Avsnitt
-
Gestur þáttarins í dag er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Ólafur er með masterpróf frá Englandi í skipulagi byggða og bæja og BA-próf í sögu- og jarðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er fyrrverandi alþingismaður en hann sat á þingi frá árinu 1995-2003. Og Ólafur var einnig Þjóðgarðsvörður Þingvalla frá árinu 2010-2017.
Ólafur hefur ferðast víða og stundað fjallamennsku vítt og breitt um heiminn og klifið mörg háfjöll m.a. Mont Blanc, Kilimanjaro og Aconcagua hæsta fjall Suður Ameríku.
Ólafur er brautryðjandi í íslenskri fjallamennsku, hann var m.a. í fyrstu skíðaleiðangrum Íslendinga yfir Grænlandsjökul og á Suðurpólinn. -
Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.
-
Saknas det avsnitt?
-
Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum Ferðafélags Unga fólksins og ferðast vítt og breitt um landið með unga fólkinu í FÍ.
-
Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ
-
Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.
-
Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
-
Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson eru miklir áhugamenn um fjallaskíðamennsku og settust niður með okkur og fræddu um þessa frábæru útivist sem fjallaskíðamennskan er.
-
Gestur okkar í dag er Hjalti Björnsson. Hann fer hér yfir þau mikilvægu grunnatriði sem fólk þarf að hafa í huga við útivist, hvað varðar eigið öryggi og annara og einnig hvernig er best að bera sig að við að koma sér af stað í göngu- og fjallamennsku.
-
Hér er rætt við Döllu og Matta, umsjónarmenn Ferðafélags barnanna. Það sem gerir ferðir með ferðafélagi barnanna sérstakar eru að þær eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra.
-
John Snorri Sigurjónsson deilir hér með okkur reynslu sinni á K2 ásamt því gefa okkur innsýn inn í hugarheim heimsklassa háfjallamanns.