Avsnitt

  • Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport).

    Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna.

    Birna gerði doktorsverkefnið sitt um REDs og fer aðeins yfir niðurstöðurnar ásamt því að ræða um átröskun, endurheimt, næringu og fleira.

    Samstarfsaðilar Klefans eru Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Endilega fylgist með Birnu á
    @sportbitarnir
    @birnavardar

  • Bæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman.

    Hlustaðu hér á Loga Geirsson.
    Hlustaðu hér á Aron Pálmarsson.

    Nú eru þeir í sviðsljósinu á HM á sitthvorum vettvangnum og þá er gaman að rifja upp eitt og annað. Ég hef nú ekki áður tekið svona saman, en væri gaman að heyra hvort þið hafið gaman af - sendu mér endilega skilaboð á @siljaulfars eða @klefinn.is.

    Samstarfsaðilar Klefans eru - Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

  • Saknas det avsnitt?

    Klicka här för att uppdatera flödet manuellt.

  • Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi.
    Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira.

    Aron fer yfir ferilinn, segir okkur sögur frá hverjum stað, eins og þegar öfuga jólatréð mætti til Kiel og að það borgi sig ekki að stanga Alfreð Gíslason. Einnig segir hann frá vandræðunum hjá Veszprem þegar hann fór þaðan síðast og hvernig það kom til að hann er kominn þangað aftur í dag.

    Nú er HM að hefjast og Aron fer yfir landsliðsferilinn, mótið, markmið, formið og fleira. Þá svaraði hann spurningum úr sal mjög samviskulega.

    Hvetjum ykkur til að hlusta og Áfram Ísland.

    Tímaramminn
    5:40 - Hvernig HM leggst í Aron
    14:15 - Formið og keppnisþyngdin
    16:00 - Íþróttir á yngri árum
    21:20 - Logi Geirsson
    24:15 - Kiel og fyrstu árin í atvinnumennskunni
    31:25 - Öfuga jólatréð mætti til Kiel
    34:30 - Veszprém
    38:25 - Stormasamur viðskilnaður við Veszprém
    45:45 - Fer aftur til Vesprém 2024 - sögustund
    55:27 - Barcelona og Aalborg
    57:30 - Nútíma handboltamenn - þróun
    59:35 - Auglýsingahlé í boði Bæjarbakari
    1:02:03 - Íslenska landsliðið
    1:03:20 - London 2012 - 5. sæti - mikil vonbrigði
    1:05:50 - Markmiðið fyrir HM 25
    1:08:40 - af hverju ertu ekki bara alltaf góður?
    1:11:10 - Snorri þjálfari og Aron fyrirliði
    1:14:15 - Að spila fyrir Ísland og pressan
    1:22:00 - Recovery gamla mannsins
    Veikleikar, styrkleikar, mótlæti, hverju ertu stoltastur yfir og hver eru næstu skref.

    Samstarfsaðilar Klefans eru Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun, þá þökkum við Bæjarbakarí sérstaklega fyrir.

    @klefinn.is
    @aronpalm
    @siljaulfars

  • Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur.

    Elísabet segir frá sínum fyrstu skrefum sem þjálfari, ræðir liðin og áskoranirnar sem hún hefur upplifað, og hvað hún myndi gera öðruvísi í dag sem yngri flokka þjálfari. Hún ræðir mistökin sem þroskuðu hana sem þjálfara og af hverju henni finnst Besta Deildin hafa þróast of hægt á síðustu 16 ár. Elísabet ræðir möguleika kvennalandsliðsins á EM í sumar og fer yfir það sem hún telur styrkleika og veikleika liðsins. Þá ræðir hún einnig hvort hún vilji þjálfa karlalið og að hún hefði elskað það challenge að taka til í karlaliði Vals í sumar.

    Elísabet hefur skemmtilega sýn á að búa til samhelt lið, einhverjir myndu næstum kalla það sértrúarsöfnuð. Hún ræðir hvaða eiginleika leikmenn þurfa að hafa og hvernig hún notar litríkt excel skjal með dass af "Flow" til að velja í liðið sitt. Hún notar mismunandi nálganir á leikmenn, ræðir sjálfstraust þeirra og þjálfara.

    Elísabet segir söguna þegar hún plataði milljónamæring á fund til að ræða styrktar umhverfi íþróttafélaga og hvernig það þurfi að vera win win fyrir klúbbinn og samfélagið. Hún gefur ráð til þjálfara og íþróttafólks og margt fleira. Hvetjum ykkur til að hlusta og fylgjast vel með Elísubetu 2025!

    @elisabetgunnarz
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram að 2028 Ólympíuleikunum.

    Í Ólympískum lyftingum er keppt í Snörun og Jafnhendingu (clean & jerk), en keppt er í samanlögðum árangri í þessum greinum. Í þættinum ræðir hún hvernig æfingavikan er sett upp, tæknin sem þarf að huga að og fleira. Einnig ræðum við mikilvægi næringar og endurheimtar.

    Við þökkum samstarfsaðilum Klefans, Auður, Hafið fiskverslun, Lemon, og Nutrilenk fyrir stuðninginn.

    Hvetjum ykkur til að hlusta og fylgjast vel með Eygló 2025!

    @eyglo_fanndal
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi.

    Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og hvernig best er að leggja upp æfingar fyrir markmenn. Þá sér hún einning um gæðastjórnun í menntun markvarðarþjálfara hjá Knattspyrnusamböndum Stokkhólms og Gotlands.

    Guðbjörg ræðir um áherslur í markmannsþjálfun í Svíþjóð, innihald á æfingum og hvernig hægt er að vinna í andlegum þætti markvarða ásamt mörgu öðru.

    Þátturinn er í boði Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Velkomið að senda á hana skilaboð ef þú hefur spurningar 👉🏼@guggag.

    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi.

    Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn, silfurverðlaunin og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti á Ólympíuleikunum.

    Þá fengum við spurningar frá ungu íþróttafólki sem Snorri vandaði sig að svara. Snorri hvetur alla til að nenna að leggja sig fram og ná sínum markmiðum.

    Þátturinn er í boði Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    3:15 - Undirbúningur fyrir HM og vona að leikmenn meiðist ekki.
    8:25 - Þjálfa Val - hvernig það hlutverk er öðruvísi
    10:35 - Traust til leikmanna og að landsliðsmenn skilji sín hlutverk
    13:20 - Mótlætið og fara í fílu, "ég er mikill fan af mótlætinu, ég held að það gerist ekkert gott nema með mótlætinu".
    14:20 - Hvaða áhrif að klúðra vítinu á ÓL hafði á Snorra
    18:20 - Undirbúningurinn fyrir HM og æfingar fyrir HM
    21:30 - Aron Pálmarsson fór aftur út til Veszprem
    23:44 - Að velja lokahópinn fyrir HM
    26:20 - ráð til yngri flokka sem komast ekki í hópinn
    29:26 - Svekktur með hefbundinn undirbúning fyrir HM og ræðir hvernig mótið leggst í hann
    32:50 - Að vera í sigurliði
    34:25 - Hvernig býrðu til lið úr einstaklingum?
    39:06 - Dagskrá landsliðsins úti
    48:00 - Að upplifa gagnrýni
    54:00 - Hvað er mikilvægt fyrir ungt íþróttafólk að huga að til að ná sem lengst?
    57:10 - Að æfa fleiri íþróttagreinar, "því meira því betra".
    1:00:40 - ræddi um Val og liðin sem hann var í
    1:08:15- "blautur bak við eyrum og hélt ég væri frábær þjálfari".
    1:16:20 - Hæfileikamótun og menntaskólaaldurinn
    1:23:10 - Spurningar frá yngri kynslóðinni

    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Arnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    18:15 - Brottfall og stytting menntaskóla
    24:10 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    25:50 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @meistariarnar
    @siljaulfars
    @sosialistaflokkurinn

  • Ásmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf).
    15:55 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    33:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    40:15 - Brottfall og stytting menntaskóla
    48:42 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    58:35 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @asmundureinar
    @siljaulfars
    @framsokn

  • Theodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    21:25 - Brottfall og stytting menntaskóla
    26:20 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    28:05 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @teddilebig
    @siljaulfars
    @piratar

  • Hannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    37:37 - Brottfall og stytting menntaskóla
    45:30 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    50:50 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @hannes_sigurbjorn
    @siljaulfars
    @xs_samfylkingin

  • Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.
    Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    23:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    29:25 - Brottfall og stytting menntaskóla
    37:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    40:35 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @hannakatrinfridriks
    @siljaulfars
    @vidreisn

  • Bjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    23:40 - Brottfall og stytting menntaskóla
    31:14 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    35:52 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @bjarkihj
    @siljaulfars
    @vinstrigraen

  • Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla
    27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    29:30 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @antonmckee
    @siljaulfars
    @midflokkurinn

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.

    Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.

    Tímalína:
    5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar
    17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
    25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla
    32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
    34:20 - Veðmálastarfsemi á Íslandi

    Þú finnur okkur á Instagram:
    @klefinn.is
    @aslaugarna
    @siljaulfars
    @sjalfstaedis

  • Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu.

    Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott að skoða sig og þekkja sína styrkleika og veikleika.

    Margrét Lára fer yfir muninn á mismunandi markmiðum

    Frammistöðumarkmið Færnimarkmið Niðurstöðutengd markmið

    „Hlutir geta farið í allar áttir, ef maður er samviskusamur og tekur þetta föstum tökum og gerir sitt besta þá getur maður alltaf verið sáttur við niðurstöðuna,“ segir Margrét Lára.

    Mælum með að þú takir glósur, gefi þér tíma að skoða hvað þú þarft að vinna í til að ná þínum markmiðum og hefjist svo handa. Gangi þér vel

    Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Þú finnur okkur á instagram
    @mlv9
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni.

    Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuninni þegar hún sleit krossböndin rétt fyrir EM og hvernig hún vann sig í gegnum það.

    Sálfræðingurinn Margrét Lára gefur einnig góð ráð og smá innsýn inn í huga íþróttafólks, hún ræðir meiðsli og óttanum sem getur fylgt þeim, kvíðann, félagskvíðann, að hafa hugrekki, hvernig við bætum sjálfstraust og hvernig þjálfarar geta aðstoðað íþróttafólkið sitt. Þá gefur hún einnig góð ráð til foreldra og hvetur ungt fólk til að vera í fjölbreyttri hreyfingu og hafa hugrekki.

    Þetta og fullt annað í þessum þætti, en á fimmtudag kemur út markmiðaþáttur með Margréti Láru.

    Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Þú finnur okkur á instagram
    @mlv9
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

    4:00 - knattspyrnuferillinn
    8:30 - Meiðslin
    12:20 - Íþróttamaður ársins
    15:35 - Landsleikir og að spila með öllum landsliðunum
    22:20 - Afreksmiðuð of snemma og fjölbreyttar íþróttir
    29:20 - Heil Heilsumiðstöð
    33:50 - Meiðsli íþróttafólks og óttinn sem fylgir
    40:20 - Forgangsröðun, Menntaskólarnir og brottfall
    42:45 - Meiðsli og hlutverk þjálfara
    43:45 - Krossbandaslit fyrir EM
    47:00 - Hvað geta þjálfarar gert?
    51:20 - Kvíði íþróttafólks
    52:30 - Koma aftur eftir barnseignir
    55:35 - Ótti og kvíði, félagskvíði, hverjir eru triggerarnir
    1:02:10 - Þjálfarar og samtal við íþróttafólkið
    1:04:40 - Félagskvíði og að fara inn í aðstæður
    1:17:15 - Andlegur styrkur
    1:21:10 - hlutverk foreldra
    1:24:45 - Halda börnum í íþróttum, höfnun og fleira
    1:28:00 - Hver er þín hleðsla?
    1:36:55 - Imposter Syndrome
    1:41:20 - Sjálfstraust og sjálfstal

  • Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk.

    Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfingu íþróttafólks, þá ræðir hann einnig hugmyndir um hvernig sé hægt að efla íþróttakennslu, mikilvægi fjölbreytni í íþróttum og hreyfingu fyrir börn og hvernig er hægt að búa til betra umhverfi fyrir ungt íþróttafólk.

    Erum við á réttri leið með akademíur, afreksstefnu og sérhæfingu unga íþróttafólksins okkar?

    2:00 – Mödling þjálfara verkefnið
    19:40 – Akademían í Vestmannaeyjum
    23:40 – Íþrótta akademíur – niðurstöður sláandi
    25:20 – Leikfimikennsla
    31:00 – Þjálfun erlendis
    34:20 – Að finna góðan fyrirliða
    44:30 – Saudi Arabía
    49:15 – Sérhæfing ungs íþróttafólks – barnastjarna eða afreksmaður
    1:02:00 – Rannsóknir, Belgía, og fleira.
    1:05;40 – Ef Erling mætti ráða, hvernig myndi hann setja þetta upp
    1:11:50 – Fjölskyldan

    Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Þú finnur okkur á instagram
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.

    Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.

    Margt kom fram í þættinum meðal annars:

    Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og eftir æfingar MorgunæfingarFæðubótaefni, prótein, kreatín og fleiri fæðubótaefniLíkamssamsetning, þyngjast, léttast og fleira.

    15% afsláttur á Hreysti.is með kóðanum KLEFINN - hvetjum þig til að nýta ykkur afsláttinn.

    Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Þú finnur okkur á instagram
    @nutreleat
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars

  • Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar.

    Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira.

    Það er mikilvægt að opna umræðuna um blæðingar því það er eitthvað sem allar konur upplifa, þá er mikilvægt að karlar og þjálfarar þekki þetta einnig.

    Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

    Þú finnur okkur á instagram
    @larahaf
    @Klefinn.is
    @Siljaulfars