Spelade
-
www.patreon.com/einpaeling
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir svarar hugleiðingum Þórarins um framvindu faraldursins. Rætt er um hvernig honum lýst á nýjan heilbrigðisráðherra, hvað myndi gerast ef að allt yrði opnað, hvort að hægt sé að endurskoða sænsku leiðina núna þegar stærsti hluti Íslendinga er bólusettur, Omicron og hvort von sé á fleiri afbrigðum, af hverju bylgjur eiga sér ekki stað á Indlandi, í Svíþjóð eða Brasilíu og fleiri stöðum sem hafa þurft að þola útbreidd smit og hvort hægt sé að smitast aftur af veirunni eftir að hafa fengið mótefni.
www.patreon.com/einpaeling -
www.patreon.com/einpaeling
Þórarinn ræðir við Hrafnhildi Sigurðardóttur og Arnar Þór Jónsson um Covid-19. Þau hafa bæði lýst áhyggjum af framvindu mála í aðgerðum stjórnvalda gegn veirunni og um það hvort að bóluefni eigi að vera valkvæð. Rætt er um mikilvægi efans, frelsi, bólusetningar barna, trúarbrögð, tíma sem gjaldmiðil og fleira.
https://www.patreon.com/einpaeling -
S01E80
– Hinrik Þór er alls ekki venjulegur maður. Hann á stórfurðulega ævi að baki og lifir í dag lífi sem myndi sjálfsagt ekki henta öllum. Hann hefur aldrei haft skýra stefnu en þó hefur hann verið viss í sinni sök og vitað hvar áhuginn liggur. Neysla og óregla kom þó í veg fyrir að hann næði takmörkum sínum, ástand sem knúið var af kvíða og rótleysi. Hann var mjög týndur um tíma og lét sig hverfa til útlanda. Á þessum 40 árum hefur hann unnið afar mikið en stundum afar lítið, eignast tvö börn, annað á fremur hefðbundinn máta en hitt við ólíklegri aðstæður. Hann hefur komið reglu á líf sitt og horfir mjög gagnrýnið yfir fortíðina með húmor og hreinskilni að vopni. Það er nákvæmlega enginn eins og Hinrik og hann er næstum óraunverulega skemmtilegur.Gott spjall. Og langt.
– Síminn Pay býður upp á STVF.Tjúllað tilboð hjá The Skyr Factory, Höfðatorgi og Katrínartúni. Allar skálar og boozt á 1.000 kr í Pay appinu! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Omnom býður upp á STVF. Vetrarlína Omnom sækir, líkt og fyrri ár, innblástur sinn í íslenskar jólahefðir sem ylja landsmönnum um hjartarætur með minningum liðinna jóla. Dark Nibs + Raspberries, Milk + Cookies & Spiced White + Caramel. – Bónus býður upp á STVF. Nýr grís og lengri opnunartími. Ég vann einu sinni í Bónus. Það var í kringum aldamótin og síðan hefur auðvitað margt breyst. Sumt breytist samt ekki því Bónus selur þér ennþá nauðsynlegar vörur á dísent verði. – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
-
Fyrir um 10 árum skrifaði Jóhann Hauksson blaðamaður bókina Þræðir valdsins. Bókin vakti mikla athygli og fjallar um tengsl viðskipta og stjórnmála á Íslandi; aðstöðubrask, klíkuskap og frændhygli. Þórarinn ræðir við höfundinn um Þræði valdsins í sögulegu samhengi. Telur Jóhann að hlutirnir hafi breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá útgáfu bókarinnar?
-
Það er óhætt að segja að Hermann Hreiðarsson sé sannkölluð fótbolta goðsögn en hann spilaði með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 15 ár frá árunum 1996- 2011 og hefur hann spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni af öllum Íslendingum þar sem hann gerði garðinn frægann meðal annars í Crystal Palace, Charlton og Portsmouth.
Undanfarin ár hefur hann snúið sér að þjálfun og er hann um þessar mundir að undirbúa flutninga til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hefur tekið við liði ÍBV. Hermann kynntist sínum betri helmingi, Alexöndru Fanneyju Jóhannsdóttur snemma árs 2017 en hún var þá flugfreyja hjá Icelandair.
Þetta var virkilega skemmtilegt spjall og er greinilegt að þeirra samband hefur verið fullt af ævintýrum, ferðalögum og skemmtilegum uppákomum eins og heyra má í viðtalinu og eiga þau í dag saman tvo stráka en fyrir átti Alexandra einn son og Hermann tvær dætur.
Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars upphaf þeirra sambands og að Alexandra hafi í raun haldið að það væri verið að gera símaat í sér þegar Hermann hringdi í hana í fyrsta skipti til þess að bjóða henni út, matarástina og keppnisskap þeirra beggja, atvinnumennskuna og tímann í ensku úrvalsdeildinni, mómentið þegar Hermann hélt að Alexöndru hefði verið rænt, matareitrun á bifvélaverkstæði í Queens, flutningana til Vestmannaeyja og margt fleira en þátturinn er stútfullur af geggjuðum sögum úr þeirra sambandstíð. Njótið vel!Aha.is - https://aha.is
Blush.is - https://blush.is/
Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/
Ajax -
Það hlaut að koma að því að undirritaður þyrfti að taka þátt í sóttkví gleði allra landsmanna og er þáttur dagsins litaður af því og var tekinn upp strangheiðarlega heima í stofu ásamt einu manneskjunni sem ég má vera nálægt þessa dagana sem er að sjálfsögðu minn betri helmingur. Við Sara tókum lauflétt spjall með gott möns á kantinum og stikluðum á stóru um okkar sambandstíð og fórum til dæmis yfir það hvernig það er að koma inn í samband þar sem börn eru í spilinu.
Síðar í þættinum átti ég síðan gott zoom- spjall við leikkonuna Júlíönu Söru Gunnarsdóttur sem hefur gert garðinn frægan til dæmis í sjónvarpsþættinum vinsæla Venjulegt Fólk og hennar betri helming, Andra Jóhannesson þyrluflugmann hjá Landhelgisgæslunni og hljóðmann með meiru. Júlíana og Andri gripu símann á lofti sólbrún og sælleg nýlent frá Tenerife þar sem þau hafa verið að njóta undanfarna viku.
Þess má til gamans má geta að Júlíana er barnsmóðir mín og munum við vinna að því sameiginlega markmiði næstu árin að skila þessum litlu einstaklingum okkar ágætlega heilsteyptum út í lífið.
Í þættinum fórum við meðal annars yfir hvernig það er að ala upp börn á tveimur heimilum, ásamt því að ég fékk að skyggnast inn í líf þeirra beggja og sögðu þau mér aðeins frá því hvað þau eru að sýsla þessa dagana.Þátturinn er í boði:
Blush.is - https://blush.is/Spaðinn - https://spadinn.is/
Ajax
Instagram:
https://www.instagram.com/betrihelmingurinn_/ -
Herra Hnetusmjör eða Árni Páll ræðir um æsku árin í Hveragerði hvernig hann hefur þroskast við að verða faðir og hvort hann sé með þráhyggju fyrir peningum.
-
Jólasýning í Kakókastalanum 16. desember. Sendu póst á [email protected] fyrir miða!
Hvernig lykta puttar Hjálmars? Hvað er gott við tónleika Baggalúts? Og hvernig þyrftu jólin að vera til að hafa gamla sjarmann?
IG: helgijean & hjalmarorn110
Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! -
Harmageddonbróðirinn sem veður í allt og alla en er á sama tíma markþjálfi sem les sjálfshjálparbækur. Máni rekur sögu Harmageddon og vinskap sinn við Frosta sem hófst eftir neyslutímabil og meðferð um tvítugsaldurinn. Einn daginn, reykjandi kannabis, fattaði hann að það mun enginn banka upp á og bjóða honum að meika það. Við ræðum aðskilnaðarkvíðann frá Frosta, hvernig reiðin eftir hrun var eldsneyti Harmageddons, kvíðann og kvíðalyfin, hvernig drullið yfir Frikka Dór endaði með því að Máni gerðist umboðsmaðurinn hans, hvernig Mamma Frikka krafðist þess að Máni umbaði Jón líka og hvernig það er að stjórna útvarpsþætti í þunglyndiskasti.
-
Hjálmar fór í æsilegan leiðangur til London sem fararstjóri - og útskýrði eftir bestu getu hvað gerðist. Ferðalag fullt af leiftrandi fegurð og fallegum himni.
Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a!
IG: helgijean & hjalmarorn110 -
Helgi er enn í einangrun og deilir djúpum uppgötvunum úr einverunni. Á meðan er Hjálmar út um allt að gera og græja og er kominn með sinn eigin örvunarskammt.
Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! -
Þórarinn og Brynjar Níelsson ræða áhrif tæknibreytinga á stjórnmál, #MeToo hreyfinguna, frelsi einstaklingsins, hvort að Sjálfstæðismaður myndi stofna samtök á borð við Stígamót, heilbrigðiskerfið og dagskrárvald.
-
Hans Kragh talar um lífið og alkohólisma.
-
Þórarinn ræðir við Hildi Björnsdóttur borgarfulltrúa um ummæli hennar þar sem hún sagði tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis vera orðin líkari tilhæfulausum hræðsluáróðri en nauðsynlegum tilmælum. Rætt er um frelsi og sóttvarnaraðgerðir, bólusetningar, afleiddar afleiðingar, heilbrigðiskerfið og komandi borgarstjórnarkosningar.
-
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkranna á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum. Hér færðu á einu bretti sögustund úr ævintýralegum aðstæðum og visku sem Kristján dregur af ferðalögum sínum og fólkinu sem verður á vegi hans.
-
Þórarinn ræðir við Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, um pistil sem hann skrifaði fyrir um 13 árum og ber heitið "Að móðgast fyrir hönd annarra". Tvímenningarnir ræða allskyns hluti í samhengi við efni pistilsins, meðal annars rétttrúnað, kynjamál, Covid-19, tónlistarmanninn Auður og Gylfa Ægis.
-
Þórhallur Þórhalls uppistandari mætti til okkar og sagði frá ferð sinni sem töframaður til Kína - og hvernig hann upplifir stærð sína og að vera helgar-hundapabbi.
IG: helgijean & hjalmarorn110
Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe'a! -
Það er Hæ hæ live-show í Kakókastalanum þann 10. nóvember kl. 20:00 -
Helgarnámskeiðið ´Helga Hjartað´ verður svo haldið þann 19. nóvember.
Sendið meil á [email protected] - til að bóka.
Þáttur dagsins fór þétt og vel yfir gráa svæðið: brúðarkjólinn sem var í geymslu - og svo var skipt yfir til Ágústu sem hvarf að heiman í nokkra daga.
IG: helgijean & hjalmarorn110 -
Helgi Hrafn ræðir við Þórarinn um skoðanarelsi, tjáningarfrelsi, nýfasisma, hatursorðræðu, póstmódernisma, hetjur á twitter, leiðtoga og fleira.
- Visa fler