Avsnitt
-
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.
-
Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977
Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B.
Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni. -
Saknas det avsnitt?
-
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.
-
Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur.Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun
-
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
-
Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað?Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA og við fórum yfir þetta allt og fleira til!
-
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní.
Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt.
Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur. -
Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur.Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á skrautlegan tíma Mick McCarthy og Roy Keane og rifjum upp nokkrar gullmolarasögur af stórkostlegum karakterum úr írskri fótboltasögu.Og að sjálfsögðu, hver önnur en Hólmfríður Karlsdóttir, ungfrú heimur 1985, sparkar veislunni í gang með Írunum.Góða skemmtun!
-
Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fer í umspil þar.
Næsta verkefni er EM í Sviss og þar þurfum við að fara að vinna einhverja leiki, en stelpurnar hafa núna farið í gegnum tíu leiki í röð án sigurs.
Guðmundur Aðalsteinn fór yfir síðasta landsliðsglugga og framhaldið með þeim Orra Rafni Sigurðarsyni og Gylfa Tryggvasyni.
Icelandair, TM, Lýsi, Landsbankinn og Hertz styðja umfjöllun Fótbolta.net um kvennaboltann. -
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
-
Innkastið eftir 10. umferð, Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geirs. Haraldur Örn fréttaritari Fótbolti.net og Atli Viðar Björnsson fyrrum leikmaður FH mættu með honum.
-
Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa!Góða skemmtun.
-
Fréttamaður Fótbolta.net er kominn til Bergen í Noregi og fyrsta verk á dagskrá var að hitta Frey Alexandersson, þjálfara Brann, og ræða við hann um líf þjálfarans í Bergen - þessari fallegu borg.
Það er óhætt að segja að Brann er flaggskip borgarinnar og hér halda allir og ömmur þeirra með félaginu.
Í þessu langa spjalli fer Freyr yfir fyrstu mánuðina hjá Brann og lífið hér í borginni. Hann er ekki enn búinn að koma sér almennilega fyrir en það kemur með tímanum.
Það var svo gott veður í Bergen í dag að ákveðið var að sitja úti. Freyr var í sínu sæti á varamannabekknum, á heimavelli.
Virkilega skemmtilegt spjall sem óhætt að mæla með fyrir alla fótboltaáhugamenn. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. maí. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas.
Sævar Atli Magnússon, nýjasti leikmaður Brann, kom í upphafi þáttar og svo var farið yfir Lengjudeildina og Bestu deildina.
Garðar Ingi frá FH kom, heyrt er í hressum hlustendum og bestu barirnir í Bestu deildinni valdir. Biggi hjá ÍTF ræðir um leiðinlega fólkið sem vill banna bjór á vellinum.
Þá er Hannes Þór Halldórsson á línunni og ræðir um Systraslag og íslenska kvennalandsliðið. -
Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA.
ÍA, KA og ÍBV unnu öll í þessari umferð og náðu þannig að snúa deildinni á hvold. Sóknarleikurinn er áhyggjuefni Breiðabliks sem tapaði öðrum leiknum í röð. Víkingur vann leiðinlegan toppslag og Valsmenn nálgast. -
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 4. umferð í 2. og 3. deild karla, 3. umferð í 4. deild og 2. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2.deild, 2:50, 3.deild, 32:00, 4.deild, 1:06:45, 5.deild, 1:26:10Þátturinn er í boði Ásachat.is, vertu viss sem fyrst.
-
Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.
- Visa fler