Avsnitt
-
Ásgrímur Sverrisson ræðir við þau Hlín Jóhannesdóttur og Anton Mána Svansson kvikmyndaframleiðendur um uppskeru ársins 2023, breytingarnar á Edduverðlaununum, þrönga stöðu Kvikmyndasjóðs og þau álitamál sem kvikmyndaheimurinn stendur frammi fyrir á næstu misserum.
-
Saknas det avsnitt?
-
Kvikmyndaskóli Íslands hefur menntað hundruði kvikmyndagerðarfólks og eru meirihlutinn að störfum í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. Skólinn átti þrjátíu ára afmæli í fyrrahaust og af því tilefni ræddi ég við Börk Gunnarsson leikstjóra og handritshöfund sem verið hefur rektor skólans þennan veturinn. Við spjölluðum um framlag skólans til íslenskrar kvikmyndagerðar, hvaðan nemendurnir koma og væntingar þeirra, áskoranirnar í rekstri skólans og reynslu Barkar af rektorsstarfinu.
-
Jörundur Rafn Arnarson er myndbrellumeistari eða visual effects supervisor og hefur sem slíkur komið að tugum innlendra og erlendra verkefna síðustu tuttugu árin. Ásgrímur Sverrisson ræddi við hann um myndbrellufagið og það sem er efst á baugi í þeim heimi, sem að sjálfsögðu er óaðskiljanlegur hluti kvikmyndagerðar.
-
Umræða um það helsta sem íslenski kvikmyndabransinn gekk í gegnum á árinu 2022 með Kristínu Andreu Þórðardóttur framleiðanda, leikstjóra og stjórnanda Skjaldborgarhátíðarinnar og Ragnari Bragasyni leikstjóra, handritshöfundi og formanni Samtaka kvikmyndaleikstjóra. Umræðuefni: Aðsókn og áhorf, bíó og sjónvarp, Bíó Paradís, hækkun endurgreiðslunnar i 35%, Kvikmyndastefnan og niðurskurðurinn til Kvikmyndasjóðs, Kvikmyndalistadeild Listaháskólans, Evrópsku kvikmyndaverðlaunin og loks horfurnar framundan.
-
Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson hafa á síðustu tveimur árum (2020-2022) sent frá sér fjórar bíómyndir sem allar hafa notið velgengni í kvikmyndahúsum þrátt fyrir heimsfaraldur. Þetta eru Síðasta veiðiferðin, Amma Hófí, Saumaklúbburinn og nú Allra síðasta veiðiferðin. Ég ræddi við þá um reynsluna af þessari þeysireið og hvert skal haldið héðan.
-
Kvikmyndadeild Listaháskólans tekur til starfa í haust. Ásgrímur Sverrisson ræðir við Steven Meyers deildarstjóra um uppbyggingu námsins og hvernig hann sér þetta allt fyrir sér.
-
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um fimmta og sjötta þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.
-
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um þriðja og fjórða þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.
-
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um fyrstu tvo þætti Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.
-
Ásgeir H. Ingólfsson og Ásgrímur Sverrisson stikla á stóru um það helsta sem gerðist í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpi 2021. Þetta er fyrsti þáttur nýs hlaðvarps á www.klapptre.is.