Avsnitt
-
Birna Dröfn Jónasdóttir, blaðakona og hópstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni ræddi við okkur um mikilvægi stuðnings í sorgarferlinu.
-
Saknas det avsnitt?
-
Helga Einarsdóttir, athafnastjóri hjá Siðmennt, fræddi okkur um það hvernig útfarir með aðkomu Siðmenntar fara fram.
-
Sveinn Hólmar talar um sorgina sem hann kynntist fyrst sem barn þegar amma hans, Ellý Vilhjálms söngkona, fellur frá. Sveinn var mikið á heimili ömmu sinnar og afa þar sem móðir hans var sjúklingur alla tíð og var því einstaklega náinn þeim. Sorgin knúði svo aftur dyra á menntaskólaárunum þegar móðir hans deyr eftir langvinn veikindi.
-
Í þessum þætti fengum við til okkar þær Ölmu Hrönn og Hrafnhildi Ýr frá Starcode Academy að ræða við okkur á andlegu nótunum.
-
Í þessum síðasta þætti okkar fyrir jólin þá fengum við til okkar Séra Jónu Hrönn Bolladóttur, prest í Garðasókn. Við ræddum hvernig er að halda jól eftir ástvinamissi ásamt öðru áhugaverðu sem kom upp í spjalli okkar.
-
Í þetta skiptið erum við allar þrjásem stöndum að baki Aska Bio Urns, Dögg, Heiðdís og Þórhildur mættar í stúíó að ræða hönnun. Dögg er iðnhönnuður og hefur mikið velt fyrir sér hönnun á líkkistum og duftkerjum.
-
Þessi þáttur er framhald af fyrri þætti þar sem við fengum Heimi Janusarson, forstöðumann Hólavallagarðs til okkar en okkur langaði að fræðast um þann íslenska sið að heimsækja leiði ástvina um jólin.
-
Í þessum þætti fáum við Heimir Björn Janusarson, umsjónarmann Hólavallagarðs í hlaðvarpið til að fræða okkur um kirkjugarðinn sem á sögu að rekja til ársins 1838. Garðurinn er um margt merkilegur og þá ekki einungis vegna þeirra sem þar hvíla.
-
Gestur okkar að þessu sinni er fréttakonan Berghildur Erla Bernharðsdóttir sem fjallar um það hvernig hún tókst á við sorgina eftir fráfall foreldra sinna.
-
lísabet Reynisdóttir, næringafræðingur eða Beta eins og hún er alltaf kölluð, ræddi við okkur um það þegar hún veiktist alvarlega og hvaða áhrif það hafði á hennar lífssýn.
-
Hér fjöllum við um dauðann út frá ýmsum hliðum og fáum til okkar áhugaverða gesti til að fræða okkur og veita innsýn í þennan óhjákvæmilega hluta lífsins.