Avsnitt

  • Ace Frehley gaf út sína tíundu sólóplötu á dögunum. Þar sem hann er orðinn 73 ára gæti vel farið svo að um svanasöng Ása sé að ræða, hver veit? Er þessi plata nægilega góð til að vera hans síðasta? Hér förum við yfir það allt saman og hendum meira að segja í stigagjöf upp á gamla mátann. Við skemmtum okkur konunglega við greininguna á þessari plötu sem kallinn nefndi svo 10,000 Volts og vonum við að áhlustun á þáttinn sé með svipað skemmtanagildi. Rokk & Ról !

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1977 hjá okkar mönnum. Þetta er árið sem þeir toppuðu og áttu heiminn, enda á yfirborðinu var ekkert nema bjart framundan. Yfirferð okkar í hinu sögulega ljósi heldur hér áfram. Forsetinn kemur með sláandi "fréttir" og Starpower gluggar í Tímann og segir okkur helstu fréttir af Enterprise áætlunum Bandaríkjamanna ásamt öðru afar krassandi stöffi. Þá skoðum við óborganlegan tónleikadóm frá þessu ári og heyrum líka viðtal við Bon heitinn Scott frá 1.nóvember 1977 þar sem hann talar um væntanlegt upphitunargigg AC-DC fyrir KISS. Þetta allt og svo miklu, miklu meira í þættinum að þessu sinni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Saknas det avsnitt?

    Klicka här för att uppdatera flödet manuellt.

  • Við erum komin að árinu 1977 í þessari sögulegu yfirferð okkar um KISSÖGUNA. Sennilega er þetta ár það ár sem okkar menn eru algerlega á toppnum á sínum ferli. En þetta er líka árið þar sem maskínan fer að liðast í sundur. KISS fá sín fyrstu verðlaun á ferlinum og það fyrir lagið Beth. Spurning hvort að sú staðreynd hafi ekki gillað egóið hans Peter ansi vel? Okkar menn gáfu út eina hljóðversplötu á þessu ári og eina tónleikaplötu en þetta er einmitt árið þar sem Ace þorði að byrja syngja. Tónleikaferðirnar voru hins vegar þrjár þetta árið, alveg ótrúlega viðburðaríkt ár hjá okkar mönnum svo ekki sé meira sagt. Hér förum við yfir það allra helsta eins og okkur er lagið og berum það saman við söguna í þessum fyrri hluta á árinu 1977. Þá skoðum við auðvitað líka hvað "KISS heimar" bjóða okkur upp á um þessi misserin.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • KISS hafa lagt árar í bát eftir 50 farsæl ár. Á lokatónleikum sínum í MSG, NY þann 2.desember 2023 kynntu þeir þó nýtt upphaf með orðunum "A New Era Begins" þar sem þeir ætla sér að notast við gervigreindina á komandi árum. Í þessum þætti förum við yfir það allt saman og reynum að koma okkar skoðun á því öllu í orð. Við heyrum fréttir af Brúsa okkar en mikið hefur borið á honum upp á síðkastið. Við kíkjum aðeins á Ásinn og heyrum hvað er að frétta af honum, við gægjumst örlítið ofan í veskið hjá okkar mönnum og svo margt, margt fleira. Að lokum sláum við í annað sinn á þráðinn til Bill Starkey, Forseta Forsetanna. Hann er auðvitað stórvinur þáttarins og annar af stofnendum KISS ARMY. Við fáum hans álit á því sem helst er í KISS fréttum þessa tíðina ásamt léttu spjalli.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Seinni hluti þessa stóra og mikilvæga árs í KISSÖGUNNI, 1976. Okkar menn halda áfram túrnum sem nú breyttist í "Spirit of ´76 tour". Þeir drita frá sér smáskífum og fara í Star Theatre ásamt Eddie "effing" Kramer til að taka upp næstu plötu. Vélin er farin af stað og verður að fá olíu. Endalausa olíu. "KISS: The Originals" kemur út á fæðingardegi Forseta vors, þeir koma fram í hinum fræga "Paul Lynde Halloween Special", Ace Frehley fær raflost á sviði og spilað er á sögufrægum og einkar vel heppnuðum tónleikum bæði á Anaheim Stadium sem og á Roosevelt Stadium svona svo eitthvað sé nefnt. Beth slær í gegn eftir óvænt útspil útvarpsstöðvar nokkurrar í Kanada og Peter er þá skyndilega orðinn aðal kallinn. Svo fer jólamyndatakan í hundana sökum ástands Ace Frehley sem var í afar sérkennilegu jólaskapi þegar hún fór fram. Á sama tíma fagnar Tommy Thayer sínu 16 ára afmæli og Bubbi Morthens kemur fram opinberlega á tónleikum í fyrsta skiptið hér upp á Ísa-landi. Þetta og svo margt og mikið meira í þessum seinni hluta yfirferðar okkar um KISS-árið 1976. Endilega munið að gefa þættinum svo stjörnur í spilaranum sem notaður er við hlustun og þá minnum við á umræðuhóp þáttarins á Facebook. (KISS ARMY ICELAND hlaðvarpið - Umræðuhópur.)

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Við gerðum heiðarlega tilraun til að koma árinu 1976 fyrir í einum þætti. Það var bara ekki hægt, þannig að við skiptum upp þessu ári í tvo þætti. Seinni hlutinn er svo væntanlegur um viku síðar. Það gekk nefnilega ofboðslega mikið á hjá KISS á árinu 1976. Við erum að tala um að á árinu komu þrír túrar við sögu, tvær hljóðversplötur og ein safnplata ásamt svo mörgu öðru, en þar má nefna fyrstu Evrópuför okkar manna, brúðkaupi Ace Frehley og að ógleymdri keppni er bar heitið “The School Spirit Contest” og var í boði Mars Candy Co og ákveðinnar útvarpsstöðvar. Og hvað var að gerast upp á Íslandi á meðan öllu þessu stóð sem dæmi? Þetta allt og svo miklu meira til bæði í bland og í takt við tíðaranda þessa tíma; The Spirit Of ´76! Við tökum þetta allt fyrir hér.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ætlum við að hita upp fyrir veturinn. Það hefur margt gerst í KISS heimum á meðan við vorum í fríinu þannig að við tökum sér þátt um það í þetta skiptið áður en lengra er haldið með ártölin góðu. Við tvískiptum þættinum og í fyrri hlutanum skoðum við hvað okkar menn eru búnir að vera brasa í sumar og kemur þar margt við sögu. Allt frá Taylor Swift til Rock & Brews en með viðkomu í mökk-ölvuðum Starpower.....eða hvað? Þá hömpum við aðeins Gene sérstaklega en hann á afmæli örfáum dögum eftir að þessi þáttur kemur út og er hann 74 ára, drengurinn sá arna. Í seinni hlutanum skoðum við svo tónleika okkar manna í Berlín þann 22.júní 2023 sérstaklega vel, en þar voru allir þáttastjórnendur mættir á dansgólfið. Í viðbót við þetta heyrum við skemmtilegar tónleikasögur í innslagi frá nokkrum af okkar frábæru hlustendum. Við fögnum því að vera mættir á ný, endurnærðir og til í slaginn í vetur. Það er sko nóg framundan.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Við erum komin að árinu 1975. KISS senda frá sér tvær plötur þetta ágæta ár. Dressed to kill kemur í mars en síðar á árinu mætir fyrsta tónleikaplatan þeirra, platan sem öllu breytti. ALIVE! Þetta og svo mikið og miklu meira í þessum þætti þar sem við höldum einnig áfram að gera tilraun til að setja allt í eitthvert samhengi við þá tímans tönn. Góða skemmtun.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Við höldum áfram að fara yfir KISSÖGUNA. Við erum komin á fyrsta heila KISS-árið, 1974. Okkar menn senda frá sér tvær breiðskífur þetta ár en hvorugar seldust sérlega vel. Bill Aucoin og Neil Bogart höfðu þó sterka trú á verkefninu og lögðu allt undir, sér í lagi umboðsmaðurinn Bill ásamt auðvitað meðlimum bandsins. KISS fóru strax á þessu ári í fyrsta skiptið út fyrir Bandaríkin að spila og komust tvisvar í sjónvarpið. Hér skoðum við þetta ágæta ár í stóra samhenginu sem fyrr. Hvað var að gerast í heiminum á meðan KISS voru að stíga sín fyrstu spor? Hafði eitthvað af því áhrif á þá? Hvernig var þeim tekið? Hvað vorum við hér upp á Íslandi að gera í tónlistinni og öðru á sama tíma? Þetta allt og miklu meira til í þessum þætti sem er númer 81 í röðinni.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum fyrsta þætti í nýju fyrirkomulagi þáttarins tökum við fyrir árið sem bandið var stofnað. Upphafið. Árið er 1973. Ace kemur til liðs við tríóið sem skipað var Gene, Paul & Peter og bandið varð fullmótað. Við skoðum hvað var að gerast í tónlistarsenunni á þessum tíma? Voru augljósir áhrifavaldar þar á ferð fyrir okkar menn? En hvað gekk á í Bandaríkjunum, Íslandi og bara heiminum öllum á sama tíma og KISS eru að fæðast? Þá tölum við um bæði lokatónleika KISS sem fyrirhugaðir eru í Madison Square Garden, NY, í desember 2023 og kryfjum aðeins hvað Ási er að vilja upp á dekk með nýlegar hótanir sínar gagnvart sínum gömlu félögum. Þetta allt og meira til.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Fyrsta „læf“ plata okkar manna, KISS ALIVE! bjargaði ferli þeirra. Önnur „læf“ platan, ALIVE II, festi þá í sessi sem stórstjörnur á heimsvísu og sú þriðja sannaði að þeir gætu náð árangri og gert gott mót án tveggja upprunalegra meðlima og án frægu andlitsmálningar sinnar. Svo hvað gæti KISS mögulega gert til að gera fjórðu „læf“ plötuna sína, ALIVE IV, öðruvísi? Jú, þeir tóku seinni lestina og frömdu plötuna ásamt sinfóníuhljómsveitinni The Melbourne Symphony í Ástralíu þann 28.febrúar 2003, fyrir sléttum 20 árum síðan. Í þessum þætti kíkjum við nánar á þessa plötu og dæmum hana. Ekki eru allir á eitt sáttir við lagavalið en ljóst má vera að okkar menn voru í hörku spilaformi. Það var þarna sem Tommy vinur okkar Thayer var kynntur umheiminum sem The Spaceman. En hvernig skilaði hann sínu í þessari eldskírn sinni?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Við ákváðum að skella í einn aukaþátt sem við getum kallað "örþátt" (enda ekki nema rétt yfir klukkustund að lengd), og ekki að ástæðulausu góðir hálsar. Því daginn sem þátturinn kemur út (þann 30. janúar) eru einmitt 50 ár upp á dag síðan KISS spiluðu á sínum fyrstu tónleikum á Coventry klúbbnum (áður Popcorn pub). Þátturinn er óhefðbundinn. Starpower mætti með stórskemmtilegan og fræðandi pistil í tilefni dagsins, þá ræddum við örlítið komandi útgáfu í "Off The Soundboard" seríunni, þar sem Poughkeepsie, New York frá árinu 1984 er næst í röðinni með engan annan en Mark St. John haldandi um sólógítarinn, verulega spennandi stöff þar á ferð. Að lokum tilkynnum við um áframhaldið. Við kynnum nýtt concept til að hrista upp í hlaðvarpinu sem allir elska að elska, og opinberum það í þættinum ásamt fleiru til. Við erum alveg eins og KISS......bara getum ekki hætt!

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Herra Paul Stanley fagnaði 71 árs afmæli sínu nýverið og því fögnum við öll, meðal annars í þessum fyrsta þætti ársins 2023. Það er af nægu að taka enda heillangt síðan síðast. Mál málanna í þættinum að þessu sinni eru þó störf okkar manna með öðrum listamönnum, en sem meðlimir KISS á sama tíma. Við erum að tala um sem lagahöfundar, hljóðfæraleikarar, söngvarar, umboðsmenn, útgefendur nú eða upptökustjórar og annað slíkt. Við tökum hér fyrir 10 vel valin lög með ólíkum listamönnum sem eiga það þó öll sameiginlegt að falla undir þessa skilgreiningu, við gefum þeim einkunn að hætti hússins og skoðum nánar hvert lag. Góða skemmtun og gleðilegt nýtt KISS ár !

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Við lofuðum JÓLA-SPECIAL og við stöndum við það. Og ekki bara það, við tjöldum öllu til í þetta skiptið enda komnir í hátíðarskap. Við áttum stórkostlegt spjall við hinn eina sanna Jean Beauvoir þar sem við fórum um víðan völl en þó að sjálfsögðu með áhersluna á KISS. Eins og hlustendur vita þá spilaði Jean bassann inn á nokkur lög á bæði Animalize og Asylum ásamt því að semja þau flest í slagtogi með Paul Stanley. Hver man ekki eftir lögum eins og „UH! All night“, „Thrills in the night“ eða „Who wants to be lonely“? Þeir Paul hafa verið miklir vinir síðan snemma á níunda áratugnum og eru reyndar enn, og lofaði því þessi nýjasti besti vinur þáttarins að leggja inn gott orð fyrir okkur hjá herra Stanley. Jean Beauvoir var annars hrikalega hress og skemmtilegur og með húmorinn á réttum stað þannig að þátturinn ætti að vera hin besta skemmtun fyrir nördana ykkur, enda nördaskapur 2,0 hér á ferð. Njótið vel og gleðilega hátíð kæru vinir. Við þökkum fyrir hlustunina á árinu sem er að líða og að sama skapi þökkum við einnig innilega fyrir ánægjulegar samverustundir á hinum feykivinsælu LIVE upptökum okkar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum síðasta þætti KISS ARMY ICELAND PODCAST (the touring band) sem er númer 75 í röðinni tökum við fyrir KISS ALIVE! síðan 1975. Platan sem breytti öllu fyrir Gene, Paul, Ace og Peter. Þátturinn sem tekinn var upp ALIVE með gesti í sal laugardagskvöldið 8.október 2022 er með örlítið breyttu sniði í þetta skiptið þar sem við fengum til okkar gesti í settið ásamt óvæntu atriði. Við þökkum öllum sem komu kærlega fyrir ánægjulega kvöldstund, og við þökkum ykkur öllum fyrir hlustunina. Þetta hlaðvarp hefur gefið okkur mikið og við munum sakna þess að hittast ekki á vikulegum fundum okkar og negla saman þátt. Við þökkum einnig fyrir fjölda áskoranna sem okkur barst þar sem okkur var réttilega bent á að okkar menn hafa nú sjálfir hætt við að hætta. Við setjum allt í nefnd og leggjumst nú undir feld, það er ekkert víst að þetta sé aaaalveg attbú. En hvað sem gerist er vikulegum þáttum lokið að sinni, the tour is over.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Þessi misserin eru 49 ár síðan fjórir ungir piltar skröltu saman inn í BELL SOUND hljóðverið í New York til að taka upp sína fyrstu plötu. Kannski sína einu? Því enginn vissi þá hvað næstu 50 árin myndu gefa af sér. Í febrúar árið eftir kom þessi frumburður þeirra út og síðar það sama ár leit svo önnur platan þeirra dagsins ljós. Glöggir lesendur hafa þegar kveikt á perunni um hverja er talað hér. Jú, KISS. Síðan þarna hafa komið frá þeim 18 plötur í viðbót sem innihéldu nýtt efni í hvert skipti, samtals 20 hljóðversplötur + 4 sólóplötur undir nafni hvers og eins meðlima bandsins. Við höfum farið yfir allar þessar 24 plötur í þessum þáttum og vel rúmlega það. Í þessum síðasta þætti úr stúdíó sannleikans röðum við þessum plötum og setjum upp í okkar hefðbundnu stigagjöf og freistum þess að finna bestu KISS plötuna. Einnig stöldruðum við aðeins við og litum um öxl, fullir þakklæti og gleði með dassi af stolti yfir því sem við höfum áorkað í hlaðvarpinu okkar góða. ÁFRAM KISS !! VIÐ NEFNILEGA HÖLDUM MEÐ ÞEIM !!

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Þann 15.september árið 2009 sendi sjálfur Ace Frehley frá sér plötuna Anomaly, sem var hans fyrsta plata í 20 ár! Alveg frá því að Trouble Walkin´ kom út þarna árið 1989 var lítið að frétta nefnilega af kallinum fyrir utan að KISS komu jú auðvitað saman á ný þarna árið 1996. Eftir að því ævintýri lauk þurfti Ásinn aldeilis að taka á honum stóra sínum og kannski aðeins að taka sig einnig á í neyslunni (þ.e EKKI neyslunni) og koma lífi sínu í réttar skorður. Þetta tókst okkar manni á þessu tímabili o.þ.l. tókst honum að koma ferli sínum á réttan kjöl. Anomaly er hörku þungarokksplata en með einhverjum göllum þó, en góð er hún. Þátturinn fullyrðir að hún er betri en platan "One for all" sem Pétur henti frá sér tveimur árum fyrr. En þáttastjórnendur voru þó ekki sammála í einu og öllu og má minnast hér á að lagið sem fékk "tómt hús" frá StarPower fékk fullt hús frá Forsetanum okkar, sem er eiginlega nýjung. Anomaly er plata þessa þáttar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • WARNING! AÐEINS FYRIR GEGNHEILA KISS AÐDÁENDUR !!! Fimmta sólóplata Peter Criss ber heitið "One for all" og er hún að öllum líkindnum svanasöngur Kattarins hvað sólóplötur varðar. Hún kom út sumarið 2007 og geymir hún 12 lög. TÓLF! Þættinum bar skylda til að fara yfir þessa plötu og reyndist það þáttastjórnendum þrautinni þyngra svo ekki sé meira sagt. Hvað gekk Peter til með þessum gjörning eiginlega? Sjálfur stýrði hann upptökunum en með honum var algjört stórskotalið í bransanum, en enginn virðist hafa sagt neitt? Góðir hlustendur, við biðjumst afsökunnar á þessum annars áhugaverða þætti.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Space-Ace og Kötturinn hafa verið duglegir að gefa út sólóplötur eftir sína bestu KISS daga. En hefur "Hundurinn" gert slíkt hið sama? Eeeehhhhh.....já! Bruce Kulick hefur sent frá sér þrjár sólóplötur eftir sína KISS daga. En er eitthvað varið í þær? Eeeehhhhhh......við skulum sjá. Það var löngu orðið tímabært að gera þessum manni góð skil í hlaðvarpinu okkar. Bjargaði hann KISS? Nei, sennilega alls ekki. En eyðilagði hann KISS? Tjah...þið verðið að spyrja StarPower að því, það er jú hann sem er "boðberi sannleikans". En Brúsi gekk til liðs við KISS árið 1984 og stóð sína plikt þar með gítarinn í hönd allt til ársins 1996, eða í 12 ár. Sennilega og eiginlega pottþétt toppurinn á hans ferli. En hér kynnum við okkur þennan góða Íslandsvin (sem tróð upp með MEIK á SPOT forðum daga og sælla minninga) og rennum yfir sólóplöturnar hans þrjár. Allt þetta og meira til í einum lengsta þætti sem við höfum framleitt, enda var "hundur" í okkur við upptökurnar svo ekki sé meira sagt.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • Í þessum tímamótaþætti sem er númer 70 í röðinni lítum við örlítið um öxl. Við ákváðum nefnilega í tilefni dagsins að gera eins og í "gamla daga" og koma með tvö málefni og svo gamla góða jókerinn að borðinu í þetta skiptið, það tókst skítsæmilega að við höldum. Þá kynntum við okkur aðeins sjálfan Doc McGhee umboðsmann KISS til næstum því 30 ára og skoðuðum hans bakgrunn nánar. Að lokum hentum við vangaveltum okkar út í kosmósið þar sem ýmislegt kemur fram. Góða skemmtun!

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.