Avsnitt
-
Til að komast til tunglsins þurfti öflugri eldflaug en nokkru sinni fyrr. Í Huntsville í Alabama hófust Wernher von Braun og teymi hans handa við að þróa Satúrnus 5 eldflaugina sem að lokum flutti menn frá Jörðinni til tunglsins.
-
Eftir sögulegan leiðangur Apollo 8 átti aðeins eftir að prófa tunglferjuna og tunglbúninginn áður en hægt var að lenda á tunglinu. Apollo 9 var draumaleiðangur tilraunaflugmannsins.
-
Saknas det avsnitt?
-
Fjórum mánuðum eftir fyrstu tungllendinguna var komið að áhöfn Apollo 12 að endurtaka leikinn. Þeir Pete Conrad og Alan Bean áttu stefnumót við annað ómannað geimfar sem lent hafði tveimur árum áður á Stormahafinu.
-
Árið 1967 var slæmt geimferðaár. Þremur mánuðum eftir eldsvoðann í Apollo 1 settist Vladimir Komarov inn í nýtt geimfar sem leggja átti grunninn að ferðum Sovétmanna frá Jörðinni til tunglsins.
-
Þegar búið var að prófa tunglferjuna á braut um Jörðina, varð að prófa hana aftur á braut um tunglið. Apollo 10 var lokaæfingin fyrir tungllendingu.
-
Rétt fyrir jól árið 1968 fór áhöfn Apollo 8 í lengsta og hættulegasta ferðalag sem mannkynið hafði lagt upp í: Ferðalag frá Jörðinni til tunglsins.
-
Áhugi á tunglferðum fór dvínandi þegar Apollo 13 var skotið á loft. Það breyttist tveimur dögum eftir geimskot þegar sprenging varð í súrefnistanki sem stofnaði lífi geimfaranna þriggja í mikla hættu.
-
Í lok janúar árið 1971 hófst sjötta tunglferð Bandaríkjamanna þegar Apollo 14 var skotið á loft. Eftir misheppnaðan leiðangur Apollo 13 var mikið undir: Færi eitthvað úrskeiðis þýddi það sennilega endalok Apollo verkefnisins. Færi allt að óskum yrði Alan Shepard hins vegar fimmti og elsti maðurinn til að ganga á tunglinu.
-
Áður en haldið var til tunglsins var nauðsynlegt að prófa alla helstu þætti tunglferðar. Gemini geimáætlunin brúaði bilið á milli Mercury og Apollo geimáætlananna.
-
Tæpum fjórum árum eftir sigurför Spútnik um himinhvolfið, unnu Sovétmenn enn eitt afrekið þegar þeir sendu fyrsta geimfarann, Júrí Gagarín, á braut um jörðina.
-
Rúmlega einu og hálfu ári eftir brunann í Apollo 1 hófst fyrsta mannaða geimferð Apollo verkefnisins, Apollo 7, með þeim Wally Schirra, Walt Cunningham og Donn Eisele um borð.
-
Beggja vegna járntjaldsins áttu tveir menn, Wernher von Braun og Sergei Korolev, sameiginlegan draum: Að ferðast út í geiminn og alla leið til tunglsins.
-
Í hvert sinn sem Bandaríkjamenn stigu eitt skref fram á við, var eins og Sovétmenn stigu tvö. Með Mercury geimáætluninni tókst Bandaríkjamönnum þó að jafna metin.
-
Apollo geimfarið var flóknara en nokkurt annað geimfar. Í raun var það pínulítið hús, fært um að halda þremur mönnum á lífi í allt að tvær vikur í lengsta og hættulegasta ferðalagi sem mannkynið hafði lagt upp í.
-
Bandaríkjamenn svöruðu afreki Sovétmanna fyrir opnum tjöldum þremur vikum eftir geimferð Júrí Gagaríns. Skömmu síðar setti Kennedy forseti þjóð sinni risavaxið markmið.
-
Hinn 27. janúar árið 1967 varð mesti harmleikur geimkapphlaupsins þegar þrír bandarískir geimfarar í áhöfn Apollo 1 létust á skotpallinum við hefðbundnar prófanir.
-
Hvað tók við hjá mönnunum sem stigu fætu á tunglið fyrir hönd alls mannkyns og rituðu nöfn sín á spjöld sögunnar? Í 17. þætti þáttaraðarinnar Kapphlaupið til tunglsins, sem var á dagskrá Rásar 1 veturinn 2013-2014, var fjallað um dökku hlið tunglferðanna.
-
Þegar fimmtán mínútur voru liðnar frá því að Neil Armstrong steig fyrstur manna fæti á annan hnött, var komið að Buzz Aldrin að setja sín spor í rykið. Í 16. þætti þáttaraðarinnar Kapphlaupið til tunglsins, sem var á dagskrá Rásar 1 veturinn 2013-2014, var fjallað um störf tvíeykisins á tunglinu.
-
Sunnudagskvöldið 20. júlí árið 1969 lentu fyrstu mennirnir á tunglinu. Það kom í hlut leiðangursstjóra Apollo 11, Neil Armstrong, að stíga fyrstur manna fæti á annan hnött. Í 15. þætti þáttaraðarinn Kapphlaupið til tunglsins, sem var á dagskrá Rásar 1 veturinn 2013-2014, var fjallað um þetta litla skref.
-
Miðvikudaginn 16. júlí árið 1969 hófst sögulegasti leiðangur geimkapphlaupsins og líklega mannkynssögunnar. Í 14. þætti þáttaraðarinn Kapphlaupsins til tunglsins, sem var á dagskrá Rásar 1 veturinn 2013-2014, var fjallað um þremenningina sem gera áttu fyrstu tilraunina til að lenda á tunglinu, þá Neil Armstrong, Buzz Aldrin og Michael Collins.