Avsnitt

  • Kæru hlustendur, verið velkomin á Kennarastofuna! Það var einkar gaman að spjalla við Hjördísi Öldu. Ekki aðeins vegna þess að hennar rödd og sýn á kennslu er mikilvæg, og vegna þess að hún er framhaldsskólakennari sem starfar tímabundið sem kennslustjóri og horfir því á sviðið úr báðum áttum, heldur líka vegna þess að við Hjördís kenndum mjög náið saman í ein sex ár og höfum þróað með okkur vináttu sem er mér mjög mikilvæg og kær, bæði faglega og persónulega. Hjördís hefur í mörg ár verið minn bandamaður, en í samtalinu segir hún frá bandamönnum innan Menntaskólans við Sund, hlutverki þeirra og mikilvægi.

    Það er gaman að segja frá því að í doktorsverkefninu mínu er ég einmitt að rannsaka mikilvægi góðs og innilegs samstarf á tímum örra breytinga og óvissu í skólastarfi. Eins oig ég hef áður sagt er þessi rannsókn er mitt framlag til rannsóknarinnar Framhaldsskólinn og samkomubann á tímum COVID-19: Kreppa, áskoranir og aðlögun sem ég hef áður talað um og þessi þáttaröð Kennarastofunnar hverfist um.

    Þó að niðurstöður rannsóknar minnar séu ekki enn útgefnar í formi vísindagreinar – en það styttist þó í það – get ég sagt ykkur að greining mín á gögnunum sýnir að bandamenn innan skóla gegna mikilvægu hlutverki þegar kennarar standa frammi fyrir skyndilegum breytingum í kennslu eins og Covid tímabilið var.

    Og ég get vottað fyrir það sjálfur að kostir þess að eiga í slíku samstarfi eru gríðarlega miklir, óháð breytingum, og ekki aðeins faglega heldur líka persónulega, eins og samstarf og vinátta okkar Hjördísar hefur kennt mér.

    Takk fyrir að hlusta á Kennarastofuna. Eins og hefur oft komið fram hér á Kennarastofunni þá er skóli samfélag. Ég yrði því afar þakklátur ef þið mynduð taka þátt í samtalinu á Twitter og Facebook en líka í raunheimum með því að spjalla við kollega og deila þættinum með öðrum sem þið teljið að gæti haft gagn og gaman af. Góðar stundir.

    Það er rétt að það komi fram að þýðing mín á hugtakinu collegiality, samstarfskennd, fékk góða viðbót frá Berki Hansen við Menntavísindasvið, fagleg. Fagleg samstarfskennt. Það er nokkuð hljómfagur og nær nokkuð vel yfir þessa hugmynd um gott og náið samstarf innan skóla. Ég held áfram að máta þetta hugtak við starf kennara. Þið megið endilega gera það líka.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    ⁠www.kennarastofan.is⁠

    ⁠#kennarastofan

  • Verið velkomin á kennarastofuna. Við höldum áfram að fjalla um framhaldsskólann í heimsfaraldri og rannsóknina Framhaldsskólinn og samkomubann á tímum COVID-19: Kreppa, áskoranir og aðlögun. Og í þessum þætti snúum við okkur að verknámi og tölum við Ívar Valbergsson, kennara í vélstjórn við Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Við Ívar kynntumst fyrir rúmum tíu árum síðan þar sem hann tók snemma þátt í innleiðingu vendináms, sem ég hef áður talað um í þessum þætti. En fyrir hlustendur sem hafa ekki heyrt talað um þá kennsluaðferð þá snýst hún í grunninn um að nýta tíma kennara og nemenda innan kennslustofunnar sem mest í verkefnavinnu og samræður. Sem lið í því tekur kennarinn upp fyrirlestra og annað efni og sendir nemendum eða setur á kennslukerfið - fyrir kennslustundina - svo nemendur geti hlustað á efnið frá kennara, hvenær og hvar sem þeim hentar, og nýtt kennslustundina í verkefnavinnu undir handleiðslu kennara. Þetta er mjög gróf og einföld lýsing á kennsluaðferðinni en hún undirbýr ykkur allavega betur undir samtal mitt við Ívar sem hefur stuðst við aðferðina í nokkuð langan tíma.

    Það eru eflaust ekki margir hlustendur Kennarastofunnar kennarar í vélstjórn en allir kennarar ættu þó að geta tengt við aðferðir Ívars að einhverju leyti og smitast af áhuga hans á kennslu og ástríðu. Því hún leynir sér ekki. En byrjum á að heyra hvað Elsa Eiríksdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og þátttakandi í rannsóknarverkefninu hefur að segja um rannsóknina, tilgang hennar og markmið. Við munum svo heyra meira frá Elsu í þessari þáttaröð en hennar sérsvið er starfsmenntun.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    www.kennarastofan.is

    #kennarastofan

  • Saknas det avsnitt?

    Klicka här för att uppdatera flödet manuellt.

  • Verið hjartanlega velkomin á Kennarastofuna! Við höldum áfram samtalinu um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar þar sem ég tek viðtöl við kennara og annað skólafólk um kennslu á tímum heimsfaraldurs og hugsanlegar varanlegar breytingar sem sú reynsla mun hafa í för með sér.

    Í þessum þætti og þeim næstu mun ég einblína á framhaldsskólann þar sem Kennarastofan er kominn í eina sæng með rannsóknarverkefninu Framhaldsskólinn og samkomubann á tímum COVID-19: Kreppa, áskoranir og aðlögun. Ég er sjálfur hluti af rannsóknarhópnum sem doktorsnemi og það er Ómar Örn Magnússon einnig. Guðrún Ragnarsdóttir hefur umsjón með verkefninu ásamt Súsönnu Margréti Gestsdóttur en Amalía Björnsdóttir og Elsa Eiríksdóttir eru einnig þátttakendur af Menntavísindasviði – ásamt fleirum. Raddir sumra þátttakenda í þessu rannsóknarverkefnj munu heyrast í næstu þáttum eftir því sem við á.

    Rannsóknarverkefnið hefur hlotið styrk frá Háskóla Íslands til að búa til hlaðvarpsþætti sem fjalla um viðfangsefni rannsóknarinnar en styrkurinn er liður í því að styðja við samfélagsvirkni og miðla rannsóknum háskólans til almennings. Og í þessum öðrum þætti í þeirri þáttaröð spjalla ég við Aðalbjörgu Bragadóttur, íslenskukennara við Menntaskólann á Akureyri.

    Takk fyrir að hlusta á Kennarastofuna! Ég minni á alla hina þætti Kennarastofunnar sem má finna á heimasíðu þáttarins sem og á streymisveitum. Fylgist vel með því von er á fleiri þáttum í þessari þáttaröð næstu vikurnar – og takið þátt í samtalinu á Facebooksíðu þáttarins og á Twitter með myllumerkjunum Kennarastofan og menntaspjall.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    www.kennarastofan.is

    #kennarastofan

  • Verið hjartanlega velkomin á Kennarastofuna! Við höldum áfram samtalinu um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar þar sem ég tek viðtöl við kennara og annað skólafólk um kennslu á tímum heimsfaraldurs og hugsanlegar varanlegar breytingar sem sú reynsla mun hafa í för með sér.

    Í þessum þætti og þeim næstu mun ég einblína á framhaldsskólann þar sem Kennarastofan er kominn í eina sæng með rannsóknarverkefninu Framhaldsskólinn og samkomubann á tímum COVID-19: Kreppa, áskoranir og aðlögun. Ég er sjálfur hluti af rannsóknarhópnum sem doktorsnemi og það er Ómar Örn Magnússon einnig. Guðrún Ragnarsdóttir hefur umsjón með verkefninu ásamt Súsönnu Margréti Gestsdóttur en Amalía Björnsdóttir og Elsa Eiríksdóttir eru einnig þátttakendur af Menntavísindasviði – ásamt fleirum. Raddir sumra þátttakenda í þessu rannsóknarverkefnj munu heyrast í næstu þáttum eftir því sem við á.

    Rannsóknarverkefnið hefur hlotið styrk frá Háskóla Íslands til að búa til hlaðvarpsþætti sem fjalla um viðfangsefni rannsóknarinnar en styrkurinn er liður í því að styðja við samfélagsvirkni og miðla rannsóknum háskólans til almennings.

    Og í þessum fyrsta þætti í þeirri þáttasyrpu spjalla ég við Guðjón Torfa Sigurðsson sem starfar sem kennari við Menntaskólann á Ísafirði. Hann kennir bæði stærðfræði og tölvugreinar og er einnig sviðstjóri á raungreina og stærðfræðisviði við skólann. Hann hefur ýmislegt áhugavert að segja um hvernig skólinn náði að aðlagast skyndilegum breytingum og hvernig fjarnámsreynsla skólans kom að góðum notum þegar skellt var í lás. Við spjölluym um samstarf kennara, veðrið fyrir vestan og fleira.

    Takk fyrir að hlusta á Kennarastofuna! Ég minni á alla hina þætti Kennarastofunnar sem má finna á heimasíðu þáttarins sem og á streymisveitum. Fylgist vel með því von er á fleiri þáttum í þessari þáttasyrpu næstu vikurnar – og takið þátt í samtalinu á Facebooksíðu þáttarins og á Twitter með myllumerkjunum Kennarastofan og menntaspjall.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    www.kennarastofan.is

    #kennarastofan

  • Fyrsti fundur okkar í samstarfsverkefninu BestEdu fór fram í Danmörku nú á haustmánuðum. Einn þátttakenda er Erkko Soiuntu prófessor við Háskóla Austur-Finnlands. Erkko nýtir sér gögn úr spurningakönnunum sem hann leggur fyrir nemendur til að bæta kennslu og til að efla nemendur í sínu námi. Eftir fjölmörg samtöl fyrstu daga okkar í Kolding og Haderslev ákvað ég að sækja hljóðnemana og spjalla við Erkko um sína nálgun í kennslu og hvernig hann hefur þróað vendinám síðan hann hæof að innleiða fyrirkomulagið árið 2014.

    Allir þátttakendur samstarfsverkefnisins fjölluðu um nokkrar af þeim mikilvægu spurningum sem við glímdum við þá daga sem við vorum saman í myndbandi sem gestgjafarnir í Danmörku létu gera. Myndefni þessa þáttar er fengið úr því myndbandi: https://youtu.be/UvhElZHJ09s

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    kennarastofan.is

  • Ég hef verið svo lánsamur að fá að starfa með Sigrúnu Svöfu í Keili síðustu ár. Hún er ótrúlega skapandi og leitar sífellt nýrra leiða til að bæta sína kennslu og annarra. Það er góður og dýrmætur eiginleiki kennara. Ég hef fengið fundarboð frá henni þar sem yfirskriftin er einfaldlega „Ég fékk hugmynd, getum við spjallað?“ og á fundinum fórum við svo yfir flokka Blooms út frá hugmyndum um vendinám. Þessi samtöl skipta mig ótrúlega miklu máli – og hér er eitt þeirra.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu og er nú orðið að útgefnu lagi, The Key to my Future Heart.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    kennarastofan.is

  • Þegar ég var að móta hugmyndir mínar um Kennarastofuna og velta fyrir mér hugsanlegum viðmælendum, tók ég strax þá ákvörðun um að tala við einhvern af þeim kennurum sem sjá um Sprellifix, smiðjurnar í Langholtsskóla. Ég kynntist skipulagi þeirra fyrst á kynningu á fyrstu UTís ráðstefnunni á Sauðárkróki 2015 og hef alla tíð síðan hugsað reglulega til þess og reynt að einhverju leyti að máta mína kennslu að því.

    Ég hefði getað sest niður með einhverjum af þeim frábæru Smiðjukennurum við skólann en ákvað að hafa samband við Hjalta Halldórsson, ekki síst vegna þess að hann hefur unnið með námsefnið á hinum ýmsu miðlum; hann hefur skrifað barnabækur sem eru byggðar á Íslendingasögum og heldur úti hlaðvarpi, ásamt Oddi Ingi smiðjukennara, um sama efni. Ég hafði sérstakan áhuga á að heyra frá Hjalta um það hvernig gekk að halda fyrirkomulagi Sprellifixins þegar takmarkanir í skólastarfi voru í gildi og hvort eitthvað muni taka breytingum þegar himnarnir opnast á ný.

    Þetta er síðasti þátturinn í þessari fyrstu þáttaröð af Kennarastofunni. Ég vil þakka fyrir frábærar viðtökur ykkar, kæru hlustendur, og stuðning samstarfsaðila Kennarastofunnar; Vendinámssetri Keilis, Erasmus+ Menntaáætlunar Evrópusambandsins og Smástirnis. Ég hlakka til að halda samtalinu áfram eftir sumarfrí. Njótið sumarsins!

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    kennarastofan.is

  • Ég kynntist Hilmari Friðjónssyni í námskeiðinu Framhaldsskólakennarinn á krossgötum sem Menntavísindasvið HÍ stóð fyrir. Eldmóður Hilmars er augljós og metnaður hans smitandi. Ég vildi því setjast niður með honum og spjalla um hans nálgun og gildi í kennslu og reynslu hans af neyðarfjarkennslu á tímum heimsfaraldurs. Hilmar fjallar einnig um mikilvægi þess að samskipti kennara við nemendur séu byggt á jákvæðni og að umhverfi kennarans sé hvetjandi og dynamískt. Það sé leiðin til að virkja kennarann og búa til gott og uppbyggjandi starfsumhverfi.

    Þetta er þriðji og síðasti þátturinn sem ég birti frá Akureyrarferð okkar Smára en sá fyrsti var samtal mitt við Helenu Sigurðardóttur hjá Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri og annar þátturinn var spjall okkar Unnars Vilhjálmssonar íþrótta- og félagsmálakennari við Menntaskólann á Akureyri.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    Kennarastofan.is

  • Á tímum skólatakmarkana þurftu Íþróttakennarar að finna leiðir til að ná til nemenda og hvetja þá og styðja í sinni hreyfingu. Unnar Vilhjálmsson íþrótta- og félagsmálakennari við Menntaskólann á Akureyri settist niður með mér í gömlu byggingu MA og sagði mér hreyfiskýrslum sem hann lét nemendur sína vinna og hvernig hann, og nemendur hans, notuðu Strava þegar takmarkanir í skólastarfi komu í veg fyrir að hann gat hitt nemendur sína og metið áreynslu þeirra í íþróttatímum – eða Heilsu og lífsstíl eins og áfangarnir heita. Við töluðum einmitt mikið um það, almenna heilsu og lífsstíl, og hvaða hlutverki skólar gegna í því samhengi, og þá sérstaklega íþróttakennarar. 

    Þetta er annar þátturinn sem ég birti frá Akureyrarferð okkar Smára um daginn en sá fyrsti var samtal mitt við Helenu Sigurðardóttur hjá Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri.

     - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    Kennarastofan.is

  • Í þessum þætti spjalla ég við Helenu Sigurðardóttur sem starfar sem kennsluráðgjafa hjá Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri (KHA). Hlutverk KHA er að veita „ráðgjöf til kennara um þróun kennsluhátta í sveigjanlegu námi sem og um upplýsingatækni og kennslufræði“, eins og segir á heimasíðu. Í ljósi aðstæðna síðasta árið hefur hlutverk miðstöðvarinnar auðvitað verið ærið og mikilvægt en markviss þróun í átt að fjölbreyttum kennsluháttum og aðgengi kennara HA að tæknilausnum var þó hafið fyrr.

    Við Helena kynntumst á fyrstu UTís ráðstefnunni á Sauðárkróki 2015. Menntabúðir og ráðstefnur og mikilvægi slíkra viðburða eru einmitt til umræðu í þættinum en Helena hefur verið óþreytandi við að auka samtal kennara með því að setja á fót menntabúðir og halda ráðstefnur.

    Við Smári flugum norður um daginn og heimsóttum þrjá kennara í þremur skólum. Þetta er fyrsti þátturinn af þeim þríleik.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

    Kennarastofan.is

  • Í þessum þætti heimsæki ég Helgu Birgisdóttur, aðjúnkt á Menntavísindasviði HÍ og íslenskukennara í Tækniskólanum. Mig langaði að spyrja hana út í námskeið sem hún kenndi haustið 2020, sem taldi um 300 nemendur, um reynslu hennar af kennslu á tveimur skólastigum á tímum skólatakmarkana, stóra nemendahópa, samskipti við nemendur, skipulag á námsumsjónakerfi og fleira.

    - - -

    Ég heiti Þorsteinn Sürmeli og er kennari í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ég hef verið kennari þar síðan í janúar 2010 og hef tekið þátt í þróun vendináms, kennsluaðferð sem skólinn tók upp haustið 2012. Vendinám snýr meðal annars að því hvernig megi styðjast við tæknina til að nýta sem best tímann sem nemendur og kennarar eiga saman í kennslustofunni. Það má gera með því að taka allt kennsluefni upp fyrir kennslustund og nýta tímann frekar í verkefnavinnu og leiðsagnarnám.

    Ég hef því sérstakan áhuga á hvernig kennarar – og nemendur – löguðu námið að aðstæðum á tímum heimsfaraldurs og þá sérstaklega hvernig sú reynsla mun breyta kennsluháttum til frambúðar.

    Ég vil að fleiri kennarar taki þátt í samtalinu í Kennarastofunni á Facebook og með því að tísta með myllumerkinu #kennarastofan á Twitter.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

  • Ég fór fljótt að rekast reglulega á nafnið Anna Sofia þegar ég tók mér stutt hlé frá kennslu og starfaði sem verkefnisstjóri eTwinning á Íslandi. Anna Sofia hefur síðustu ár verið ótrúlega virk í evrópskum samstarfsverkefnum og á það bæði við Erasmum+ verkefni sem og eTwinning verkefni sem eru stofnuð og unnin á netinu.

    Anna Sofia var í fyrra tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna fyrir framúrskarandi kennslu og þróunarstarf í tengslum við alþjóðleg samstarfsverkefni.

    Anna Sofia starfar á tveimur leikskólum og við Smári hljóðmaður heimsóttum annan þeirra, Leikskólann Holt, þar sem við spjölluðum um þátttöku hennar í alþjóðlegum verkefnum og hvernig þau hafa gengið á tímum heimsfaraldurs.

    - - -

    Ég heiti Þorsteinn Sürmeli og er kennari í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ég hef verið kennari þar síðan í janúar 2010 og hef tekið þátt í þróun vendináms, kennsluaðferð sem skólinn tók upp haustið 2012. Vendinám snýr meðal annars að því hvernig megi styðjast við tæknina til að nýta sem best tímann sem nemendur og kennarar eiga saman í kennslustofunni. Það má gera með því að taka allt kennsluefni upp fyrir kennslustund og nýta tímann frekar í verkefnavinnu og leiðsagnarnám.

    Ég hef því sérstakan áhuga á hvernig kennarar – og nemendur – löguðu námið að aðstæðum á tímum heimsfaraldurs og þá sérstaklega hvernig sú reynsla mun breyta kennsluháttum til frambúðar.

    Ég vil að fleiri kennarar taki þátt í samtalinu í Kennarastofunni á Facebook og með því að tísta með myllumerkinu #kennarastofan á Twitter.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

  • Samtölin á kennarastofunni halda áfram og í þessum þætti heimsæki ég Tónlistarskóla Sandgerðis og spjalla við Halldór Lárusson, trymbil og skólastjóra. Hljóðfæranám í fjarkennslu, mikilvægi samspils og dýrmæt reynsla kennara við skólann af kennslu á tímum heimsfaraldurs er meðal viðfangsefna.

    Ég heiti Þorsteinn Sürmeli og er kennari í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ég hef verið kennari þar síðan í janúar 2010 og hef tekið þátt í þróun vendináms, kennsluaðferð sem skólinn tók upp haustið 2012. Vendinám snýr meðal annars að því hvernig megi styðjast við tæknina til að nýta sem best tímann sem nemendur og kennarar eiga saman í kennslustofunni. Það má gera með því að taka allt kennsluefni upp fyrir kennslustund og nýta tímann frekar í verkefnavinnu og leiðsagnarnám.

    Ég hef því sérstakan áhuga á hvernig kennarar – og nemendur – löguðu námið að aðstæðum á tímum heimsfaraldurs og þá sérstaklega hvernig sú reynsla mun breyta kennsluháttum til frambúðar.

    Ég vil að fleiri kennarar taki þátt í samtalinu í Kennarastofunni á Facebook og með því að tísta með myllumerkinu #kennarastofan á Twitter.

    - - -

    Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

    Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

  • Þetta er fyrsti þátturinn af Kennarastofunni, hlaðvarpi þar sem ég spjalla við kennara um nám og kennslu í breyttum heimi.

    Í þessum fyrsta þætti kíki ég í heimsókn í hinn nýbyggða og glæsilega Stapaskóla í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ og spjalla þar við Heiðu Björgu Árnadóttur, kennara í 7., 8. og 9. bekk. Mig langaði að tala við Heiðu um teymiskennsluna sem kennarar í skólanum hafa verið að þróa og hvaða hlutverki byggingin, húsið sjálf, gegnir í þeirra starfi.