Avsnitt
-
Velkomin í samúðarkortadeildina. Bergrún, Díana Sjöfn og Sjöfn dýfa sér í rómantísku gamanmyndina (500) Days of Summer og skoða birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku, sérvitra álfadísa, allt of gáfaðra barna í kvikmyndum og sjálfrar ástarinnar. Sjöfn nær að fara yfir söguþráð myndarinnar á innan við hálftíma, persónulegt met, Díana þarf að sinna skyldum sem móðir og Bergrún ældi einu sinni á gólfið heima hjá sér.
-
Það er komið aftur! Podcastið sem allir hafa beðið eftir! Eða hvað? Sökum tæknilegra örðugleika í ársbyrjun kemur næsti þáttur því miður ekki fyrr en í næstu viku en örvæntið ekki, hlustið á vafasöm hljóðgæði og vægt fliss til að hita upp fyrir komandi þátt.
-
Saknas det avsnitt?
-
Ert þú sérvitur álfadís? Eða hefur einhver annar gefið þér það hlutverk? Í þætti dagsins ræðum við Manic Pixie Dream Girl, staðalmyndina sem tröllreið indie-kvikmyndaheiminum frá um 2005 til 2015. Hvers vegna er staðalmyndin skaðleg og hvernig hefur hún þróast? Hefur hún haldið velli eða má finna hana falda í öðrum staðalmyndum kvenna? Og hvað með Manic Pixie Dream Boy? Hvað er að frétta af honum?
Greinar:
https://www.theatlantic.com/sexes/archive/2013/07/the-real-world-consequences-of-the-manic-pixie-dream-girl-clich-233/277645/
https://www.bitchmedia.org/article/harry-styles-soft-boy-aesthetic-manic-pixie-dream-boy
https://www.salon.com/2014/07/15/imsorryforcoiningthephrasemanicpixiedream_girl/
https://www.glamour.com/story/the-manic-pixie-dream-girl-isnt-dead-shes-just-evolved
-
Candyman. Candyman. Candyman. Það er Spooky Season í öllu sínu veldi og í tilefni Hrekkjavökunnar horfðum við á hryllingsmyndina Candyman (2021) í leikstjórn Nia DaCosta. Við veltum fyrir okkur hryllingsminnum, menningarátökum, miðstéttarvæðingu og kynþáttafordómum í myndinni sem og samfélaginu og spyrjum hinar eilífu spurningar: Af hverju er vondi karlinn alltaf fatlaður?
Kíkið á:
https://chicagoreader.com/news-politics/they-came-in-through-the-bathroom-mirror/
https://www.horrorbound.net/spooky-reads/the-forbidden-clive-barker-l
https://en.wikipedia.org/wiki/Cabrini–Green_Homes
https://myfavoritemurder.com/266-rave-after-rave/
-
Verður þú að ríða vinum þínum? Svarið er oft á tíðum já, en birtingarmyndir sambanda gagnkynhneigðra kvenna og karla gefa í skyn að eingöngu vinátta sé óraunhæfur möguleiki. Við kíkjum á þrjár myndir með þemu vináttu og ásta, My Best Friend's Wedding, When Harry met Sally og Just Friends. Díana viðurkennir að hafa orðið skotin í vini, Sjöfn viðurkennir alvarlegan sleiksjúkdóm og Bergrún dansar á línunni. Endilega hlustið, vingast Við okkur og byrjið svo með okkur
Ath, á mín. 46.40 ætlaði Bergrún að segja "ekki einkynhneigt" en tungan í henni rann til. Afsakið.
-
Borgaðir þú 25.000 dollara til að hlusta á þennan þátt? Ekki? Þá ertu sennilega ekki jafn ríkur og fólkið sem mætti á Met Gala til að sýna sig og sjá aðra. Við ræðum tískuna, ádeiluna, pólitíkina og allt hitt tengt Met Gala 2021, dæmum nokkur outfit og spyrjum alvöru spurninga eins og, hvað er Beyonce gömul, eru Jen og Ben saman í alvöru og er hárið á Jay Z ekta.
-
Staðalmyndirnar eru víða og ekki síst í bíómyndum. Við kíkjum á einhliða kvenpersónur í kvikmyndum og einbeitum okkur að þremur erkitýpum til frekari greiningar. Við ræðum til dæmis Mean Girls, Grease, Halloween, House of Wax, Alien og auðvitð Vertigo. Svo leikum við auðvitað hinn fræga samkvæmisleik ´Hver myndi deyja fyrst ef þetta væri hryllingsmynd?´
-
Færðu þig lúðalegi Drakúla, Edward cullen er mættur! Í þætti dagsins ræðum við vampírur: birtingarmyndir þeirra í gegnum söguna og þróun ímyndar þeirra, frá fornkína, yfir til austur og norður Evrópu og alla leið til Forks, Washington. Þess má til gamans geta að þetta er fyrsti þátturinn sem við tókum upp, snemma 2021. Ji hvað við vorum ungar. Haltu fyrir hálsinn, athugaðu hvort þú eigir ekki örugglega hrísgrjón og skelltu þér i hlustun
-
Áður en sumarfríið skall á okkur vorum við Live á Instagram. Nú snúum við aftur úr fríi deilum með ykkur þessari live upptöku þar sem við fjöllum um birtingarmyndir framakonunnar. Við skoðum hina raunverulegu framakonu, framakonuna í kvikmyndum og sögu hinna vinnandi kvenna almennt. Við áhlustun mælum við með að hafa goðsagnakennda valdastöru Meryl Streep í Devil Wears Prada í huga og góða skál af poppkorni við hendina.
-
Í þætti vikunnar ræðum við mörk þegar kemur að „kynlífssenum“ í kvikmyndum. Margar frægustu senunar eru vægast sagt vafasamar, og ef maður lítur aftur í kvikmyndasöguna má finna margt óþægilegt sem fer yfir mörk. Við kíkjum á 16 Candles, James okkar Bond (sem þarf á mikilli sálfræðihjálp að halda), The Wedding Crashers og fleiri gamlar og „góðar“. Þátturinn kemur með risa TW á allt sem við tölum um, nema í byrjuninni þegar við ræðum gallabuxnatísku, það er nokkuð öruggt.
-
Við ræðum kynlíf í dægurmenningu, sérstaklega í bíómyndum og sjónvarpi, í gegn um tíðina. Einnig kíkjum við á Horny Twitter og fáum hjálp graðra tvítverja við að nefna eftirminnilegar kynlífssenur. Mikið er flissað þar sem þáttarstjórnendur virðast ekki alveg nógu þroskaðar til að tækla þetta málefni af yfirvegun. Let's get it on!
TW: Nauðgun og kynferðisofbeldi í kvikmyndum
-
Við höldum áfram að skoða sifjaspell. Nú snúum við okkur að sögu sifjaspella í dægurmenningu aftur til 16. aldar og veltum auk þess fyrir okkur Human Centipede. Af því að .. oj. Eftir þennan þátt getum við svo sáttar snúið okkur að öðru. Takk fyrir.
-
Sifjaspell eru víðar en við héldum og hafa laumað náskyldum krumlum sínum í ýmsa anga dægurmenningar. Frá Game of Thrones til Hornauga Ásdísar Höllu, yfir í biblíuna og auðvitað í kláminu, bæði rituðu og leiknu, má finna sifjaspell. Við skoðum uppruna þessara vinsælda þeirra, umdeildu kenninguna genahrifningu og flissum svolítið.
-
Þátturinn sem tvær af þremur umsjónarkonum poddsins kafna næstum á sælgæti. Og talandi um sælgæti, í þessari viku fjöllum við um strákasveitir. Við skoðum hvað þær eru, hver fann þær upp og hvers vegna þær eru svona vinsælar. Er það uppbygging sveitanna sem sker úr um hver er strákasveit eða eru það aðdáendurnir? Hvers vegna er almennt litið niður á áhugamál unglingsstúlkna og hvers vegna köfnum við á vegan nammi?
-
Kvikmyndaklúbbur Bergrúnar tekur fyrir myndina Promising Young Woman. Við viljum vara við því að myndin fjallar um kynferðisofbeldi og getur umræðan verið triggerandi. Einnig er góð spurning hvers vegna báðar myndirnar sem við höfum tekið fyrir í podcastinu hingað til innihalda Adam Brody, ofbeldi og hefnd. Kannski erum við með þema?
Greinar:
https://www.vulture.com/2021/02/how-promising-young-womans-soundtrack-came-together.html
https://people.com/movies/carey-mulligan-explains-why-negative-review-stuck-with-her/
https://collider.com/promising-young-woman-emerald-fennell-interview-ending-spoilers/
https://www.nytimes.com/2021/04/01/podcasts/still-processing-promising-young-women-oscars.html
https://www.latimes.com/entertainment-arts/awards/story/2021-04-12/promising-young-woman
https://www.thetimes.co.uk/article/promising-young-woman-review-a-masterly-tale-of-vengeance-vxfvxp5g7
-
Marilyn Monroe. Kim Kardashian. Píkan hans Gustave Courbet. Nektarsjálfan, samfélagsmiðlar, valdefling, gægjuhneigð og glápþörf. Við drepum víða niður fæti í þessum þætti sem fjallar um sjálfið á tímum samfélagsmiðla, áhrifavalda og markaðssetninga. Er instagramsjálfsmyndin list, er hún tekin á forsendum viðfangsins, viðheldur hún gömlum fegurðarstöðlum eða er hún tæki til valdeflingar? Við höfum kannski ekki lokasvarið en við höfum heilmargar spurningar.
Listakonan sem Sjöfn gat ekki munað nafnið á var Catherine Opie. Mælum með.
MA-ritgerð Díönu: https://skemman.is/handle/1946/29959
Greinar:
https://www.fastcompany.com/28905/brand-called-you
https://www.ruv.is/frett/2021/04/19/er-nektarsjalfan-list
https://www.theguardian.com/news/2017/aug/18/neoliberalism-the-idea-that-changed-the-world
https://theconversation.com/how-neoliberalism-colonised-feminism-and-what-you-can-do-about-it-94856
-
TW. átraskanir.
Í þættinum ræðum við birtingarmyndir feitra (kvenna) í dægurmenningu. Það kannast flest ef ekki öll við neikvæðar hugsanir um líkama sinn, oftar en ekki vegna þess að hann er „of mikið“ eða „ekki nógu“. Við ræðum þráhyggju samfélagsins gagnvart þyngd, kerfisbundna mismunun, spjöllum um þekktar persónur sem eru kóðaðar neikvæðar vegna holdafars og og eigin reynslu af megrunarmenningu. Mælum með Samtökum um líkamsvirðingu og að hætta að fylgja bara grönnu fólki á instagram. Ef þig langar að senda okkur hugleiðingu eða athugasemd má hafa samband á instagram @birtingarmyndir eða í emaili [email protected]
Meðmæli:
Þættir:
Shrill
My Mad Fat Diary
Myndir:
Dumplin
Brittany Runs a Marathon
Hlaðvörp:
Maintenance Phase
Bækur:
Hunger, Roxane Gay
Landwhale, Jes Baker
Greinar:
https://highline.huffingtonpost.com/articles/en/everything-you-know-about-obesity-is-wrong/
https://gay.medium.com/the-body-that-understands-what-fullness-is-f2e40c40cd75
-
Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You, Million Dollar Baby, Hringjarann frá Notre Dame, Shape of Water og A Quiet Place, Peanut Butter Falcon og X-Men og þættina Sex Education, Crip Camp, Master of None og bókina Sitting Pretty sem er einmitt bók mánaðarins í bókaklúbbi Flóru þann 23. maí næstkomandi.
TW: Minnumst á kynferðislegt ofbeldi og ableisma
https://www.aruma.com.au/about-us/blog/run-forest-run-disability-stereotypes-in-the-media/
-
Velkomin í kvikmyndaklúbb Bergrúnar, Bergrún's Movie Night. Við ræðum og greinum hina mögnuðu og misskildu költmynd Jennifer's Body frá árinu 2009. Þú þarft ekki að hafa séð myndina til að njóta spjallsins, en við mælum þó með að kíkja á hana. Dýfðu þér með okkur í heim kvenhaturs, hryllingsmynda og misskildra snillinga.
TW: Fyrir alls kyns ofbeldi gegn konum
Við vitnum meðal annars í greinarnar:
https://cinemedia.media/feminism-jennifers-body/
https://www.vox.com/culture/2018/10/31/18037996/jennifers-body-flop-cult-classic-feminist-horror
https://www.buzzfeednews.com/article/louispeitzman/jennifers-body-diablo-cody-karyn-kusama-feminist-horror
-
Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.
- Visa fler