. Rætt er um skuldabréfaútboð Play skömmu fyrir gjaldþrotið, dótturfélagið á Möltu, stöðu kærumála hjá Samkeppniseftirlitinu og fleira. Í lok þáttar berst talið að fótbolta, nánar tiltekið dómarastörfum í fótbolta, en áhugamál og annað starf Arnars Þórs er að vera dómari í efstu deild og nú styttist óðum í að nýtt tímabil hefjist.
-
Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð á öllum stigum.
Í þættinum er rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið sem skall á suðvesturhorni landsins þennan dag, um veðurspárnar og hvenrig megi mögulega bæta þær. Ásgeir Gunnar Stefánsson aðstoðar-yfirflugstjóri Icelandair fer yfir viðbrögð félagsins þegar 15 farþegaþotur þess urðu frá að hverfa í Keflavík og loks er rætt við Sigrúnu Björk Jakobsdóttur framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla ISAVIA um viðbrögð á varaflugvöllunum og hvað læra megi af þessum viðburði. -
Gestir þáttarins eru systkynin Anna María og Róbert Magnús Kristmundsbörn sem hafa bæði áratuga reynslu úr flugheimunum, hún sem flugfreyja og hann sem flugstjóri. Bæði fengum þau “flugbakteríuna” í vöggugjöf því faðir þeirra Kristmundur Magnússon var loftskeytamaður og síðar flugstjóri fyrir ýmis flugfélög víðs vegar um heiminn. Anna María hóf sinn feril í fluginu hjá Air Atlanta en starfar í dag sem flugfreyja hjá Icelandair þar sem hún er m.a. að sinna VIP ferðum á vegum Loftleiða. Róbert Magnús er yfirflugstjóri hjá Air Atlanta, sem fagnar 40 ára afmæli á þessu ári. Þar er í nógu að snúast við að bæta við breiðþotum og ráða fólk til starfa í ört stækkandi fyrirtæki. Nítjánda breiðþota félagsins er væntanleg í vor.
-
Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins, einkum til að auka flugöryggi. Í nýlegri umsögn Reykjavíkurborgar um samgönguáætlun er varað við allri uppbyggingu á flugvellinum í Vatnsmýri því flugstarfsemi sé ekki á skipulagi þar eftir árið 2032. Njáll Trausti telur að afstaða borgarinnar byggi á afar þröngum hagsmunum og hefur velt upp þeirri hugmynd að skipulagsvaldi yfir vellinum yrði breytt enda um þjóðarhagsmuni að ræða. Í þættinum er einnig spjallað um mögulega staðsetningu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri, varaflugvallagjaldið og framkvæmdir á alþjóðaflugvöllum landsins og um samkeppnishæfni Evrópu í tengslum við ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins.
-
gestur þáttarins er Aníta Eik Kjartansdóttir en hún lauk námi í flugumferðarstjórn árið 2024 og starfar í dag í turninum á Reykjavíkurflugvelli. Hún heillaðist snemma af fluginu og segir í þessum þætti frá flugumferðarstjóranáminu og uppbyggingu þess. Þá fer hún yfir ýmislegt sem tengist starfinu í dag og gefur þannig hlustendum smá innsýn í starf flugumferðarstjórans í turninum á Reykjavíkjurflugvelli. Aníta Eik segir líka frá verkefni sem hún og samstarfsfélagi hennar eru að fara af stað með og snýst um að heimsækja flugskólana með það fyrir augum að auka betur skilning milli flugmanna og flugumferðarstjóra.
-
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um 1,2 milljörðum. Rætt er um stöðu félagsins og horfurnar framundan, umhverfisskatta, kjarasamninga, flotamálin, hluthafana, innanlandsflugið og margt fleira.
-
Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar á skjóta úrlausn mála fyrir milljónir farþega og þar liggur markaðurinn fyrir lausnir frá AVILABS. Kostnaður flugfélaga við raskanir á flugi telur tugi milljarða dollara á hverju ári og það hvernig úr slíkum málum er unnið getur skilið á milli þess hvort flugfélag skilar hagnaði eða ekki. Sveinn segir hér frá þessari einstöku viðskiptahugmynd og tilurð fyrirtækisins þar sem nú starfa 35 manns í sérhæfðum störfum tengdum flugi.
-
Þáttur #141 er kominn í loftið. Í þessum áramótaþætti er farið yfir ýmsar helstu fréttir úr fluginu á árinu 2025 og spáð í útlit og horfur fyrir 2026. Gestir þáttarins þekkja vel til í flugmálum þeir Kristján Már Unnarsson fréttamaður og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélags Íslands. Rætt er um Icelandair og flotamálin, fall Play og fækkun flugfélaga, nýjan ráðherra flugmála, pólitíkina kringum Reykjavíkurflugvöll og stefnu nýrrar ríkisstjórnar og margt fleira.
Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vilja fylgjast með því sem er að gerast í flugmálum okkar Íslendinga. - Visa fler